Alþýðublaðið - 27.04.1966, Side 8

Alþýðublaðið - 27.04.1966, Side 8
Söfnun er lærdómsrík Eins og frá hefur verið skýrt áSur, var nýlega opnuð sýning á náttúrugripum að Fríkirkjuvegi 11. — Sýningin er aðallega ætluð til að vekja áhuga barna og ungl inga á söfnun náttúrugripa, sagði einn af fjórmenningunum, sem að sýningunni standa, Pétur Hólm, er við iitum þar inn nýlega og forvitnuðumst nánar um sýning una. — Við erum fjórir, sem stönd um að þessari sýningu, en 11 aðilar eiga muni á sýningunni, segir Pétur. — Hér eru steinar, skeljar, sjávardýr, blóm, þörung- ar og skordýr svo eitthvað sé nefnt, auk þess gamlar og nýjar náttúrufræðibækur. — Og eru allir gripirnir ís- lenzkir? — Já, þeir eru það. — Hvað álítig þið merkilegast hérna? — Það er allt merkilegt. Hér eru til dæmis kuðungar undan Breiðamerkurjökli og milljón ára gamlar skeljar frá Tjörnesi, 50 milljón ára gamall surtarbrandur, ppalar úr Vatnajökli og dreka- skelin sem Jón Bogason fann, en drekaskeljar eru mjög sjaldgæf ar hér. — Var ekki mikil vinna að koma safninu fyrir? — Jú, það var mikii vinna, við unnum við þetta langt fram á kvöld siðustu vikuna fyrir sýn- inguna. — En hvað þetta eru skemmti legir sýningarkassar, sem hlutirn ir eru í. — Já, þeir eru mjög góðir. Þessir stóru kassar eru frá fyrstu iðnsýningunni, sem haldin var á íslandi, árið 1911. Veggkassarnir eru aftur á móti nýir, þá hefur Andrés Valberg smíðað. — Hefur ekki verið góð aðsókn að sýningunni? — Jú, mjög góð. Á sunnudag- inn komu t.d. á 5. hundrað manns. — Er sýningin í samráði við æskulýðsráð? — Já, að vissu leyti. Og þeir lánuðu okkur húsið að kostnað- arlausu. — Hyggið þið ekki á fleiri sýn ingar? — Jú, við vonumst til að halda sýningar einu sinni á ári, og gjarnan viljum við þá, að börnin takj þátt í þvf að sýna líka. Næst er ætlunin að sýna allt, sem hægt er að gera með hlutina, t.d. slíp aða steina og alls konar muni úr skeljum og margt fleira. — Hafig þér stundað lengi söfn un? — Nei, ég hef stundað söfnun áðeins í tæp þrjú ár. — Og safnað einhverju sérstöku t.d. steinum? — Já, ég safna að ví'u steinum, en ef maður safnar hlutum úr náttúrunni, þá er allt svo fallegt og dásamlegt, að mörgu er safnað. En f söfnuninni verður að gæta þess að skemma sem minnst í n/|t úrunni og ekkert að deyða að ó- TEXTI: ANNA BRYNJÚLFSDÓ7TIR MYNÐIR: JÓHANN VILBERG Ekki er að efa, að margir hafa áhuga á að sjá sýninguna að Frí kirkjuvegi 11, enda er þar margt fallegt og fróðlegt að sjá. Meðan Náttúrugripasafn ís- Petur Polni: Vil]um fa bormn Hl ao syna hka þörfu. Varðandi börnin og ungl- ingana vil ég segja það að söfn un nátt'úrugripa hefur þroskandi áhrif á þau og mjög gott er fyrir þau að sjá hlutina, en ekki aðeins að kynnast þeim af bókum. Og að lokum vil ég segja það, að við fjórmenningarnir vonum, að sem flest börn og unglingar muni snúa sér til okkar með leiðbeiningar um söfnun, og munum við fús lega veita þær. lands er ekkj opið hlýtur sýn ing 'sem þessi að vera vel þeg in og hvort sem væri. Og virðist mjög vel hæfa að halda sýn- inguna einmitt í husi Æskulýðs ráðs Reykjavíkur, þvi að þó allir ha^i gagn og ánadgju af' Framh. á 14. síðu. Úr steinasafni Drengurinn horfir með áhuga á munina g 27. apríl 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.