Alþýðublaðið - 27.04.1966, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 27.04.1966, Blaðsíða 13
Þögnin Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7 og 9. K.Ó.fiAMd.c.SBÍ.O IVEarnie Spennandi og sérstæð ný lit- mynd, gorð af Alfred Hite.hcock með Tippi Hedren og Sean Conn ery. íslenzkur texti. Sýnd kl. 5 og 9. Hækkað verð Bönnuð innan 16 ára. SMURT BRAUÐ Sími 41985 Konungar sólar- innar. (Kings of the Sun.) Stórfengleg og snilldarvel gerö ný, amerísk stórmynd < IHuro og Panavison. Yul Brynner Sýnd aðeins ki 5. Bönnuð <nnan 12 ára sagði hún og kyssti Deborah á kinnina. — Þakka þér fyrir vina mín. Ef til vill var það vegna þess að hún þurfti að ganga mjög hratt til að hafa við sonardóttur sinni, ef til vill var það þving- andi hitinn. — Alla vega lá við að liði yfir Alice, þegar hún kom að markaðstorginu. Hún reyndi af fremsta megni að jafna sig meðan Deborah tal- aði við eldgömlu, hvíthærðu verkamennina. En skyndilega fór stórt torgið að hringsnúast fyrir augum hennar og hún varð að halda dauðahaldi í hrjúfan plankann við hlið sér. Það mátti ekkert koma fyrir núna. Það yrði of biturt, ef eitt- hvað yrði til þess að eyðileggja allt f.vrir henni. Hún reyndi árangurslaust að kalla á Deborah. Hendur henn- ar misstu tak sitt, hana svimaði — allt hringsnérist hraðar og hraðar, unz henni sortnaði fyrir augum og hún sökk í hyldýpið. 26. Caroline stóð í stóru dagstof- unni í húsi Georges Prestons og liorfði reiðilega á Stuart. — Þú vissir það! sagði hún. — Þú viss- ir hve veik mamma er! — Já, viðurkenndi hann. Ég vissi það. — Af hverju aðvaraðir þú okkur ekki? Stuart hlkaði með svarið. Það var mjög þýðingarmikið að út- skýra það þannig fyrir henni að hún skildi hann. — Lee, Mary og ég ræddum það áður en við fórum frá New York. Okkur kom saman um að ferð móður þinnar hingað yrði tilgangslaus, ef þið fengjuð að vita hvernig í öllu lægi. Stuart hallaði sér yfir hana og sagði biðjandi: - Þið hefðuð ekki get- að leynt áhyggjunum. Borgin og meðaumkvunin hefðu lýst úr augum ykkar. Og það hefði ver- ið voðalegt fyrir hana. Caroline hörfaði frá honum. Þú þekkir víst mömmu mína bet- ur en ég, sagði hún hæðnislega. — Ég er, jú, aðeins dóttir hennar. — Segðu þetta ekki, sagði hann biðjandi. — ReyndU að líta skynsamlega á málið. Hún starði kuldalega á hann. Sem stendur get ég ekki séð annað en að móðir mín kom heim nær dauða en lífi. Hún er fár- sjúk, Stuart, og þú hefur ekki á- litið að fjölskylda hennar ætti rétt á að vita það. — Ég gat ekki sagt ykkur það fyrr, mótmælti hann. — Henni hefði sárnað það svo mjög, ef ég hefði sagt ykkur það. Caroline, reyndu að skilja.------- Augu Caroline leiftruðu af reiði og hún snérist á hæl og 13 fór inn í svefnherbergið þar sem læknirinn var að skoða móður hennar. 27. Stuart gekk inn í stofuna við hliðina, en þar sátu Joan og George þögul og áhyggjufull. Hann spurði sjálfan sig að því um hvað þau væru að hugsa — gömlu konuna eða Deborah? 