Alþýðublaðið - 13.04.1966, Qupperneq 15
Hjónaskilnaðir
Framliald úr opnu.
skyldunnar, og ótryggð at henn
ar hólfu er talin afbrot, sem
sækja má hana til saka fyrir
•og- jafnvel dæma í fangelsi, en
(það sama gildir ekki um etgin-
manninn. Sérstaklega er þetta
lagaboð ómanneskjulegt, þegar
hjón eru skilin að borði og
sæng. Lögskilnaður þekkist
ekki á Ítalíu, t.d. fær kona ekki
•skilnað frá manni, sem gerist
sekur um afbrot. Hún getur að-
eins íf^ngið skiinað að borði
og sæng og auk iþess fjárhags-
stuðning, foreldravaldinu er
skipt o.s. frv. En hún getur ekki
gift sig aftur , — og fái hún
sér elskhuga getur hinn að-
skildi eiginmaður sigað lögregl
tmni á hana. Þess konar tilfelli
eru algeng á Suður-Ítalíu.
Því er það mjög mikið rætt
é Ítalíu, hvernig megi afla sér
lögskilnaðar — en ekki jafnrétti
eða kynferðismálin.
Húsmæ-Sur
Framhald af síðu .6.
frá fimm mánuðum upp í tvö ár,
og veittur er sams konar skatt-
frjáls styrkur til þeirra, sem þau
sækja.
Árið 1961 voru 16000 þátttak-
endur á þessum sérnámskeiðum
— sem t. d. henta mjög vel ein-
stæðum mæðrum, sem gjarnan
vilja komast í betri atvinnu —
og árið 1964 voru þátttakendur
komnir upp í 16 000. Námskeiðin
eru haldin á vegum hinna ein-
stöku bæjarfélaga í samvinnu við
ráðningarskrifstofur og atvinnu-
fyrirtækin, sem vita hvar mest er
þörfin.
Hanpes á horninu
Framhald af 4. síðu.
Vetri. Og nú eru lcomnar fallgryfj
ur í Miklubraut að minnsta kosti
á einum stað. Bifreiðar aka hratt,
sveigja svo allt í einu til þess að
forðast holurnar en við það mynd
ast hætta á árekstrum og hef ég
orðið vottur að því, að litlu hef-
ur munað. Þetta þarf að laga í
dag. Það má ekki draga-t.
Á PÁSKAD AGSKV ÖLD var
sagt, að Gullfoss kæmi upp að
næsta morgu.n kl. 8. Fólk fóir
niðureftir. en þá lá Gullfoss enn
út á en Akraborgin kúrði í krókn
um. Hún fór ekki fvrr en kl. 9.30
og fyr gat Gullfocs ekkj komizt
upp að. Þet+a má ekki koma fyrir.
Vitanlega hefur Eimskip og enn
fremur Fafnarskrifstofan vitað
þetta kvöldið áður.
lack London
Framhald af 6. síðu
fram, „fyrir O'Henry væru þær
stórkostlegar“. Á bak vi;S þess-
ar skorinorðu og praktísku at-
hugasemdir býr sú sannfæring
og trú Jack Londons, að ekki sé
til að dreifa neinum andlegum
einkaeignarrétti, heldur afnota-
rétti, sem byggist á persónuleika
hvers og eins.
LEIÐRÉTTING:
í afmælisgrein Grétars Fells
jum ö.inu Kri tjánsdóttur í síð-
asta blaði var hún sögð vera fróð
kona og fönguleg, en átti að vera:
fríð kona og fönguleg.
Þorði ekki
Framhald af 1. síðu
að Ragnar Arnalds alþingismað
ur myndi taka að sér framsögu
um málið á fyrirhuguðum fundi.
3. Stúdentafélagið hafði frá önd
verðu óskað þess að ræðumaður
yrði akademískur en ekki alþing
ismaður, og var það í samræmi við
hugmyndina um málefnalegan
fund.
4. Þegar það því þótti sýnt, að
erfitt yrði að halda umræðum á
fundinum hreinum og málefnaleg
um ,en fremur mætti búast við
að þar yrði þyrlað upp pólitísku
moldviðri, ákvað stjórn Stúdenta
félag ins að hætta við fundarhald
þetta, enda höfðu og í millitíð
inni farið fram óvæntar útvarps
umræður, sem snerust að mest’-
eða öllu leyti um þetta fyrirhug
aða fundarefni félagsins.
Reykjavík, 12 april 1966.
F.h. Stúdentafélags Reykjavík-
ur Aðalsteinn Guðjohnsen (sign).
Kvikmynd
Framhald af síðu 1.
arann sem kemur til með að leika
Hagbarð. Sagði hann að ekki yrði
til sparað að gera mynd þessa sem
bezt úr garði. Hann hefur sjálfur
samið tökuhandritið en skáldið
Frank Jæger textann. Er hand
ritið byggt á kvæði um Hagbarð og
Signýju, sem danski sagnaritarinn
Saxi skráði á 12. öld. Saga þessi
er einnig til í riddarasögum, skráð
um á íslandi.
Fimmtán leikarar fara með hlut
verk í myndinni, auk stadista.
Leikararnir eru af ýmsu þjóðerni.
Eins og áður er sagt leikur Rússi
Hagbarð, en önnur hlutverk verða
í höndum danskra, norskra,
sænskra og íslenzkra leikara. Þá
verða um tuttugu íslenzkir hest
ar í myndinni og einn úlfur, sem
að sjálfsögðu verður fluttur inn.
