Alþýðublaðið - 07.05.1966, Síða 11
ísland í riðli
Pólverjum og
með
Svíum
EINS og kunnugt er, fer fram
Unglingameistaramót Norðurlanda
í knattspyrnu í Horten dagana 10.
—17. júlí næstk. íslendingar tóku
í fyrsta sinn þátt í þessu móti í
fyrrasumar og þótt liðið sigraði
ekki í neinum leik, stóð það sig
vel, sérstaklega í leiknum við Sov-
étríkin, sem var með sem 6. lið.
Nýlega upplýsti Nic. Johansen,
ritari norska Knattspyrnusam-
bandsins á fundi með blaðamönn-
um, að Sovétríkin yrðu ekki með
í keppninni að þessu sinni, aftur
á móti væri ákveðið, að Pólland
sendi lið. Wales var boðið, en
treysti sér ekki til að vera með.
Löndunum hefur verið skipt í
riðla. ísland verður í riðli með
Pólverjum og Svíum, en Norð-
menn, Danir og Finnar leika í hin
um riðlinum.
Þetta verður þriðja Unglinga-
keppni Norðurlanda, Noregur sigr
aði í fyrra og nú á heimavelli eru
þeir líklegir sigurvegarar.
Memfm
Mikill og vaxandi áhugi
hjá Stangaveiðifélaginu
Kvikmynda-
rabb-
veiðisögu-
MIKILL og vaxandi áhugi er
fyrir kastíþróttinni hér í liöfuð-
borginni, sérstaklega eftir að
Stangaveiðifélag Reykjavíkur fékk
afnot af íþróttahöllinni í Laugar-
dal til æfinga.
Undanfarnar vikur hafa félag-
ar í Stangaveiðifélaginu æft af
kappi í íþróttahöllinni og margir
nýir hafa bætzt í hópinn. Nýtt
námskeið verður í íþróttahöllinni
8., 15. og 19. maí (uppstigningar-
dag) kl. 10—IIV2 f. h. fyrir fé-
laga SVFR og aðra áhugamenn
eftir því sem húsrúm Ieyfir. Hægt
er að láta skrá sig á námskeiðið
á skrifstofu Stangaveiðifélagsins
eða hjá formanni og ritara kast-
nefndar, þeim Halldóri Erlends-
syni, sími 18382 og Sigbirni Ei-
ríkssyni, síma 34-205.
Kastæfingar á æfingasvæði fé-
lagsins við Rauðavatn eru hafnar
og verða fram til 10. júní öll
þriðjudags og föstudagskvöld kl.
8—10. Er öllum heimil þátttaka.
Vanir leiðbeinendur verða að jafn
aði til staðar, þeim sem þess óska.
Göngukeppni
á skíðum
GÖNGUKEPPNI á skíðum verð-
ur lialdin næstk. laugardag kl. 4
fvrir ofan Flengingabrekku við
Skíðaskálann í Hveradölum. —
Keppendur vinsamlegast tilkynnið
þátttöku til Skíðaráðs Reykjavíkur
símar 19931 og 12371 fyrir kl. 6
í dag, föstudag. Mótstjóri verður
Sigurjón Þórðarson, formaður
skíðadeiidar ÍR, brautarstjóri
verður Gísli Kristjánsson. Gengið
verður 5 kílómetra. Langt er liðið
síðan göngumót hefur verið haldið
í Reykjavík og veröur gaman að
fylgjast með, hvernig gengur nú.
kaffisopa-
„klúbbfundur”
verður haldinn á vegum kennslu-
og kastnefndar Stangaveiðifélags-'
ins í Átthagasalnum að Hótel
Sögu fimmtudaginn 12. maí og
hefst kl. 8,30 e. h. Þessi fundur
er aðallega ætlaður þeim, sem
tekið hafa þátt í kastæfingum fé-
lagsins, svo og öðrum félagsmönn-
um eftir því sem liúsrúm leyfir.
