Alþýðublaðið - 12.03.1966, Page 3
Myndir fró hófínu í
Hótel Sögu i gærkvefdi
Myndirnar á þessari síðu eru allar teknar á
hinu velheppnaða hófi Alþýðuflokksfélaganna í
gær, er þau fögnuðu fimmtíu ára afmæli flokks
ins. Gestir flokksins voru þeir Peter Mohr Dam
frá Færeyjum, Dinesen frá Noregi og Carthy
frá Bretlandi.
Keykjavík, EG.
— SÍÐAN Alþýðuflokkurinn hóf baráttu sína fyrir réttum
fimmtíu árum, hafa ótrúlega framfarír orðið í íslenzkum atvinnu
og félagsmálum. Engan hefði þá órað fyrir, að jafnmikið mundi
vinnast á hálfri öld. Á þessa leið mælti Gylfi Þ. Gíslason, mennta
málaráðherra, varaformaður Alþýðuflokksins, í ræðu sinni í fimm-
tíu ára afmælishófi flokksins að Hótel Sögu í gærkveldi. Var
liófið geysifjölsótt, gestir eins margir og húsrúm frekast leyfði
og fagnaðurinn . alla staði hinn ánægjulegasti. Veizlustjóri var
Benedikt Gröndal alþingismaður og ritari Alþýðuflokksins.
— Auðvitað er ekki, allt gott,
sem síðan hefur gerzt Alþýðu-
flokknum eða verkalýðshreyf-
ingunni að þakka, sagði Gylfi
ennfremur í ræðu sinni. Árangur-
inn er fyrst og fremst að þakka
sameiginlegu átaki allrar þjóðar-
innar, allra stétta, lærðra og
leikra, ungra og gamalla. En á
engan mun þó hallað, þótt ég
segi, að í sögunni af íslenzkum
framförum af íslenzkum umbótum
á síðustu fimmtíu árum, er þátt-
ur Alþýðuflokksins glæsilegur.
Þær eru furðulega margar hug-
myndirnar um nýjar réttarbætur,
auknar hagsbætur, meira öryggi,
betri menningu, sem átt hafa upp-
tök sín í Alþýðuflokknum, — og
smám saman náð fram að ganga.
Ræða Gylfa er birt í heild á
öðrum stað hér f blaðinu í dag.
Afmælishátíðin hófst með borð-
haldi kl. 19,30 og voru borð eins
mörg og rúmuðust í liúsinu, en
eftir borðhaldið bættust allmarg-
ir gestir við. Þarna var miðstjórn
flokksins, framkvæmdastjórn, er-
lendir gestir, fjöldi Alþýðuflokks-
fólks úr Reykjavík og nærliggj-
andi byggðarlögum og sömuleiðis
flokksfólk utan af landi hingað
komið til að sitja hátíðafund
flokksstjórnar í tilefni afmælisins.
í hófinu sungu einsöng og tví-
söng óperusöngvararnir Sigurveig
Hjaltested, Guðmundur Jónsson
og Guðmundur Guðjónsson, einnig
var almennur fjöldasöngur og sung
in ættjarðarlög undir stjórn Guð-
.mundar Jónssonar. Þá fluttu
leikararnir Gunnar Eyjólfsson og
Bessi Bjarnason gamanþátt, — og
gerðu menn hinn bezta róm að.
Eftir að skemmtiatriðum og
borðhaldi lauk var dans stiginn til
klukkan tvö eftir miðnætti.
Eins og fyrr segir, fór þessi
fyrsti hluti afmælishátíðarinnar
mjög glæsilega fram, svo á betra
var varla kosið. í dag hefst klukk-
an 13,30 í Iðnó hátíðarfundur,
þar sem Emil Jónsson, formaður
Alþýðuflokksins og utanríkisráð-
herra mun flytja aðalræðuna, er-
lendir gestir munu flytja kveðjur,
forseti SUJ, Sigurður Guðmunds-
son flytur ávarp og flutt verða
frumort ljóð.
r
,
)
I
I
»•
V
ALÞÝÐUBLAÐIÐ1966 12. marz