Alþýðublaðið - 12.03.1966, Qupperneq 4
Rttatjór&r: Gylíl Gröndai (4b.) o* Benedlkt Gröndal. — Rltstí'ómarfull.
trúl: KlBur GuBnaaon. — Slmar: 14900-14903 — Auglýalngaslml: 1490«.
ASsetur AlþýBuhúslB vlÐ Hverflsgötu, Keykjavík. — PrentsmlBja AlþýBu
blsBslns. — Aakrlftargjald kr. 95.00 — 1 lausasölu kr. 5.00 elntaklO.
Utgefandl AlþýBuflokkurlnh.
Albýóusamband fimmfugt
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS er 50 ára í dag.
Það var stofnað í Bárubúð í Reykjavík 12. marz
1916. Þótti sá fundur verkalýðsforingja og jafn-
aðarma’nna ekki mikill viðburður, að minnsta
•kosti var hans ekki getið í fréttablöðum bæjarins.
En hálf öld hefur sýnt, hve sögulegur atburður þar
gerðist.
í dag er Alþýðusamband íslands orðið að vold-
ugum heildarsamtökum, sem hafa innan sinna vé-
banda meginþorra íslenzkra launþega. Þessi samtök
hafa í fimm áratugi haft forustu í baráttu íslenzkr
ar alþýðu fyrir sanngjörnum hlut af vaxandi þjóð-
arframleiðslu, fyrir betri kjörum og betra lífi. Verð-
ur ekki annað sagt, en ótrúlegar breytingar hafi
orðið á lífskjörum fólksins síðan 1916, enda eru þau
ríki veraldar fá, þar sem velmegun er jafn mikil
og almenn, þar sem öryggi hvers og eins er jafn
vel tryggt eða frelsi einstaklinganna stendur jafn
föstum fótum og hér. Allt þetta má að verulegu leyti
þakka starfi Alþýðusambands íslands og hinnar
pólitísku systurhreyfingar þess, Alþýðuflokksins.
Alþýðusambandið hefur átt við ýmsa erfiðleika
að stríða, þó engan eins hættulegan og pólitíska
sundrungu. Því miður hafa flokkadeilur oft á tíð-
um dregið úr mætti sambandsins til að vinna alþýð
•unni gagn. Ber að vona, að framundan sé meiri fé-
lagslegur þroski, svo að þróunin verði farsælli að
þessu Jeyti.
Alþýðublaðið þakkar Alþýðusambandinu langa
samferð og óskar því allra heilla á fimmtugsafmæl-
inu.
A fmæliskveðjur
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur notað fimmtugsafmæli
Alþýðuflokksins sem tilefni til að líta yfir farinn
veg, ræða atburði liðinna ára og reyna að benda á,
hvað læra megi af reynslunni. Ekki er við að búast,
að allir séu sammála þessum hugleiðingum, og
vissulega væri ánægjulegt, ef þær leiddu til um-
ræðna.
Þjóðviljinn og Tíminn virðast una þessum af-
m.ælisþönkum Alþýðublaðsins illa. í gær birtu bæði
þessi blöð hinn versta skæting í garð Alþýðuflokks-
ips, og var þó árás Þjóðviljans sýnu verri. Ritstjóri
þéss blaðs, sem kallar sig Austra, hefur oft verið
viðskotajllur í garð Alþýðuflokksins, en sjaldan eins
og í þessari afmæliskveðju. Tímarnir breytast og
njie'nninúr með, en komm.únistar hafa sýnilega ekk
ert kerli Qg, engu gleymt. Skyldi þet.ta ekki emmj,tt
vera -áúi^ða þess, að þeir eru margklofinn, hpign
andi flokkur í dag?
4 12. -marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Draumur fólks og veruleiki
ÞEBAR ÉG VAR BARN a« aldri
var enginn ellistyrkur tii, engin
sjúkrahjálp, engar fjölskyldúbæt
ur, enginn öryrkjastyrkur, enginn
stuðningur við húsnæðislaust fólk,
engar slysabætur, engar dánarbæt
ur( yfirleitt ekki nein þjóðfélags
leg hjálp. Það var aðeins ein
leið ef allt um þraut: að leita sveit
arstyrks. Þá var það næstum því
jafnmikið afbrot, að fara á sveit
ina, og að stunda sauðaþjófnað.
Munurinn var aðeins sá, að sauða
þjófar voru dæmdir lögformlega
en sveitarlimur var sviptur öll
um mannréttindum án dóms og
laga.
GAMALMENNI voru fjölmenn
í þeim hópi, en þar voru líka menn
á góðum aldri, foreldtar með
mikla ómegð og eða veikindi á
öðru hvoru þeirra. Ekkjurnar voru
margar og það fylgdi mannrétt
indasviptingunni, að heimilunum
var tvírtrað, börnin boðin niður
en móðirin réðst í vinnumennsku
með það yngsta eða tvö þau
yngstu. Ég hef hlustað á þúsund
sögur af ævi þessa fólks.
