Alþýðublaðið - 17.05.1966, Qupperneq 10
MHHHWWWWWWWWWWWVWWíViWWWWVWWWWWWiWWWWWV
Síldveiðiskipstjórar -
útgerðarmenn
Höfum flestar útgerðarvörur til síldveiðanna, svo sem alls konar
lása og vírklemmur, snurpuhringi, blakkir úr tré og járni, gálga-
blakkir, hálflása, lásavír, hlífivír, snurpuvír og alls konar tógverk
úr sísal, hampi og gerviefnum.
Tökum varanætur til geymslu og viðgerða.
Qnnumst nótaviðgerðir á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði,
Stöðvarfirði og Breiðdalsvík, eftir ástæðum.
Ef skipshöfnin tekur sér frí einhvern tíma sumars þá sjáum við
um skipið á meðan.
Netagerð Jóhanns Klausen, Eskifirði
Ræða Eggerts.
Framh. af 5. síðu.
ast hlutirnir í þessum efnum
t i við, — Norðurlandið fær af
i . ganginn af þeim Síldarafla sem
'i) Austfirðingar ekki anna, — og
|.,á togarana fæst ekki fullnægj
tíj andi mannskapur m.a. vegna
ir! minnkandi afla og minni tekju
>: vonar.
Svo lengi hafa íslendingar
í ihorft á og þrautreynt þessar
■kI sveiflur í aflabrögðum, að þær
£> ættu eklci lengur að koma nein
um á óvart. — Samt sem áður
—virðast menn ávallt jafn óvið
| búnir. Þegar ný og fengsæl
r| aflamið togara fundust við
; Grænland og Nýfundna-
land, vildum við kaupa
24 stóra togara og helzt alla
í einu, án þess að um nýjung
ar væri að ræða í einstökum
>; skipum. — Þegar aukinn síldar
i, afli barst á land, eru uppi beiðn
ir um smíðj mun fleiri síldar
skipa ,en unht er að fullnægja
:v og þrátt fyrir einstakar til-
ráunir, er ennþá um of litlar
nýjungar að ræða þegar frá
éru tekin örfá skip. Á sama
hátt Vílja menn í skjóli hins
, aukna síldarafla byggja 10—
:| 12 nýjar síldarverksmiðjur,
eðlilega allar á því landssvæði
I sem síldin hefur verið sl. 4—5
I ár.
g í þessu kapphlaupi um skjót
• fengin verðmæti, vill það oft
| gleymast, að þjóðin á gífurlega
: fjármuni fasta í togurunum og
; vélbátum, sem eru undir 120
rúmlestir, sem vart eru nú
lengur taldir samkeppnisfærir
til síldveiða á djúpmið.
Tvær stjómskipaðar nefndir,
vinna nú að athugun á ástandi
þessara greina sjávarútvegsins
og er álits þeirra og tillagna
til úrbóta að vænta áður en
langur timi líður. Þess verð-
ur að óska, að samkomulag geti
tekizt um þá tillögugerð og þó
umfram alít um framkvæmd til
lagnanna, svo mikið, sem þar
er í húfi fyrir þjóðfélagsheild
ina. — Skammvinnur stundar
hagnaður fárra aðilja, má þar
ekki sitja i fyrirrúmi, slík sjón
armið verða að víkja fyrír
hagsmunum heildarinnar.
Rétt eins og sjálfsagt er og
eðlilegt, að nýta til fullnustu
auðlindir hafsins umhverfis
landið, með þeim veiðarfær
um, sem eklci verða talin skaða
framtíðarveiði, — verður á
sama hátt- að framfylgja strang
lega lögum og reglum um þær
veiðiaðferðir, sem tjóni valda
fyrir framtíðarmöguleika af-
komenda okkar til menningar
lífs hér á landi.
Þrátt fyrir ótrúlegar sögu-
sagnir um slíka óheillaveiði inn
an 12 mílna fiskveiðilögsögu
okkar, trúi ég því ekki, áð nokk
ur sjómaður vilji vitandi vits
skaða afkomendur sína, með
því að vinna slík óbætanleg ó-
þurftarverk, fyrir ímyndaðan
stundarhagnað einan.
Öll erum við sammála um
að framtíðin er æskunnar og
hún á að erfa landið. Synir
okkar og dætur taka við af
okkur, og öll viljum við skila
þeim, sem beztum ai-fi. —
Mundi sá bóndi 'vera talinn for
sjáll og vinna í þeim anda
sem lógaði ungviði síns búfén-
aðar? Enginn okkar vildi ganga
til eyðslu á sparifé barna sinna
a.m.k. ekkj meðan hann ætti
nokkur úrræði sjálfur Hvað
er að gerast ef við veið-
um vísvitandi ónothæfan smá
fisk og hendum honum dauð
um fyrir borð?
