Alþýðublaðið - 17.05.1966, Blaðsíða 7
Mag'nús Reynir GuiYmundsson,
cr fæddur 22. janúar 1944 og er
yngsti maðurinn, sem skipar lista
Alþýðuflokksins að þessu sinni.
Ma/gnús hefir tekið töluverðan
þátt í félagsstörfum, sérstaklega í
íþróttahreyfingunni. Á sl. sumri
var hann hótelstjórí í Valhöll á
Þingvöllum. Hann er nú starfs
maður Landsbanka íslands, ísa-
firði.
Bjarni L. Gestsson, er fædd-
ur 30. maí 1940, Bjarni er gagn
fræðingur frá Gagnfræðaskóla ísa
fjarðar, og tók á námsárum mik
inn þátt í félagslífi í skólanum.
Síðan hefur hann að mestu stund
að sjómennsku, verið landmaður á
bátum á vetrarvertíðum, og stund
að síldveiðar að sumrinu til. Bjarni
er ritari sjóm.fél. ísfirðinga. Hann
er nú starfsmaður Fjöliðjunnar
hf., Bjarni er kvæntur Ágústu
Ragnhildi Benediktsdóttur og
eiga þau 3 börn.
Sigurður J. Jóhannsson er fædd
ur 12. desember 1934. Hann hefur
á annan áratug verið virkur þátt
takandi í félagsstörfum á ísafirði.
Sigurður er formaður FUJ og Full
trúaráðs Alþýðuflokksins, hann á
sæti í stjórn Verkalýðsfél. Baldurs
er formaður Byggingafélags verka
manna og íþróttabandalags ísfirð
inga. Hann hefir verið aðalbæjar
fulltrúi síðan 1963 og hafði áður
verið varabæjarfulltrúi frá 1958.
Kvæntur er Sigurður Sæunni Sig
urjónsdóttur og eiga þau tvö börn.
Sigurður er starfsmaður í Lands
banka íslands, ísafirði.
Pétur Sigurðsson, er fæddur
18. desember 1931. Hann hefir um
fjölda ára tekið mjög virkan þátt
í félagslífi á ísafirði, bæði i stéttar
félögum og íþróttahi’eyfingunni,
þá hofir Pétur verið mjög virk
ur liðsmaður Alþýðuflokksins og
unghreyfingarinnar. Pétur er for
maður Félags Járniðnaðarmanna á
ísafirði, liann^á sæti í stjórn Al-
Framhald á 15. síðu.
Karl Einarsson, er fæddur 11.
marz 1931. Hann hefur unnið alla
algenga vinnu bæði til sjós og
lands. Karl hefir starfað mikið
að knattspyrnumálum Pg verið
virkur dómaii í þeirri íþrótta-
grein hin síðari ár. Þá hefur hann
tekið mikinn þátt í hljómlistarmál
um, leikið um fjölda ára í hljóm
sveitum, og er nú formaður Lúðra
sveitar Isafjarðar. Kvæntur er
Karl Sigríði Sæmundsdóttur og
eiga þau 5 börn. Karl er nú starfs
maður Fjöliðjunnar hf.
Eitt af þyí sem hvað mesta
athygli vekur við framboð A1
þýðuflokksins að þessu sinni,
svo að segja um land allt, er sú
ánægjulega staðreynd, að ungir
menn og konur skipa þar sætin
að miklum meirihluta. Þessi
þróun er í samræmi við stefnu
flokksins og það traust, sem
Alþýðuflokkurinn ber til unga
fólksins. Þetta traust sannaði
flokkurinn á sínum tíma með
því ■ að beita sér fyrir lækkun
kosningaaldurs í 21 ár, og enn
á ný með því að hafa nú flutt
tillögu um lækkun kosninga-
aldurs i 18 ár.
Á ísafirði er meðalaldur fram
bjóðenda Alþýðuflokksins lægri
en hjá noltkrum hinna flokk-
anna. eða 39 ár. F.lzti maður
listans er aðeins 56 ára, sá
yngsti 22 ára. 6 menn eru 35
ára og yngri, eða á aldri þeirra,
sem teljast til unghreyfingar-
innar. Allt eru þetta menn, sem
mikil afskipti liafa haft af fé-
iagslegum málum og þekkja
þau vandamál, sem að
únga fólkinu snýr. Þetta
únga fólk, sem skipar lista A1
þýðuflokksins á ísafirði, hefir
• átt þar heima og þar vill það
vera, og með framboði sínu
vill Alþýðuflokkurinn gefa því
tækifæri til að hafa áhrif á
Ástvaldur Björnsson, er fædd-
ur 30. marz 1932. Hann er múr
ari að atvinnu og hefir unnið að
þeirri iðngrein í alls um 11 ár,
eða frá því hann hóf nám í iðn
inni. Hin síðari ár hefir hann rek
ið sjálfstæðan atvinnurekstur á-
samt félaga sínum^ . Guðmundi
Helgasyni, múrara ,og vinna að
jafnaði hjá þeim þrír menn, aðrir.
Ástvaldur hefir átt sæti í stjóm
Byggingarfélags verkamanna.
Kvæntur er Ástvaldur Ingileifu
Guðmundsdóttur og eiga þau 3
börn.
