Alþýðublaðið - 12.03.1966, Síða 1
Laugardagur 12. marz 1986 - 46. árg. - 59. tbl. - VERÐ: 5 KR.
Frá afmælishófimi í gærkveldi: Emil Jónsson og Albert Carthy.
BJWWWtWmWVWWWWWWWWMWW MWWWVWWWWWWWWWWWMWWWM
FYLGIRIT í TILEFNIAFMÆLISINS
í DAG FYLGIR Alþýðublaðinu sérstakt rit í
tilefhi af fimmtíu ára afmæli Alþýðuflokks-
ins, sem er í dag. Ritið er í litlu broti, prentað
á góðan pappír og frágangur allur hinn vand-
aðasti. Efni þess eru greinar um Alþýðuflokk
inn og málefni hans bæði fyrr og síðar. Höf-
undar ritsins eru: Emil Jónsson, Vilhjálmur S.
Vilhjálmsson, Stefán Jóhann Stefánsson, Har-
aldur Guðmundsson, Gylfi Þ. Gíslason, Bene-
dikt Gröndal og fleiri. Sitthvað fleira ^fni er
í ritinu, sem er rækilega myndskreytt. .j
r
HMMUMMMMWMMMIMMMHMMUHMMV4 RWWWWWWiWMWVWVWWIWWM
ALÞÝÐUFLOKKURINN og Alþýðusamband ís-
lands eru 50 ára í dag. Stofnfundur þessara samtaka,
sem voru þá ein og sama félagsheildin, var haldinn
í Báruhúsinu í Reykjavík 12. marz, 1916. Sótu
þann fund 22 fulltrúar frá sjö verkalýðsfélögum:
Verkamannafélaginu Dagsbrún, Verkakvennafélaginu
Framsókn, Hásetafélagi Reykjavíkur, Hinu íslenzka
prentarafélagi, Bókbandssveinafélagi Reykjavíkur,
Verkamannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði og Hásetafé
lagi Hafnarfjarðar.
Stofnfundur þessi hafði átt sér
nokkurn aðdraganda. Haustið 1915
samþykktu reykvísku félögin fimm
að skipa tvo menn hvert í nefnd
til að undirbúa stofnun lands-
samtaka verkalýðsfélaganna. Hélt
nefndin allmarga fundi um vet-
urinn.
Það kom fram þegar í störfum
þessarar undirbúningsnefndar, að
henni var ætlað annað og meira
en að undirbúa stofnun faglegs
verkalýðssambands. í nóvember
1915 hófust innan nefndarinnar
umræður um bæjarstjórnarkosn-
ingar, sem fram undan voru í
Reykjavík, og fór svo, að ,,sam-
bandslaganefnd” ákvað að hafa
lista í kjöri. Var kosið 31. jan-
úar og vann listinn mikinn sigur
og óvæntan, fékk þrjá menn
kjörna, þá Jörund Brynjólfsson,
Ágúst Jósefsson prentara og
Kristján V. Guðmundsson verka-
mann.
Af þessu má ráða, að hreyfing-
in var frá öndverðu tviþætt, enda
þótt samtökin væru aðeins ein.
Síðar var komið upp verlcamála-
ráði og stjórnmálaráði innan Al-
þýðusambandsins og 1930 var
fjárhagur aðskilinn milli þessara
deilda. Árið 1940 var loks skilið
á milli og Alþýðusambandið varð
hreint verkalýðssamband. en Al-
þýðuflokkurinn hreinn stjórn-
málaflokkur.
í fyrstu stjórn Alþýðusam-
bandsins voru þessir kjörnir:
Ottó N. Þorláksson, fyrsti forseti,
Ólafur Friðriksson, annar íorseti,
Helgi Björnsson, gjaldkeri og
Jón Baldvinsson, ritari. í vara-
stjórn voru kjörnir: Þorleifur
Gunnarsson, Jónas Jónsson frá
Hriflu og Davíð Kristjár.sson.
Á fyrsta fundinum var sam-
þykkt svofelld tillaga: „Þeir, sem
kosnir verða í stjórnina, mega á
meðan þeir eiga saéti í stjórn
ekki í neinu öðru pólitísku félagi
vera.” Sýnir þessi samþykkt bet-
ur en nokkuð annað, hvers konar
samtök frumherjarnir voru að
stofna.
Framhald á 15. síðu
Hátíðafundur í dag
í DAG kl. 1,30 e. h. hefst hátíðarfund ur í Iðnó í tilefni af fimmtíu ára af-
mæli Alþýðuflokksins. Dagskrá fundar ins verður á þessa leið: Emil Jónsson,
formaður Alþýðuflokksins, flytur ræðu, Gunnar Eyjólfsson les upp. Ávörp
erlendra gesta: Albert Carthy framkvæmdastjóri Alþjóðasambands jafnað
armanna, Erling Dinesen, verkamála ráðherra Danmerkur og Peter Mohr
Dam, formaður jafnaðarmannaflokks Færeyja. Sr. Sigurður Einarsson flyt-
ur frumort Ijóð. Ávarp: Forseti Samhands ungra jafnaðarmanna, Sigurður
Guðmundsson. Ragnar Jóhannesson cand. mag. flytur frumort ljóð.
Emil,
Dam,
Dinesen,
Carthy,