Ég læt ykkur tilheyrendur
góðir um að svara, hver fyrir
sig — Lög og reglur til tak-
mörkunar í þessum efnum,
eru nauðsynlegar og sjálfsagð,
en setning þeirra er harla lítils
virði ef sjómenn sjálfir, vilja
ekki hlíta þeim og trúa því
ekki að þar sé stefnt að fram
tíðartryggingu eftirkomend-
anna. . '
Jafn’framt slíkri tryggingu í
daglegu starfi okkar sjálfra,
eru fleiri óunnin verkefni til
tryggingar framtíðarverkefn-
unm við sjávarsíðuna.
Nýlega útskrifaði Sjómanna
skólinn 75. árgang sinna nem
enda. Yið slík tímamót er eðli
lega margs að minnast. Eftir
þá minnisverðu skólaslita sam
komu, er efst í mínum huga
þörfin fyrir að geta á sérstöku
skólaskipi kennt væntanlegum
skipstjóraefnum í sjón og raun
væntanleg viðfangsefni sín,
ásamt aukinni fjárhagslegri
lánsfjáraðstoð, við nemendur
til lúkningar námi sínu.
Slík aðstaða fyrir iskólann,
ætti í senn að tryggja rétta
og nákvæma meðférð ihihna
dýru en mikilsverðu veiðar-
|færa |og fiskileitartækja, en
þó umfram allt aukna kunn-
4,0 17. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
áttu i umgengni og notkun
allra öryggistækja um borð.
— Orðtakið „sjón er sögu rík
ari“ verður vart á öðrum stöð
um mikilsverðara en í viðskipt
um við Ægi konung. Þær fóm
ir, sem þjóðin hefur fært í
þeim við kiptum, verða aldrei
til fjár metnar, og á þessum
degi er óþarft að færa frekari
rök að, svo ljós sem þau eru
öllum landsmönnum. — Ekk-
ert má í þessum efnum til
spara að koma í veg fyrir ó
höpp og slys.
íslenzkir sjómenn. Ég veit að
þið hafið oft hent gaman að
hrósyrðum um afrek ykkar og
samanburði við erlenda starfs
bræður ykkar, sem fram hafa
verið borin, við ýmis hátíðleg
tækifæri og ykkur heffur í
reynd fundist þau léttvæg til
fullnægingar óskum ykkar og
kröfum, á hinum ýmsu tím-
um.
Samanburður á afköstum ykk
ar við erlenda stéttarbræður,
verður nú enn sem fyrr, harla
góður — ykkur í vil — þótt
ekkj verði nú tölur nefndar.
Þrátt fyrir þau afrek, sem
ykkur hefir tekizt að sýna í
verki og alþjóð hefur notið
góðs af, — þá er nauðsynlegt
að þið minnist þeirrar miklu
skyldu sem á herðum ykkar
hvílir gagnvart framtíð og nú
tíð, sem íslenzkra þjóðfélags-
þegna.
Þessum skyldum leyfi ég
mér sem landkrabbi að skipta
þannig:
1. Umgangist veiðisvæðin,
sem sparifjáreign afkomenda
ykkar, en ekki með freistandi
augnabliks hagnað í huga.
2. Við skulum sameiginlega
vinna að því að sjómannsstarf
ið verði í landi og á sjó undir
búið með þeim hætti, sem full
komnastur verði talinn, af þjóð
sem á jafn mikið undir sjó-
sókn komið.
3. A3 fenginni dýrkeyptri
reynslu, er ástæða til að minna
á nauðsyn þess, að ekki verði
tekin áhætta um tvísýna a£
komu skips og skipB-hafnar,
nema brýna nauðsyn beri til,
og þá þannig, að aðrir betri
kostir séu ekki fyrir hendi.
4. Minnist þess að aflinn
er matvara sem er því verðmæt
ari, sem betur er með hann
farið.
í einlægri von um að skyndi
leg veiði og aflavon glepji eng-
um sýn, um að gæta nauðsyn
legs öryggis og að reynast trún
aðar síns verður, óska ég í
nafni ríkisstjórnar íslands, öll
um íslenzkum sjómönnum,
allra heilla i þeirra margvís
legu vandasömu störfum, með
einlægri von um að þeim
megi vel farnast.
Með því er hagur alþjóðar
varanlegast tryggður. —
Hafið alþjóðarþökk fyrir unn
in störf og fylgi ykkur gæfan
til framtíðarstarfa.
ísafförður
Framhald af 7. síðu.
Flokkurinn er samstilltari en
nokkru sinni áður og Alþýðu
ílokkrfólk um land allt er stað
ráðið í því að gera sigur flokks
ins sem mestan. Undanfarin
kjörtímabil hefur flokkurinn
átt þrjá bæjarfulltrúa á ísa
firði og Alþýðuflokksfólk er
ákveðið í að tryggja setu þeirra
áfram og vinna flokknum aukið
íylgi. Svo bezt eru hagsmunir
bæjarfélagsins tryggðir að
stefna Alþýðuflokksins verði
þar í forustu.
Þeir, sem ganga að kjörborð
inu í fyrsta sinn ættu að kynna
sér störf og stefnu Alþýðuflokks
ins og þá munu þeir ekki verða
í vafa um hvar þeir eiga að
setja krossinn í kosningunum
22. maí n.k. Sigur Alþýðuflokks
ins er þeirra sigur, þeirra vel-
ferð og framtíð.