Alþýðublaðið - 12.03.1966, Qupperneq 2
•eimsfréttir
f..........siáasfliána nótf
★ SAIGON: Nguyen Chang Thi hershöfðingi. sem vikið var
úc starfi sínu sem yfirmað herfylkis í norðurhluta Suður-Viet-
nam í fyrradag þar eð hann hefur þrjózkast við að hlýða fyrirskip
-tinum st.iórnarinnar, átti í gær að halda til Quang Nggi og fá stjórn
-tierfylkisins hendur eftirmanni sínum, en i þess stað var hann
um kyrrt í Saigon. Thi herforingi er sakaður um tilraun til
aö gera herstjórnarumdæmi sitt, sem liggur að Laos og Norður
Vietnam, að sjálfstæðu ríki, og nýtur hann mikils fylgis meðal
ungra liðsforingja og Búddatrúarmanna.
MOSKVU: „Pravda“ hermdi í gær, að aðalritara kommún-
fistaflokksins í Armeníu hefði verið vikið úr embætti og fengið að-
Btoðarráðlierraembætti í raftækniráðuneytinu í Moskvu og hefur
tiokkurinn fyrirskipað baráttu gegn borgaralegu hugkerfi og þjóð
emisstefnu í Aimeníu. Erfiðleikarnir í armenska flokknum komu
6 Ijós á þingi er haldið var í síðustu viku til undirbúnings 23. þingi
sovézka kommúnistaflokksins í Moskvu í lok mánaðarins og sak
aði hinn nýi aðalritari, Anton Kosjinjan fyrirrennara sinn um
afglöp er hefðu haft neikvæð áhrif á þjálfun flokksmanna og að
vissu marki á málefni Armeníulýðveldisins. Ungt fólk hafi orð-
Sð fyrir áhrifum af röngum meginreglum er Armenía mimitist
jþess í apríl í fyrra að 50 ár voru liðin síðan Tyrkir myrtu 1.500.
000 Armena. *
PENKING: Margir hafa beðið hana í gífurlegum jarðskj'álfta
& þéttbýlu svæði í Norður-Kína. Tseng Chan innanríkisráð-
> tierra stjórnar umfangsmiklum björgunaraðgerðum. Engar upp
•lýsingar 'hafa borizt um manntjón eða eignatjón, en talið er
að' jarðskjáíftinn hafi átt upptök sín á svæðinu umhverfis borg
ina Singtai, sem hefur um 100.000 íbúa.
DAKARTA: Stúdentar í Djakarta efndu enn til mótmæla-
aögerða í gær, þrettánda daginn í röð, og ráðherrar urffu að ferff-
ast í þyrlum til fundar við Sukarno forseta, sem lýsti því yfir,
«ð þeir sem honum væru ósammála yrðu reknir úr stjórninni.
-€>essi fyrsti fundur hinnar endurskipulögðu stjórnar stóð í að-
eiús 20 minútur og hafði orðið að fresta honum vegna hinna
ofsafengnu mótmælaaðgerða. Reiffi stúdenta beinist enn sem
tfyrr gegn Kínverjum, sem hafa varað Indónesíustjórn við því,
aff óeirðirnar geti spillt sambúð landanna.
'BRÍÍSSEL: Heimildir í belgíska utanríkisráðuneytinu
tfiérma, að iiugsanlegt sé að tillaga Frakka um að aðalstöðvar
♦íATO verði ftuttar fhá ‘París verði tekin til athugunar á næst-
unni. Frétt um, að brezka stjórnin muni leggja til að aðalstöðvarn
«r verði fluttir til 'Brussel kemur Belgum ekki á óvart. Fastaráð
-tfNrATO hélt fúnd um málið í gær. Erhard kanzlari ráðfærði sig
við ráðherra sína og þingleiðtoga og brezka stjórnin ráðgast við
síjórnir NATO-landanna um tillögu De Gaulles.
-segir Dinesen, verkamálaráðherra Dana
Reykjavík, — EG.
Einn af erlendu gestunum, sem
liingað eru komnir í tilefni
50 ára afmælis Alþýðuflokksins er
Erling Dinesen verkamálaráö-
lierra Danmerkur. Alþýðublaðið
náði snöggvast tali af honum í
gærmorgun, en liann kom hingað
til lands á föstudagskvöld.
Talið barst að sjálfsögðu strax
að dönsku bæja- og sveitastjórn-
arkosningunum, en þar töpuðu
Jafnaðarmenn nokkru fylgi.
— Við vorum nokkurn veginn
vissir um að SF flokkur Aksels
Larsens mundi vinna talsvert á í
þessum kosningum, einkum í
stærri bæjunum, sagði Dinesen.
