Alþýðublaðið - 17.05.1966, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 17.05.1966, Qupperneq 2
Sigur æskunnar og framtíöarinnar Kapphlaup Það eru margir önnum kafnir þessa dagana. Þeir eru þaö að minnsta kosti verka- mennirnir, sem eru að vinna við nýju útisundlaugina í Laug ardal. Þeir eru í kapphlaupi við tímann, þvi vafalaust verð- ur laugin vígð, eða „merkum áfanga náð’’ áður en kosið verð ur á sunnudag. Borgarstjórinn er líka önn- um kafinn. Hann vígir og vigir og hefur varla við. Slökkvistöð í gær, barnaheimili í dag, borgarsjúkrahús á morgun og svo ef til viU suridlaug hinn daginn. Allar eru þessar framkvæmd ir góðra gjalda. verðar, þótt sumar séu seint á ferðinni, og búnar að vera lengi í deigl- unni. Er það ekkl undarleg tilvilj- un, að þær skuli allar vera að komast á lokastig, eða verða fullbúnar í vikunni fyrir kosn- ngar? Tilviljun er það varla. Með öðrum orðum, annað hvort hafa framkvæmdír verið dregn- ar á langlnn af ásettu ráði, eða þeim hraðað með óhófleg- um tiVkostnaðl til þess eins að þær gætu fallið inn i áróðurs- herferð borgarstjórnarmelri- lilutans á heppilegum tíma. — Eitthvað hlýtur næturvinnan og eftirvinnan að kosta borg- arbúa aukalega. Þótt unnið sc dag og nótt fyrir kosningar afsakar það ekki sleifarlag undanfarinna ára. Nú er vígt og vígt, en Uk- lega taka vígslumenn sér «r- lega hvíld eftir kosningar, — þangað til næst verður kosið. Þá verður á ný byrjað að vígja. MWWMWW^MMWMMMWWMWMWWWMMMMWMIWMIWWÍ LONDON: 62.500 farmenn á brezka verzlunarflotanum hófu viðtækt verkfail í gær og mun það hafa alvarleg áhrif á brezk- an útflutning og innflutning. Þetta er fyrsta farmannaverkfall í Bretlandi i 55 ár og hófst það á miðnætti á mánudag. í gær- fcvöldi hélt Wilson forsætisráðherra ræðu í útvarp og sjón- varp og skoraði á brezkar húsmæður að forðast hamstur, enda ■geti slíkt leitt til skorts á nauðsynjavörum á sumum stöðum. i i 'SAIGON: Leiðtogar búddatrúarmanna í Suður-Yíetnam ( koruðu í gær á stjórn Nguyen Cao Ky marskálk að seg.ia af íeér. í Da Naug hefur mótþrói hluta herliðsins |bar verið bæld ur niður og féllu 10 menn í þeim átökum um lielgina. Búdda- miinkar í bænum hóta að brenna sig til bana ef stjórnarher- Bveitir hætta ekki aðgerðum. í Saigon hefur vinna stöðvazt vegna verkfalis óg Vietcong stóð í gær fyrir fjölda hryðju- > erka í borginni. ACCRA: Stjórnin í Ghana hefur gefið út handtökutilskip- gegn Kwame Nkrumali fyrrverandi forseta og sent hana til 60 landa. Dr. Nkrumah hefur dvalizt í Conakry, höfuðborg Guineu, síðan byltingin varð gerð í Ghana 24. febrúar. Sekou ÍFouré, forssti Guineu, hefur lieitið að veita Nkrumah alla nauðsynlega aðstoð til að komast aftur til valda. OPEKING: Kínverski kommúnistaflokkurinn gaf í skyn í gær, að barátta sr sem ráðgerð er gegn kunnum rithöfundum verði áð baráttu sú, sem nú er ráð gesgn kunnum rithöfundum, verði einnig látin ná til nokkurra manna, sem flokkurinn segir til- tieyra „borgarastéttinni“. Öli blöð í Peking birtu í gær á for- Síðu greinar rneð gagnrýni á tvö blöð, „Víglínan“ og „Dagblað íð“. sem eru málgögn kínverska kommúnistaflokksins. Blöð .