Sænjiki arkifektinn ^undgrem
teiknar húsin sem notuð verða og
búninga. Tveir kóngsgarðar verða
reistir hér annar á Suðurlandi
og hinn á Norðurlandi. Eru þeir
smíðaðir í Danmörku og fluttir
hingað í flekum og settir saman
á þeim stöðum sem myndin verð
ur tekin. Og svo þarf að flytja inn
stórt eikartré þar sem Hagbarður
hengir sig í mvndarlok. Geta má
þess að Lundgren hefur teiknað
búninga og leikbúnað í öllum kvik
myndum Inemars Bergmanns.
Kvikmyndatökumaður verður
Henning Bendsen. Meðal mvnda
sem hann hefur unnið að er Ger
trud. sem Dreyr stjórnaði og sýnd
var hér í fyrra.
Kvikmýndin um Hagbarð og
Signvju verður tekin í litum og
cinema~cone. Kvað Gabriel Axel
Llenzkt landslag miög vel fallið
til sl’krar mvndatoku. Reynt verS
ur að hofa alla liti myndarinnar
mjög demnaða oe sama er að segia
um iénlist og leikbrögð. Myndin
á ekki nð gerast á neinum ákveðn
um tima eða í ékveðnu landi. held
ur einhwrc! staðar á Norðurlöndum
á miðötdnm.
Myndatakan hérlendis á að
standa yfir í þriár vikur og síð
an álíka langan tíma í Stokkhólmi
Á hún að verða tilbúin fyrir jól
og verður frumsvnd í liöfuðborg
um allra Norðurlandanna samtím
is.
Sett verður inn á myndina
danskt, sænskt og norskt tal og
ef til vill einnig íslenzkt og rússn
eskt tal.
Flugfélagið
Framhald af S. síðu.
Auk venjulegra áætlanaferða til
útlanda hafa tvær af millilanda-
flugvélum félagsins verið með
ferðamannahópa í Suður-Evrópu.
Þá fór ein flugvél til Grænlands
um páskana.
Fóstbræður
Framhald af síðu 3
Björnsson sem bæði eru ráðin við
Stuttgart óperuna, og Erlingur Vig
fússon og Ragnar Björnsson, sem
báðir eru við framhaldsnám í
Köln. Kemur listafólkið hingað
upp eingöngu í þeim tilgangi að
syngja á þessum afmælistónleik-
um. Nánar verður sagt frá Fóst-
bræðrum síðar.
Körfubolti
Framhald af 11. síðu
92:47. Beztur íslendinga var Birg
ir Birgis með 12 stig, einnig voru
Þorsteinn með 12 stig, og Einar
Matt með 12 stig. Beztan varnar-
leik átti þó Agnar er hirti mikið
af fráköstum og skoraði 7 stig.
Dómarar: Óskar Pettersen og Dan
Christiansen.
Síðan léku Danmörk og Noregur
til úrslita um 4. sætið. Þann leik
dæmdi Guðjón Magnússon, en auk
þessa leiks dæmdi Guðjón 4 aðra
leiki.
Upphaflega átti Guðjón að dæma
úrslitaleikinn, en vegna veikinda
Svíans, sem átti að dæma Danmörk
— Noregur varð Guðjón að dæma
fyrir Svíann en þar sem úrslita-
leikurinn var strax á eftir dæmdu
tveir Danir þann leik.
Noregur átti góðan fyrrihálfleik
gegn Danmörku og leiddu Danir
aðeins með einu stigi í hálfleik
30:29 Sðari hálfleikinn áttu Danir
hins vegar og sigruðu 50:73.
Úrslitaleiksins Svíþjóð — Finn-
land var beðið með mikilli eftir-
•væntingu. Töldu Svíar sig eiga
sigurinn vísan út af hæðarmism. á
liðunum. Voru Finnar nokkuð ó-
styrkir þrátt fyrir sigra á tveim
fyrri Norðurlandamótum enda með
mjög ungt lið aðeins þrír af þeim
leikmönnum sem léku á síðasta
móti voru nú með. En er leikurinn
hófst var annað uppi á teningnum
en við var búizt. Stórkostlegri leik
hefur undirritaður ekki séð. Áður
en varði voru Finnar komnir í
13:3 og síðan 24:5. Var þetta leikur
músarinnar að kettinum og sann-
kallaður sigur tækni og hraða og
hugsunar yfir stærð og hörku.
Virtist lítt stoða hjá Svíum að
gefa á risana því svo leiftursnöggir
voru hinir smávöxnu Finnar að
slá boltann frá þeim að risarnir
voru varla búnir að taka fyrsta
skrefið aftur í vörnina áður en
Finnar höfðu skorað. í hálfleik stóð
41:16 og lauk leiknum 84:62.
Voru Finnar þar með orðnir
sigurvegarar í Polar Cup 1966.
Fóru síðan fram mótslit þar sem
íslendingar fengu bronzverðlauna
peninga fyrir 3. sætið. Hef ég mí
lokið pistli þessum um leikina enj
síðar mun ég skrifa um helldarí
úrslit og framkvæmd mótsins. \
}
Fréttasyrpa
Framhald af 3. síðu.
byggja 3 báta í Noregi, stærá
þeirra er 250—300 smálestiri
Eigendur bátanna eru Ölveá
Guðmundsson, SíldarvinnslanJ
Sveinbörn Sveins on o.fl. Hrognj
kelsaveiðin er að hefjast og er’
allt útlit fyrir^ að sá veiðiskap
ur sé að aukast mjög.
Annars taldi fréttamaður okk.
ar á Norðfirði helzt umræðu-
efni manna vera pólitík þessa-
dagana og þó nokkurn hita í’
umræðum. j
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. apríl 1966 15,