— Gömlu flokkarnir fjórir voru
búnir að koma sér saman um til
lögur til lausnar vandanum í liús
næðismálum, sérstaklega hvað á
hrærir leiguíbúðimar, og gegn
þessum tillögum barðist flokkur
Larsens ákaft og tókst að vinna
talsvert fylgi á þeim forsendum.
— í aðalatriðum gera þessar
nýju tillögur ráð fvrir, að hver
leiguíbúð verði metin að nýju,
og leigan ákveðin I samræmi við
matið. Þetta mun hafa það í för
með sér að hægt og hægt næstu
árin mun leigan á gömlu íbúðun-
um hækka nokkuð en leigan á
nýju fbúðunum lækka. Er því liér
-nokkurs konar verðiöfnun á ferð
inni. Þetta liefur það m. a. í för
með sér að mun 'betra lielldar-
skipulagi verður unnt að koma á í
þessum efnum, og nauðsynl. var að
gera einhverjar ráðstafanir, því
gömlu húsaleigulögin áttu að falla
úr gildi um mitt næsta ár. SF
menn börðust af mikilli hörku
gegn þessum tillögum, og Gallup
skoðanakannanir nokkru fyrir
kosningar sýndu að þeir mundu
ííklega vinna nokkuð á og vor
um við því viðbúnir nokkru tapi.
En við erum þeirrar skoðunar, að
'þessi atkvæði komi aftur, því það
mál sem barizt var um, er enn á
frumstigi og aðeins heildarstefn
an mótuð, eftir er svo að setja
margvíslega löggjöf um nánari á
kvæði. Fylgistap okkar í Kaup
mannahöfn var 2,5% og við reikn
um með að fá 80—90% þeirra at
kvæða aftur. Og minna má á,
sagði Dinesen, að í þingkosning
unum 1964 bættum við við okkur
áttatiu þúsund atkvæðum, þótt
samstarfsflokkur okkar í stjórn tap
aði og við yrðum því að mynda
minnihluta stjórn.
— Hvenær urðuð þér ráðherra?
— Ég hef verið ráðherra siðan
1963. Undir ráðuneyti mitt heyrir
öll löggjöf um atvinnumál, atvinnu
leysisstyrki, orlofsmál, vinnurétt-
Framhald á 15. slðu.
sdí'
Alþjóðaþing í Stokk-
hólmi í maímánuði
Rætt við Albert Carthy
Reykjavík — EG.
í maí verður lialdið í Stokk
fiólmi- þing Alþjóðasambands jafn
affarmanna, Socialist Iníernational
fifagöi Albert Carthy, affalritari sam
•xandsins, er Alþýðublaðið ræddi
við-hann í gær. Carthy er hingað
tfcominn til að vera viðstaddur há
tfiffahöldin í tilefni fimmtíu ára af
anælis! Alþýðuflnkksins.
— Þessi þing eru haldin þriðja
tfivertiór, sagði hann, og á þing
-tfnu í ár mun athyglin sérstaklega
tföeinast að þróunarlöndunum svo
-i'tfcöJIuðu og framkvæmd og við
#nngj lýðræðislegrar jafnaðar-
etefnu þar.
+-Við vonumst til að á þcssari
ráðstefnu gerist níu jafnaðar-
mannaflokkar aðilar að alþjóða-
sambandinu, en þá verða í því rúm
lega fimmtíu flokkar með um það
bii 13 milljón meðlimi. Þessir níu
flokkar, sem væntanlega ganga í
sambandið eru flestir úr þróunar
löndum Afríku og Suður-Amer-
íku, og fimm þcirra fara með völd
í ríkisstjórnum annað hvort einir
eða í samsteypustjórnum.
— Hvað er álitið að margir
einstaklingar séu í flokkunum, er
standa að Alþjóðasambandi jafnað
armanna?
— í síðustu frjálsu kosningum
fengu jafnaðarmannaflokkarnir
innan okkar vébanda um 68 milljón
ir atkvæða, og mun það fremur
vanreiknað en ofreiknað.
— Jafnaðarmannaflokkarnir
hafa breytzt talsvert frá upphafi
hélt Carthy áfram, í fyrstu voru
beir áróðursflokkar, ef svo má
seeia. þeir yildu giörbreyta flest.u
sem þá var við lvði og voru ekki
a'Isstaðar að minnsta kosti udd
teknir af stundarvandamálum. Nú
befur þetta breytzt. .Tnfnaðarmenn
bafa áunnið mjög mikið og nú
beinist athyglin framar öðru að
þeim sérstöku vandamálum, sem
við er að glíma í dag, húsnæðis
og atvinnumálum, alm. vclmeg-
Framhald á 15. sítfu.
2 12. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