Alþýðublaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 5
sjaeggæpppsæp
•H . ísw
WWgijmWWi,
-. .»*;
r‘, -
Sviðsmynd úr „The War Game“,
m iskunnarl aínst raunsæi sem ekki mátti sýna.
Hér segir frá enskri sjónvarpskvikmyud, sem xa) bönnuð xegna þess hve sönn hún var
Enskí skopteiknarinn Vicky sem andaðist í síðustu viku, 53 ára gamall, lét í ljós álit sitt á þessum
málum skömmu áður en hann lézt. Texti meðfylgj indi skopmyndar hljóðar svo: „Það' hefði verið
hræöilegt að sýna fólki „The War Game“.
Kvikmyndaeftirlit fjallar vana-
lega um kynferðisatriði í kvik-
myndum. í Englandi hefur hins
vegar nýlega risið upp deila, sem
bendir til þess, að vernda þurfi
xnannkynið fyrir annarri vá.
Brezka ríkissjónvarpið hafði
veitt leikstjóranum Pcter Wat-
kins heimild til að framleiða kvik-
xnynd undir heitinu „Stríðsleik-
ur,” sem íjallaði um afleiðingar
kjarnorkustyrjaidar. Þegar mynd-
in var fullgerð sýndi BBC rautt
ljós og neitaði að sýna hana.
Hefði ástæðan fyrir neituninni
verið gæðaskortur myndarinnar
væri það einkamál Englendinga.
Margt bendir hins vegar til þess,
að hún só of „gcð”, þ.e.a.s. of raun-
veruleg. Ákveðið hefur verið, að
myndina megi hvorki sýna né
selja, og eru spólurnar nú geymd-
ar undir strangri lögregluvernd.
Þegar — og — ef myndin fæst
keypt, væri fróðlegt að vita, livort
íslenzka sjónvarpið hefur meira
liugrekki til að bera en BBC.
Álit kunnra brezkra gagnrýn-
enda bendir til þess, að myndin
sé mjög athyglisverð. Kenneth
Tynan, sem er einn þeirra fáu út-
völdu, sem fengið hafa að sjá hana
á lokaðri sýntngu, segir beinlín-
is, að hann tclji hana „mikils-
verðustu kvikmynd, sem nokkru
sinni hafi verið gerð.” Hún sé slík,
að þess megi jafnvel vænta, að
hún geti „breytt rás sögunnar,”
ef aðeins nógu margir fái að sjá
hana.
Hann heldur áfram:
í upphafi myndarinnar eru sýnd
nokkur kort, sem afbjúpa hið al-
gjöra varnarleysi Stóra-Bretlands
gegn atómárás. Því næst segir frá
alvarlegu ástandi, sem skapazt hef
ur vegna innrásar kínverskra
herja í Suður-Vietnam. Banda-
? ■?; '■ ..:J ■ .'•.'"
ríkjamenn hóta þeim með atóm-
sprengjum, en Rússar lýsa því yf-
ir, að þeir muni hertaka Vestur-
Berlín, ef hótunin verður ekki aft-
urkölluð. Atburðir við Berlínar-
múrinn egna Rússa til'að fara yf-
ir hernámsmörkin. NATO-her-
sveitir, scm eru á lcið til Berlín-
ar urn Austur-Þýzkaland verða fyr-
ir árás voldugra herja, búnum
venjulegum vopnum, og ákveðið
er í samráði við stjórn NATO að
hefja gagnárás með atómvopnum.
j Þegar þeim hefur verið beitt svara
Rússar með því að skjóta eldflaug-
um með atómsprengjum á Vest-
ur-Evrópu.
Á meðan átökin magnast, cr
skipt yfir til Englands og fylgzt
með brottfluttum mæðrum og
börnum, rætt við óbreytta borg-
ara, sem segiast ekki trúa því, að
j stýrjöld sé óhjákvæmileg. Fólkið
trúir því í lengstu lög, að yfir-
Völdin sjái að sér og leysi vand-
ann á síðasta augnabliki. Því næst
hcyrist nístandi sírenuvæl, cld-
flaugum er skotið af pöllum í fjai--
lægu landi eða frá kafbáti í ná-
grenninu, ragnarök eru í nánd.
Það sem á eftir kemur er ægi-
leg martröð um hábjartan dag,
leiðarvísir um Ieikslok, sem eru
sýnd af svo ísköldu raunsæi, a9
fráleitt væri að heimfæra undiir
æsiatriði.
Atriði eftir atriði brennir sig
inn í endurminningarnar: eldstorm
urinn; hinir titrandi veggir í 60
i;m. fjarlægð; hinn umkringdi
læknir; lögreglan, sem af skyídu-
rækni skýtur þá, sem hroðalegast
eru útleiknir; hinn örvæntingar-
fulli eiginmaður, sem spyr, hve-
nær kona hans og börn muni deyja
vegna geislunar; innbrot borgar-
anna i matvælageymslur liersins;
þjófarnir, sem eru skotnir af af-
tökusveitum; og — ef til yill það
óhugnanlegasta af því öllu — þeir
eítirlifendur, sem statt og stöðugt
halda því fram, að England hafi
breytt rétt með því að svara i
sömu mynt.
„Stríðsleikur” er meira en sjúk-
dómslýsing. Hann er listaverb.
Myndin er tjáning einstaklinga,
sem sér fyrir endalokin, slysið, og
ég á bágt með að trúa því, að hún
sé minna virði sem listaverk, af
því að sýnin af tilviljun kemur
heim við staðreyndirnar. Eins og
Dómsdagur Michelangelos birtist
hún sem sönn og hlutlaus mynd, af-
þeim Degi Reiðinnar, sem við eig-
um í vændurn. ;
í þessari mynd á hvergi heima
hið margþvælda snakk unx göfgt
mannkindarinnar. í þess stað sýn-
ir hún okkur lirelld og ráðþrota
sýnishorn af kynflokki, scpn, náðt-
langt í krafti síns einstaka aðlög-
unarhæfileika, notaði þennkn hæfi
Framhald á 15. ?íð"
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 2. marz 1966 5
S