'Hann gekk til Joan og klapp aði hughreystandi á hönd hennar og leit svo 'á eiginmann henn- ar. — Get ég gert eitthvað fyrir ykkur George? George leit upp og hristi svo höfuðið. — Nei þakka þér fyr ir. -— Hvað varð af Deborah? spurði Stuart. — Hún fór inn til sín. Þetta var mikið áfall fyrir hana. Við verðum víst að leyfa henni að vera í friði. Stuart kinkaði kolli. — Þá fer ég. En ég kem aftur í kvöld til að vita, hvernig Alice liður. Áður en hann yfirgaf húsið hafði hann skilið að hann varð einhvern veginn að fá að tala við Caroline og reyna að út- skýra allt. En hann vissi líka að núna stóð Caroline nákvæmlega á sama um það hvort hún sæi hann aftur eða ekki. 28. Aliee Preston var lengi að jafna sig eftir hjartakastið í þetta skipti. En um leið og hún var orðin svo hress að hú.i gæti setið uppi bað hún um að fá að tala vði Deborah. Deboráh kom hikandi inn og stóð lengi í gættinni. Svo brast hún í grát og henti sér yfir Alice. — Þetta er allt mér að kenna. kjökraði hún. — Ég átti aldrei að fara með þig út að ganga. Alice umvafði hana ástúðlega. — Svona, svona vina mín sagði hún hughreystandi. — Þetta var ekki þér að kenna. Ég átti að hugsa mig betur um. Hún hló og bætti svo við. — En þa' er til fólk sem aldrei lærir af reynsl- unni og ég er víst ein af þeim. — Er þér alvara amma? — Já áreiðanlega. Þú þarft ekki að ásaka þig hið minnsta. Ég er bara heimsk gömul kona. En seztu nú niður og segðu mér hvað hefur komið fyrir þig sið an ég lagðist í rúmið. Unga stúlkan þerraði augu sín og settist á rúmstokkinn. — Æ hér skeður aldrei neitf, sagði hún fyrirlitlega. En augnabliki síðar kjaftaði á henni hver tuska og Alice lá á kortdanum og gleypti í sig hvert orð, Skömmu síðar þagnaði De- borali og sagði: — Nú þori ég ekki að vera lengur. Mamma segir að ég megi ekki þreyta þig. — Vertu ekki að hugsa um það sem mamma þin segir, hrosti Alice. — Þú læknar mig frekar en öll lyfin sem lækn- irinn gefur mér. Og þannig var það líka. Því hún vissi með vissu þeear hún sá framan í Déborah að þær tvær skildu hvor aðra. Það liði ekki á löngu áður en Doborah opnaði hjarta sitt fyrir ömmu sinni. Alice brosti glaðlega með sjálfri sér. StUart Vénable kom oft að heimsækja hana. Hann var elsku legur og virtist ánægður en Alice fann að gleði hans var uppgerð ein. Hún gat bara ekö skilið, hvað væri að honum. 'Hún skildi það fyrst þegar Deborah settist hjá henni rétt eftir að Stuart var farinn. — Pinnst þér þetta ekki leið inlegt líka amma? spurði De- borah. | — Hvað er leiðinlegt vin« mín? — Þetta með Stuart og Car- oline. Fyrst voru þau alveg vit laus hvort í öðru . . . iPyrst! Nú opnuðust augu Al« ice. Nú skildi hún hvers vegna Caroline var svo þreytirteg og hljóðlát og hvers vegna Stuart var alls ekkj ahn nsjálfur. — Hvað er að? spurði húa Deborah. t Fermingar- gjöfin í ár Gefið menntandi og þroskandi fermingar- gjöf- NYSTROM Upphleyptu landakortin og hnettirnir leysa vand amn við landafræðinám- ið. Festingar og leiðarvísir með hverju korti. Fást í næstu bókabáð. Heildsöluhirgðir: Árni Ólafsson & Co Suðurlandsbraut 12 sími 37960. Snittar ALÞÝÐUBLAOIÐ - 27. apríl 1966 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.