«
ÍSAFJORÐUR er fyrsti kaupstaðurinn þar
sem Alþýðuflokkurinn nær meirihluta í bæjar-
stjórn. Meirihlutastjórn jafnaðarmanna gjörbreytti
öllum rekstri bæjarfélagsins strax á fyrstu árum
stjórnar þeirra.
ísafjarðarkaupstað'ur eignaðist hafnarmannvirk-
in og landið sein kaupstaðurinn stendur á, en
hvort. tvcggja hafði áður verið í einkaeign. Bæj-
arstjórnarmeirihluti jafnaðarmanna lét einnig
leggja rafveitu fyrir kaupstaðinn, reisa stórt og
vandað sjúkrahús á þeirra tíma mælikvarða,
byggði fyrsta elliheimilið á íslandi, stofnsetti út-
gerðarfélög, reisti mikið mjólkurbú sem tryggði
kaupstaðarbúum næga mjólk og mjólkurafurðir,
hóf byggingu íþrótta- og sundhallar og reisti nýj-
jn gagnfræðaskóla auk ýmissa annarra framkvæmda.
Hin öfluga og trausta stjórn jafnaðarmanna gerði
það' fljótt að verkum, að ísafjarðarkaupstaður
varð landsfrægur sem eitt höfuðvígi jafnaðarstefn
unnar á Islandi Hreinum meirihluta héldu ís-
firzkir jafnaðarmenn til ársins 1946 er íhald
og kommúnistar tóku við stjórn bæjarfélagsins.
Eítir sex ára samstjórn þessarar óheillasam-
steypu hrökklaðist hún frá völdum og skildi
hið áður blómlega bæjarfélag eftir í óreiðu og
skuldafeni Verkamenn bæjarins höfðu ekki feng-
ið kaup sitt greitt vikum saman og sama er að
scgja um mánaðarkaupsmennina. Verzlunarskuld
ir kaupstaðarins hlóðust upp unz svo var komið
að jafnvel styrkþegar bæjarins áttu undir högg
að sækja með úttekt brýnustu lifsnauðsynja auk
þess sem allt lánstraust kaupstaðarins hjá bönk-
um og lánastofnunum var þrotið. Það varð svo
hlutskipti Alþýðuflokksins að taka við strand-
góssinu og endurreisa álit ísafjarðar. Þetta tókst
Alþýðúflokksmönnum méð ómetanlegri aðstoð
bæjarstjórans Jóns Guöjónssonar og nú í dag er
Isafjarðarkaupstaöur blómlegur framkvæmdasígð
ur.
Síðari árin hafa Alþýðuflokksmcnn stjórn&ð;
ísafirði í samstarfi við Framsóknarflokkinn ogl
Alþýðubandalagið. Þetta samstarf liefur gengiði,
algjörlega árekstrarlaust og orðið þess valdantH
að deilurnar, sem ísafjörður var áður frægur
fyrir, hafa að mestu iagzt niður en í staðinn
upptekið vinsamlegt samstarf og jafnvel minni-
hlutinn, Sjálfstæðisflokkurinn lagt niður fyrri
baráttuaðferðir sína og unnið með meirihlutanuin
að farsælli stjórn kaupstaðarins. Nú fyrir bæjar
stjórnarkosningarnar skeði hins vegar það að
Framsóknarmenn rufu fyrirvaralaust þetta heilía
ríka samstarf án þess einu sinni að geta bori'ð
fram tylliástæðu til þess og neituðu algjörlega
viðræðum um áframhaldandi samstarf. Þeir héldu
að með ýmsum aðstæðum sem þeir hafa búið
sér í bæjarfélaginu gætu þeir eitthvað aukið veg
síns flokks og þá varð hagur kaupstaðarins aðf
víkja fyrir flokkshagsmununum. Framsóknai-
menn liafa því á ný innleitt Ulindastefnuna í bæj'
armálum isafjarðar og kjósentíur á ísafirði munu.
rækilega sýna þeim fram á það á kjördegi að í
þeim efnum fara hagsmunir Framsóknarflokksins
og hagur bæjarbúa ekki saman.
Listi Alþýðuflokksins á ísafirði er skipaðtir jöfn
um höndum reyndum mönnum og ungu og efrii-
legu fólki Meðalaldur þeirra er listann skipa éi-
aðeins 39 ár, elzti maður listans 56 ára en sá
yngsti 22 ára. Unga fólkið á lisia AlþýðuflokksinD
sannar það ótvírætt að æskan styður A-listann. *
ísfirzkir kjósendur múnu á kjördegi veita
þýöuflokknum atkvæði sitt, þeim fiokki er
hefur ísafjörð að einum myndarlegasta
Iandsins, og borið hitann og þungann af
stjórn bæjarfélagsins undanfarin ár.
stjórn og framgang bæjarmála.
Störi' Alþýðuílokksins á liðn
urn fimm ératugum hafa sýnt t
það að hann er trausts verður.
Stefnumál hans miða að því
að húa okkur betra þjóðfélag
og flokkurinn heíur ekkert það
rnál iátið sér óviðkomandi, scm
miðað hefur að þvi að bæta lífs
kjör alþýðunnar. Stefna Alþýðu
flokksins er stefna framfara og
hagsældar og flokkurinn mun
lialda áfram baráttu sinni fyrir
land og lýð.
Alþýðuflokkurinn gengur
bjartsýnn til kosninganna.
Framhald á 10. síðu.
AtÞÝÐUBLAÐID - 17. maí 1966 J