Alþýðublaðið - 07.05.1966, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 07.05.1966, Qupperneq 9
KÆ6ÁyiadsBÍ.Dl MARNIE Spennandi og sérstæð ný lit- mynd, gerð af Alfred Hitchcock ineð Tippi Hedren og Sean Conn ery. íslenzkur texti. Sýnd kl. 5 og 9. Hækkað verð. Bönnuð innan 16 árá. Pússningasandur Vikurplötur Einangrvuiarplast Seljum allar gerðir af Pússningasandi heim- fluttum og blásniun inn Þurrkaðar vikurplötur og einangrunarplast Sandsalan við Elliðavog s.f. Elliffavogi 115 sími 30120. Auglýsingðsíminn 14906 Sími 41985 Konungar sólar- innar. (Kings of the Sun.) Stórfengleg og snilldarvel gerð ný, amerísk stórmynd í lituro og Panavison. Yul Brynner Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð 'nnan 12 ára. Þognin Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7 og 9. NEÐANSJÁVAR BORGIN Spennandi litmynd. Sýnd kl. 5. Harold R. Daniels Maðurinn, sem hann kallaði Cooper og fékk svör. Þegar hanni hann hafði fengið að vita það er hann vildi sagði hann: —Bíddu ég ætla að aðgæta hvem við get um sent. Masters heyrði stól færðan til og fótatak fjarlægjast. Eftir fáein augnablik kom Coop er aftur í símann. — Ég sendi Dunn liðsforingja til þín. Hann fer eftir klukkutíma með rann sóknarstofu á hjólum með sér. Hann segist þekkja þig — hafa unnið með þér að morðmáli þegar þú varst óbreyttur. Master« þakkaði fyrir og lagði á. Það lék bros um varir hans. Hasn mundi eftir Dunn og hafði kunnað vel við hann. Hann leit upp og sá Marge Hansen koma aftur inn í herbergið. Með henni var þreklegur maður í vinnuföt um. Andlit hans sem virtist góð legt að eðlisfari var nú hörku legt og tekið undir tveggja daga gömlum skeggbroddum. Masters lögre^lustjóri? spurði hann og rétti fram höndina. — Ég er Rob Hansen. Marge sagði mér hvað CoPon hefði fundið. Við gerum það sem við getum til að aðstoða þig. Masters tók í hönd hans og settist niður aftur. — Það eg^-. fallega boðið, sagði hann. — Fæstir vilja láta blanda sér f annað einsog þetta. Hann sá að drengurinn stóð í gættinni og kallaði til hans: — Ég kom með by^suna þína Cott on. Mamma þín tók við henni. Jæja, sagði hann eftir að drengurinn hafði komið inn og þakkað fyrir sig og farið aftur, Þá langar mig til að spyrja ykk ur hvort þið hafið heyrt ein- hverja umferð á Pike í gær- kvöldi. Rob hugsaði stíft. — Það er alltaf einhver umferð lögreglu stjóri. Einu sinni var hún heil mikil áður en þeir gerðu þjóð brautina til Savannah. Núna er það bara fólkið hérna í kring — fólk sem á heima hérna. Fæstir ferðast mikið eftir sól setur — nema kannski á laug ardögum. Svo eru það vörubíl arnir. Þegar þeir vilja forðast vegaskattinn fara þeir um Pike. Eins og ég sagði áðan er alltaf einhver umferð hér. Masters kinkaði kolli. — Og það eru alltaf einhverjir að fara með áfengi héðan og í þurru rík in. Ég var að vona að þú mynd ir eftir því ef þú hefðir heyrt í bíl seint. Við vitum ekki ná kvæmlega hvenær hún dó en það var einhvem tímann seint í gær kveldi og þá hlýtur bíll að hafa numið staðar skammt frá þar sem Cotton fann líkið. Sáuð þið engin ljós heldur eða heyrðuð annað grunsamlegt? 3 Hansen hristi höfuðið. — Því miður lögreglustjóri. Við vorum heima í gærkveldi. Ég heyrði ekk ert. En þú Marge? Hún leit á eiginmann sinn og sagði hugsandi: — Ekkert Rob. Masters reis á fætur. — Þá var það ekki annað, sagði hann og tók í höndina á Hansen. — Það er bezt að ég fari. Heyrðu Hansen það væri gott ef þú gætir fengið eins og þrjá eða fjóra af nágrönnum þínum til að hjálpa okkur. Við verðum að ná saman í kviðdóm til að læknirinn fái krufningsleyfi. Það er aðeins formsatriði. Hansen lofaði að gera það og Masters fór út að bílnum. Það var eitthvað sem hann hafði heyrt þau segja eitthvað sem ekki var eðlilegt. Þegar hann kom að rjóðrinu dæsti hann á- nægjulega. — Ég hefði ekki haldið það sagði hann hálfhátt. Hansen hafði flýtt sér að segja að hann hefði verið heima í gær kveldi. Þetta var hlutur sem enginn { þessu sveitahéraði hefði álitið nauðsynlegt að taka fram, þar fóru allir snemma að sofa og fóru aðeins í bæinn á laugardögum. Masters hafði lit izt vel á Hansen. Honum hafði virzt hann vera vinnusamur og heiðarlegur maður. Samt sem óður ákvað hann að láta Tom Danning eða Jake Bowen spyrj ast fyrir um hann. Nokkrir bilar höfðu bætzt I hóp þeirra sem voru við rjóðr ið þegar Masters steig út úr bílnum og þerraði svitann af enni sér. Tom Danning kom út úr rjóðrinu þegar hann heyrði til bílsins og Charlie Hess var á hælum hans. Skyrta Dannings var orðin rök af svita og andlit hans var hvítt o gtekið. — Fann ekkert, sagði hann. Masters fór með honum inn i rjóðrið. — Ég bjóst ekki við því, sagði hann.. — Ég vildi að þú hefðir fundið töskuna henn ar svo að við hefðum vitað hver hún er. SMURI BRAUÐ Snittur Opiff frá kl. 9-23,30 Brauðstofan Vesturgötu 25., Sími 16012 Vinnuvélar til leigru. Leigjum út píissninga-steypu- hrærivélar og hjólbörur. Rafknúnir gr jót- og múrhamrar meff borum og fleygum. Steinborvélar — Vibratorar. Vatnsdælur o.m.fl. LEIGAN S.F. Simi 23480. Gefið menntandi og þroskandi fermingar- gjöf. NYSTROM Upphleyptu landakortin og hnettirnir leysa vand ann við landafræðinám- ið. Festingar og leiðarvísir með hverju korti. Fást í næstu bókabúð. ■j Heildsöluhirgðir: Árni Ólafsson & Co Suðurlandsbraut 12 sími 37960. Lesið Álþyðublaöið S

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.