Alþýðublaðið - 13.04.1966, Síða 5
Sviðsmyndir úr Elsku Rut. Talið frá vinstri: Kristjana, Svava, Edda og Ester.
Elsku
Rut á Seltossi
ELSKU RUT
á Selfossi.
Leikstjóri:
Bjarni Steingrímsson.
FIMMTUDAGINN 31. marz frum-
Sýndi Leikfélag Selfoss „Elsku
Rut” í Selfoss-Bíó fyrir fullu húsi
við fögnuð og frábærar móttökur
leikhúsgesta. Þetta er gamanleik-
ur í tveimur þáttum, en fleiri at-
Bernharðs Hannessonar
Suðurlandsbraut 12.
Sími 35810.
Brauðhúsið
Laugavegi 126 — i
Sími 24631
★ Allskonar veitingar.
★ ■ Veizlubrauð, snittur.
★ Brauðtertur, smurt
brauð
Pantið tímanlega-
Kynnið yður verð
og gæði.
riðum, eftir ameríska leikrita-
skáldið Norman Krasna.
Leikfélag Selfoss hefur mörg
undanfarin ár verið all athafna-
samt — og sjaldan valið sín við-
fangsefni af verri endanum. Svo
eitthvað af viðfangsefnum félags-
ins sé nefnt, skulu tilgreind
nokkur:
Kjarnorka og kvenhylli
eftir Agnar Þórðarson;
Ljúfa Maren, norskt stykki,
þýtt af Kristm. Guðmundssyni;
Galdra-Loft og Fjalla-
Eyvind eftir Jóh. Sigurjónss,.
Víxla með afföllum,
eftir Agnar Þórðarson;
Jeppa á Fjalli
eftir L. Holberg;
Logann helga
eftir Somerset Maugham.
Af þessu má sjá að félagið hef-
ur færzt nokkuð í fang á stund
um, en jafnan hefur félaginu tek-
izt að skila sínu af mestu prýði,
enda notið hinna beztu leikstjóra
í starfi sínu. Uppfærzla og sýn-
ingin á Elsku Rut ber þess glögg
merki, að leikstjórinn hefur ekki
svikizt undan í starfi.
Sýningin var furðu heilsteypt,
og alveg sérstaklega þegar þess
er gætt að þarna voru að verki
ýmist algerir nýliðar eða lítt
sviðsvant fólk.
Það er vissulega glöggt lífs-
merki í félaginu: hið unga fólk
er þarna kom fram á vegum fé-
lagsins.
Hlutverk í Elsku Rut eru tíu.
Frú Wilkins lék frú Svava Kjart-
ansdóttir, en hverju hlutverki er
vel borgið í hennar meðferð og
svo var enn að þessu sinni: Hr.
Wilkins dómara lék Kristján Jóns-
son, ungur maður og að ég ætla
fullkominn nýliði. Það virðist ó-
hætt eftir þetta hlutverk hans, að
spá því, að hann verði þess megn-
ugur er stundir líða að skila fleiri
hlutverkum fyrir félagið með
fullum sóma.
Elsku Rut er leikin af frú
Eddu Hólm. Mér er ekki kunn-
ugt annað en hún sé lítt eða
ekki reynd á sviði, en vel skilaði
hún sínu hlutverki, sem þó er
alls ekki vandalaust. Yngri syst-
ur í leiknum, Mirjam lék frk.
Ester Halldórsdóttir.
Þetta er ærslafengin og upp-
átektarsöm unglingsstelpa reglu-
legur táningur, en Ester fataðist
ekki í hinum furðulegustu tiltekt-
um. Hún lék ungu frúna í Log-
anura helga nú í haust, og gat ég
þess til að hún mundi geta sýnt
okkur fleiri en eina hlið á sin-
um hæfileikum og reyndist svo
hér.
William undirforingja lék
Gunnar Einarsson skemmtilega
eðlilega og öruggt.
Albert Krummer lék Jón Hólm.