|>essi eru gsgnrýnd fyrir það að hafa á undanförnum vikum birt greinar, sem eru sagðar fjandsamlegai- flokknum. Höfund- ar greinanna eiga sæti í stjórn flokksins. LONDON: Utanríkisráðherra Spánar, Fernando Marpa éastiella, kom í gær til Lundúna að ræða við brezka ráðherra litn kröfu Spánverja til Gíbraltar. Bretar krefjast þess, að Sjánverjar hætti að hefta ferðir milli Spánar og Gíbraltar og ^tialda iþví fram að Sjánverjar hafi í rauninni sett Gíbraltar í ytðskiptabann. Það eru Sameinuðu þjóðirnar sem hvöttu deilu aðila til að finna lausn á deilunni. Castiella utanríkisrá:ð- (fcerra sagði við komuna til Lundúna í igær, að Spánverjar tteyndu nú í fyrsta sinni í 250 ár að finna varanlega lausn á vandamáli, sem gæfi sífellt tilefni til deilna milli Spánverja og -Breta. KAUPMANNAHÖFN: Giuseppe Saragat, forseti Ítalíu, kom í gær til Kaupmannahafnar í opinbera heimsókn. — EF HINN ungi kjósandi, sem nú gengur í fyrsta skipti að kjörborðinu vill láta taka lit til atkvæðis síns og knýja fram stefnubreytingu, — þá hlýt ur hann að kjósa Alþýðuflokkinn. í Það eru ungu kjósendurnir sem ráða úrslitum í þessum kosning um. — Þið ungu kjósendur, sem nú gangið að kjörborðinu í fyrsta sinn, kjósið, að vel yfir- veguðu máli, — kjósið Alþýðu- flokkinn. Sigur Alþýðuflokksins er sigur unga fólksins og fram- tíðarinnar. Á þessa leið mælti Jóhanna Sigurðardóttir, flug- freyja í útvarpsumræðunum í gær, en hún skipar fiinmta sæti Zetterling kvik- myndar á íslandi MAI Zetterling, kvikmynda- leikkona og kvikmyndaframieið- andi kom hingað til lands aðfara- nótt sunnudags. Mun hún dvelja hér á landi til mánaðarmóta. í för með Zetterling er eiginmaður hennar og sænskur kvikmynda- tökumaður. Munu þau vlnna hér að kvikmyndatöku og fór hópur- inn þeirra erinda upp í Borgar- fjörð þegar á sunnudag. Sem kunnugt er gerði Zetterl- ing nokkra kvikmyndaþætti á ís- landi fyrir nokkrum árum, sem sýndir voru x sjónvarpi í Eng- landi og í Svíþjóð. Síðan hefur hún gert tvær langar kvikmynd- ir og kom önnur þeirra á markað í fyrra, en hhin er væntanleg inn an skamms. Jóhanna Sigurðardóttir. á lista Alþýðuflokksins í Reykja vík. Jóhann ræddi í upphaíi ræðu sinnar um baráttu Alþýðuflokks- ins á ltðnum árum. Margt af því sem flokkurinn hefði á sínum tíma knúið fram með harðri bar áttu, væri i dag talið sjálfsagt og menn leiddu varla hugann að því hvernig ástandið hefði áð ur verið. — Er þér ljóst ungi kiósandt, sagði hún, að þegar þú fæddist voru aðeins tveir igagnfræðaskól ar í Reykjavík, annað var einka skóli, en hinn tilkominn vegna baráttu Alþýðuflokksins? Hafa stúlkurnar, sem nú kjósa fyrsta sinni fylgst með því að Alþýðu- flokkurinn hafði frumkvæði um launajafnrétti kvenna og karla við sömu störf? — Það er öUu öðru nauðsynlegra, að hinir fjö'mennu árangar, sem nú ganga að kjör- borðinu í fyrsta sinni kj'nni sér staðreyndirnar í stjórnmálabarátt unni. Einnig ræddi Jólianna um íbúða mál unaa fólksins, sem ekki ætti annars kost en að kaupa íbúðir, hjá „mönnunum", sem borgin læt ur hafa lóðrr til að braska með, ef efnahagurinn þá leyfð’ að ráð ist væri í slíkt. Hún ræddi um skortinn á barnaheimilum í borg inni, sem ekki gætu sinnt helm ing umsókna. — Yantar borgarj'fii-völdin okk ar ekki svoltinn skilning á félags legri hugsun sagði Jóhanna. Skilja þau unga fólkið? Horfa þau nokkurn tíma fram á við? Framhald á 15. síðu Sýning á vatns- litamyndum Þessa dagana stendur yfir í sýn ingarkjallaranum að Ilafnarstræti 1 sýning á vatnslitamyndum eftir Elínu Karitas Thorarensen. Alls eru á sýningunni 46 mjmdir og eru langflestar þeirra af Reykja- vik eða landslagi í nágrenni borg- arinnar. Um fjórðungur mynd- anna eru í einkaeign, hinar eru til sölu. Þetta er fyrsta sýning sem Elín Karitas lieldur og hefur hún ekki tekið þátt í samsýningum til þessa. Elín, sem er dóttir séra Jóns Thorarensen, hefur ekki stundaB listnám, en teiknað og málað frá unga aldri. örfáar myndanna & sýningunni gerði hún á aldrinum 12—13 ára. Sýningin verður opin til 26. maí. IWWWWWSWWWWWWSWWWWWWWVWWWWWS 17. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.