Alþýðublaðið - 26.03.1966, Qupperneq 1
Laugardapr 26. marz - 46. árg. — 71. tbl. - VERÐ: 5 KR
„HIN
VAR
LEIÐIN
YFIRGEFIN
í útvarpsumræðunum í gærkvöldi
— Níiverandi ríkisstjórn beitti
sér fyrir gagngerri breytingu í
efnahagsmálum á fyrsta starfsári
sínu, 1960. Þá var lagt út á nýja
braut, og „hin leiðin” sem áður
hafði verið farin var yfirgefin.
Á þessa leið mælti dr. Gylfi Þ.
Gíslason viðskiptamálaráðherra í
upphafi ræðu sinnar í útvarps-
umræðunum í gærkvöldi. Gylfi
kom mða við í ræðu sinni og
fjallaði þar meðal anars um efna-
hagsmálaþróunina undanfarin ár,
verðbólguna, og það vandamál,
sem offramleiðsla landbúnaðaraf-
urða nú er orðin hér á landi.
Gylfi sagði, að síðastliðin fjög-
ur ár hefði þjóðarframleiðslan
aukizt um 6—7% á ári og fram-
leiðslan á mann um 4—5%, en
þetta er langmesta aukning þjóð-
arframleiðslunnar, sem nokkurn
tíma hefur átt sér stað á íslandi,
og jafnframt meiri vöxtur en dæmi
eru til um í nálægum löndum á
þessu sama tímabili. Auðvitað
ætti mikil aflaaukning sinn þátt
i þessari aukningu, en því færi
þó fjarri, að hún væri eina skýr-
ingin, sagði Gylfi, og það kom
—fram í ræðu hans, að árin 1956
—59 var vöxtur þjóðarframleiðsl-
unnar aðeins 3% á árin eða um
1% á mann.
vinnutekna verkamanna, sjó-
manna og iðnaðarmanna i þjóðar
tekjunum hefði farið vaxandi und-
anfarin ár og verið liærri en nokk
ur önnur ár síðan 1948, er skýrsl-
ur um þetta efni voru fyrst gerð-
ar. Er þá undanskilið árið 1959,
er um skamman tíma sköpuðust
Framhalð á 14. síðu
N
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
LAXNESS Á ÆFINGU
Æfingar á leikriti Laxness Prjónastofan Sólin, sen'i
Þjáðleikhúsið frumsýnir um miðjan næsta mánuð, eru í
fullum gangi. Laxness fylgist sjálfur með þeim og er leik-
stjóranum, Baldvin Halldórssyni, til aðstoðar við uppfærsl
una. Alþýðublaðið fékk í gær leyfi til að líta inn á æfingu
og frásögn af því birtist á þriðju síðu. Á myndinni hér að
neðan sjást höfundurinn og Ieikstjórinn ræðast við.
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
- sagði Gylfi Þ. Gíslason
Um skiptingu þjóðarteknanna,
sagði ráðherrann, að hlutur at-
GYLFI Þ. GÍSLASON
Ræða Eggerts G. Þorsteinssonar í útvðrpsumræðunum:
SIÖRK0STLE6 UPPBYGG-
SJÁVARÚTVEGINUM
Reykjavík. — EG.
— Heildarfjárfesting í fiskveið-
um og fiskvinnslu frá 1959 er 3158
milljónir króna.
— Á þessu tímabili hefur fiski-
skipaflotinn aukizt um 20 þúsund
lestir.
— Vélbátum yfir 100 rúmlestir
hefur fjölgað um 123 síðan 1959.
— Á sama tíma hefur afkasta-
geta frystihúsanna aukizt um 25%.
— Frá því 1959 hafa bræðsluaf-
köst síldarverksmiðja aukizt úr
70 þúsund múlurn í 120 þúsund mál
á sólarhring, og þróarrými verk-
smiðjanna hefur vaxið um tæplega
helming.
— A árunum 1960—1964 jókst
útflutningur sjávarafurða úr 2650
milljónum króna i 4384 milljónir.
— Heildaraflamagnið 1959 til
1965 jókst úr 400 þúsund smá-
lestum í 1100 þiisund smálestir.
Frá þessum staðreyndum um
EGGERT G. ÞORSTEINSSON
sjávarútveg íslendinga skýrði
Eggert G. Þorsteinsson sjávarút-
vegsmálaráðherra í ræðu sinni í
útvarpsumræðunum í gærkvöldi.
í upphafi ræðu sinnar rakti
Eggert fyrst neikvæða afstöðu
stjórnarandstöðunnar til allra
mála, sem hefði þau áhrif, að
stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu
ýmist engin eða vart merkjanleg
áhrif á gang jákvæðra framfara-
mála.
Síðan sagði ráðherrann: „Ríkis-
stjórnin hefur talið það skyldu
sína, að kanna til hlítar hugsan-
lega möguleika til varanlegri
tryggingar atvinnu í landinu og þá
fyrst og fremst með það í huga
að hagnýta jafnframt þá mögu-
leika, sem felast óbeizlaðir í auð-
lindum landsins.”
Þegar staðreyndir þess máls
lægju fyrir teldu stjórnarandstæð-
Framliald á 15. síðu
VANTRAUSTIÐ
VAR FELLT
ER útva^psumræðunni um vantraustið lauk um miðnætti
siðastliðna nótt fór fram atkvæðagreiðsla um þessa tillögu
Framsóknarmanna og kommúnista.
Vantrauststillagan var felld að viðhöfðu nafnakalli. 32
bingmenn greiddu atkvæði gegn henni, 27 studdu tillöguna. en
einn var f jarstaddur.
Allur málflutningur stjórnarandstöðunnar í útvarpsumræð-
vnum í gærkvöldi einkenndist af niðurrifsvæli og eymdarsöng
og mátti vcni greina hvorir báru sig verr Framsóknarmenn eða
kommúniste.r.
UWUWWWWtWMMUWWMMMWiWWWWWiVWWWt