Aðgöngumiðar verða seldir (á
káffiverði) á kastæfingu í í-
þróttahöliinni sunnudaginn 8.
maí og eftir það á skrifstofu fé-
lagsins, ef eitthvað verður eftir.
Auk kvikmyndar o.s.frv. standa
vonir til að kunnáttumaður ræði
stutta stund um „Náttúruvernd og
sportveiðimenn.”
★ Ryun, USA, hljóp nýlega
enska mílu á 3.55,8 mín., sem er
aðeins 5/10 úr sek. lakara en
bandaríska metið. Ryun er aðeins
18 ára gamall.
★ England sigraði Júgóslavíu
mp& 2 'gegn 0 í knattspyrnu á
Wembley á miðvíkudag. — Bæði
mörkin voru gerð í fyrri hálfleik,
Jimmy Greaves og Bobby Charl-
ton skoruðu.
★ Vestur-Þýzkaland sigraði fr-
land 4 gegn 0 í Dublin á miðviku-
dao. tvö mörk voru gerð l hvorum
hálfleik.
Borussia vann
Borussia frá Dortmund, Vestur-
Þýzkalandi sigraði Liverpool með
2 gegn 1 í úrslitaleik Evrópubik-
arkeppni bikarmeistara, en leik-
urinn fór fram í Glasgow.
Eftir venjulegan leiktíma var
jafnt 1 gegn 1, en í hléi var 0:0.
Það var fyrst í framlengingu, sem
Borussia skoraði sigurmarkið, en
það gerði Libuda. Fyrra mark Bo-
russia skoraði Held, en mark Liv-
erpool gerð Callaghan.
Jón Erlendsson á æfingu í íþróttahöllinni.
AHWWHUHMIWMMMIIMIMMIMMIHIMMHIMHmHMMI
ATHUGIÐ!
^ Skrifstofur Aliýðu-
flokksins í Alþýðuhúsinu
verða opnar fram yfir kosn
ingar frá kl. 9—22 alla virka
daga, sunnudaga frá kl. 14
—18. Símar: 15020—16724—
19570.
Skrifstofan veitir upp-
lýsingar um kjörskrá, aðstoð
við utankjörfundaratkvæða
greiðslu og annað varðandi
bæjar- og sveitarstjómar-
kosningarnar 22. maí nk
-fr Þeir stuðningsmenn A1
þýðuflokksins, sem vilja
starfa fyrir hann á kjördegi
eða við undirbúning kosning
anna fram að þeim tima,
eru beðnir um að skrá sig
hið fyrsta. Jafnframt er tek
ið á móti framlögum í kosn
ingasjóð á aðalskrifstofunni.
-fc Utankjörfundarkosning
er hafin og er afar nauðsýn
legt að allt Alþýðuflokksfólk
hafi samband við skrifstof-
una og gefi henni upplýsing
ar um það fólk, er verður
fjarverandi á kjördegi.
Utankjörfundarkosning
fer fram hjá bæjarfógetum
sýslumönnum og hreppstjór
um. Þeir sem dvelja erlendis
á kjördegi geta kosið í sendi
ráðum íslands og hjá þeim
ræðismönnum, er tala fs-
lenzku. í Reykjavfk fer ut
ankj örf und ar atkvæða
greiðsla fram í Búnaðarfé-
lagsliúsinu við Lækjargötu.
Þar er opið virka daga kl.
10—12, 14—18 og 20—22.
sunnudaga 14—18.
M.s. „Gullfoss"
fer frá Reykjavík laugardaginn 7. maí
kl. 9 síðdegis til Tórshavn, Hamborgar,
Kaupmannahafnar og Leith.
Farþegar eru beðnir að koma til skips
kl. 8.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Drengur
eða telpa óskast til að bera Alþýðublaðið til
áskrifenda í Álfheimum.
Talið við afgreiðsluna.
Alþýðublaðið sími 14909.
Áskriftðsíminn er 14901
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. maí 1966