Þetta er töluvert vandmeðfarið
hlutverk, þar sem þar kemur til
ást, afbrýði og ýmis vandræði í
sambandi við allt þetta. En Jón
skilaði sínu fullkomlega, eins og
vænta mátti, og var verulega eðli-
legur í viðbrögðum hinna vand-
ræðalegu atvika er fyrir komu.
Jón Hólm er nýfluttur að Sel-
fossi með sína gullsmiðavinnu-
stofu, og má fullyrða að Leikfé-
laginu sé verulegur fengur að því
að fá þessi hjón til starfa.
Það er ekki sízt Jóni Hólm að
þakka ásamt ágætum framkvæmda
stjóra, frú Áslaugu Símonar-
dóttur að svo örugglega og fljótt
tókst að æfa og sviðsetja þetta
annað viðfangsefni félagsins á
þessu leikári.
Hin smærri hlutverk leiksins
skiluðu sér ágætlega, og er óhætt
að óska Leikfélagi Selfoss til
hamingju með þá starfskrafta er
þarna komu fram margir lítt eða
áður óreyndir. Góða ferð til hinna
ýmsu sýningarstaða. Þökk fyrir
ánægjulega sýningu. — C.J.
Barnaleiktæki
★
Íþrótíatæki
Yélaverkstæði
Aðalskoðun
bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavíkur árið 1966 fer
fram við hús Sérleyfisbifreiða Keflavíkur dagana 12.
apríl til 10. maí n.k. kl. 9—12 sem hér segir: og kl, 13—16:30, svo
Þriðjudaginn 12. apríl Ö- 1 til 100
Miðvikudaginn 13. apríl 0-101 — 150
Fimmtudagirin 14. apríl 0-151 — 200
Föstudaginn 15. ápríl Ö-201 — 250
Mánudagihn 18. apríl Ö-251 — 300
Þriðjudaginn 19. apríl Ö-301 — 350
Miðvikudaginn 20. apríl Ö-351 — 400
Föstudagirin 22. apríl Ö-401 — 450
Mánudaginn 25. apríl 0-451 — 500
Þriðludaginn 26. apríl Ö-501 — 550
Miðvikudaginn 27. apríl Ö-551 — 600
Fimmtudaginn 28. apríl Ö-601 — 650
Föstudaginn 29. apríl Ö-651 — 700
Mánudaginn 2. maí Ö-701 — - 750
Þr.'ðjudaginn 3. maí Ö-751 — 800
Miðvikudaginn 4. maí Ö-801 — 850
Fimmtudaginn 5. maí Ö-851 — 900
Föstudaginn 6. maí Ö-901 — 950
Mlánudaginn 9. maí Ö-951 — 1025
Þriðiudaginn 10. maí Ö-1026 og þar yfir
Sömu daga verða reiðhjól með hjiálparvél skoðuð.
Við fkoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku-
skírteini, sýna ber og skilriki fyrir því, að bifreiða
skattur og vátryggingargjöld ökumanna fyrir árið 1966
séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé
í gildi. — Hafi gjöld þessi ekki verið greidd verður skoð
un ekki framkvæmd og bifreiðin tekin úr umferð þar
til gjöldin eru greidd. Ennfremur ber að sýna ljósa-
stillingarvottorð.
Kvittun fyrir greiðslu afnotagjalds útvarpstækis í bif-
reið ber að sýna við skoðun.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
réttum degi, ‘án þess að hafa áður tilkynnt skoðunar-
mönnum lögmæt forföll með hæfilegum fyrirvara, verð-
ur hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum
og lögum um bifreiðaskatt og bifreið hans tekin án
fyrirvara, hyar, sem til hennar næst.
Bæjarfógetinn í Keflavík
31. marz 1966.
Aða/fundur
Aðalfundur Líftryggingafélagsins Andvöku
verður haldinn á Blönduósi þriðjudaginn
10. maí 1966 kl. 1.30 e.h.
Dagskrá: Venjuleg 'aðalfundarstörf.
Stjórnin.
SKARPAR
FILMUR
GEFA
BEZTAR
MYNDIR
NOTIÐ
/diVJJAá
FILMUR
AGFA-GEVAERT
il
(
i
f
i
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. apríl 1966 5
1