ÞEGAR ÉG VAR BARN A«
I aldri var verkalýðshreyfingin að
, myndast. Vísir hennar ákaflega
i veikur og smár. Allir helztu mátt-
arstólpar þjóðfélagsins litu á hana
sem félagsskap afbrotamanna og
beittu hana vopnum samkvæmt
þeirrj skoðun. Þeir sem gerðust
svo djarfir að tala máli hennar
varu sviptir vinnu, reikningum
lokað í .verzlunum, jafnvel neitað
að ferma börn þeirra. Þá var
verkamaðurinn réttlaus og sjómað
urinn og verkakonan, allir sem
ekkj áttu fasteign.
GEGN ÖLLU þessu reis Al-
þýðuflokkurinn. Fyrir öllu þessu
barðist íhaldið. Hann reis með
fólkinu í baráttu þess fyrir nýj
um tímum, breyttu þjóðfélagi, fyr
ir mannréttindum, mannúð og
líkn. Gegn ölium þessum baráttu
málum barðist. íhaldið, gerði allt
sem í bes« valdi stóð til bess að
halda því ástandi, sem ríkt hafði
En bað lét undan síga, Aibvðu
flokkurinn ruddi leiðina, hinir
urðu nauðugir viijugir að fyigja
í slóðina.
HVERS VEGNA? Vegna bess,
að stefna Alþýðflokksins var stefna
nýs tíma, sem var að koma yfir
þjóðina. Vegna þess( áð Alþýðu
flokkurinn túlkaði í einu og öllu
drauma fólksins. Og þeir hlutu að
sigra. Þetta er eins og ævintýri.
Ég lief verið í Alþýðuflokknum
í 47 ár af hálfrar aldar ævi hans,
og ég hef haft tækifæri til þess
að fylgjast mjög vel með. Draum
arnir hafa rætzt og þróunin helij
ur áfram.: Nú síðast taka allip
flokkar einum rómi undir tillögu
Alþýðuflokksins um líeyrissjóð
handa öllum landsmönnum.
ALÞÝÐUFLOKKURINN er ekki
stór flokkur að höfðatölu, en han1*
’er stór og voldugur í sögunni og
verður æ stærri eftir því sem tím
ar líða. Maður spyr ekki að lokum
að stærð fylkingarinnar heldur af
rekum og starfi. Hann hefur orð-
ið að ganga gegnum margvísleg
ar þrengingar alveg eins og flest
albýðuheimili, en hann hefur
aldrei skort kiark eða framtak.
Þeir sém hafa sundrað fylk-
ingum hans, hafa alltaf haft
rangt fyrir sér. Það sann-
ar revnslan. S.iónarmið Alþýðu-
flokksins hafa reynzt rétt í öllu
Framhaid á 15. «íðu.
Norourlandasiglingar mjs Heklu 1966
Frá Reykjavík 11/6 25/6 9/7 23/7 6/8 20/8 3/9
Til/frá Þóra|höfn. 13/6 27/6 11/7 25/7 8/8 22/8 5/9
Til-frá Bergen 14/6 28/6 12/7 26/7 9/8 23/8 6/9
Til Khöín 16/6 30/6 14/7 28/7 11/8 25/8 8/9
Frá Khöfn 17/6 1/7 15/7 29/7 12/8 26/8 9/9
Til/frá Kristansand 18/6 2/7 16/7 30/7 13/8 27/8 10/9
Til/frá Þórshöfn 20/6 4/7 18/7 1/8 15/8 29/8 12/9
Til Reykjavíkur 22/6 6/7 20/7 3/8 17/8 31/8 14/9
Umboðsmenn :
C. K. Hansen, Amaliegade 35, Köbenhavn X. Símn. Hansen. Sími:
Central 72.
F. Reinhardt & Co., Venstre Strandgade 12, Kristiansand S. Sími.
Hard. Sími: Central 15540.
C. A. Gundersen A/S, Kjöbmandsstuen, Bryggen, Bergen. Símn.
„Cagsped“. Sími: 17650.
Hans Jakob Johannesen, Thorshvn. Símn. Ha'nsjacco. Sími: 1835.
Athugið, hvort þessar ferðir ekki henta yður vegna fólks eða vöru-
flutninga.
Hringferðir mjs Esju sumarið 1966
Frá Reykjavík mi. 1/6. fö 10/6, má. 20/6, mi. 29/6, fö. 8/7, má. 18/7, mi. 27/7,
fö. 5/8, má. 15/8, mi. 24/8, fö. 2/9, má. 12/9.
Svo sem sjá má eru ferðir þessar á 9—10 daga fresti yfir sumarið,
og tekur hver ca. 7 daga. Komið er á ca. 25 hafnir í hverri ferð og
venjulega er boðin þátttaka í kynnisferðum upp á Fljótsdalshérað
og Mývatnssiveit.
Nefndar hringferðir veita óvenjulega góð tækifæri til kynna af
landi og þjóð á skömmum tíma, og er það samróma álit flestra
innlendra og erlendra farþega, sem reynt hafa.
Skipaútgerð ríkisins
REYKJAVÍK . Sími 17650