Alþýðublaðið - 17.05.1966, Page 15
Pétur Sig. . . .
Framnald af 7. stðu.
þýðúsambands Vestfjarða, og á
námsárum sínum lét hann mjög
til sín taka málefni iðnnema.
Pétur er formaður Aldarafmæl
isnefndar ísafjarðar. Hann starf
ar nú hjá Rafmagnsveitum ríkis
ins, er kvæntur Hjördísi Hjartar
dóttur og eiga þau tvö böm. Pét
ur er varabæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins.
Æskars 03 laudið
Framhiald af síðu 6.
vera framsýnni og sjálfstæðari í
baráttunni fyrir sterkara bæjar-
félagi. Til eflingar Akureyrar
kaupstaðar treysti ég jafnaðar
mönnum bezt. Þá skoðun byggi
ég á reynslu minni af jafnaðar
mönnum erlendis, þar sem þeir
iiafa haft forystu í opinberum mál
um,
Æskulýðssíðan þakkar Hauk Har
aldssyni viðtalið og óskar jafnaðar
mönnum á Akureyri til hamingju
með þennan unga, kappsama liðs
mann.
Ræða Óskars
Framhald af 1. síðu
ar væru sífellt að minnka, en völd
embættiskerfisins að aukast. Al-
ger stöðnun hefði orðið í stjórn-
kerfi borgarinnar. Sem dæmi
nefndi hann, að borgarfulltrúar
væru jafn margir í dag og þeir
voru 1907. Lagði Óskar eindregið
til, að borgarfulltrúum yrði fjölg-
að.
í lok ræðu sinnar sagði Óskar,
að í síðustu borgarstjórnarkosn-
ingum hefði Alþýðuflokkinn að-
eins vantað fáa tugi atkvæða til
að koma öðrum manni að. Þetta
mætti ekki endurtaka sig og hvatti
hann alla frjálslynda menn til að
greiöa flokknum atkvæði sitt á
sunnudag.
Æskan
Framn. at t. síðu.
styður Alþýðujlokkinn er stað
ráðið í að gera sigur hans seni
glæsilegastan í kosningunum á
sunnudaginn kemur.
Þrír ungir frambjóðendur
af lista flokksins fluttu þarna
stutt ávörp, sem gerður var
góður rómur að.
Eiður Guðnason blaðamaður
talaði fyrstur og skopaðist að
hjákátlegri kosningabaráttu
borgarstjórnarmeirihlutans í
Reykjavík. Hann lagði áherzlu
á, að veita yrði meirihlutanum
aukið aðhald, og tryggja yrði
að áhrif Alþýðufiokksins £
borgarstjórn yrðu meiri en
verið hefði.
Jóhanna Sigurðardóttir flug-
freyja, sem skipar fimmta
sæti á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík, rakti í ávarpi sínu
hvað Alþýðuflokkurinn hefði
meðal annars gert fyrir ís-
lenzkar konur. Minnti hún í
því sambandi á launajafnrétti
karla og kvenna, sem nú er að
verða að veruleika, einmitt fyr-
ir ötula baráttu Alþýðuflokks-
manna og kvenna. Jóhann
ræddi einnig afstöðu unga
fólksins til stjórnmála og skor-
aði á það að fylkja sér um
Alþýðuflokkinn.
Leikararnir Bessi Bjarnason
og Gunnar Eyjólfsson fluttu
þvínæst stuttan skemmtiþátt
og þótti vel takast.
Að lokum flutti Björgvin
Guðmundsson sem skipar 3.
sæti listans, ávarp. Hann
minnti meðal annars á, að Al-
þýðuflokkurinn hefði á sínum
tíma barizt fyrh’ því að kosn-
ingaaldur yrði lækkaður í 21
ár og nú hefði flokkurinn flutt
þingsályktunartillögu um að
lækka kosningaaldurinn í 18
ár. Sú tillaga hefði verið sam-
þykkt á Alþingi I fyrra — og
mundi nefnd nú kanna þetta
mál til hlítar og gera tillögur.
Björgvin skoraði á unga fólk-
ið og alla stuðningsmenn A-
listans að liggja ekki á liði sínu
og gera sigurinn sem glæsileg-
astan á sunnudaginn kemur.
Sigurður Guðmundsson skrif-
stofustjóri var kynriir á fund-
inum.
Eins og fyrr segir var aðsókn
að síðdegiskaffi FUJ meiri en
húsrúm leyfði og prðu því mið
ur allmargir frá að hverfa.
Sigur æskunnar
Framhald af 2. síðu.
Yfirráðin yfir Reykjavík verða
vart tekin af Sjálfstæðisflokknum
í þessum kosningum, — til þess
þyrfti meiri breytingu á kjörfylgi
en hægt er að hugsa sér. En það
er hægt að veita Sjálfstæðisflokkn
um harðara aðhald. Hann hefur
lært margt í stjórn þjóðmálanna
undanfarin ár, o.g því ættu ekki
ungu kjósendurnir að hrekja
hann á undanhald í stjórn borgar
innar líka, sagði Jóhanna í lok
ræðu sinnar.
Brauðhúsið
Laugavegi 12G —
Sími 24631
★ Allskonar veitingar.
★ Veislubrauð, snittur.
★ Brauðtertur, smuri
brauð
Pantið tímanlega.
Kynnið yður verð
og gæði.
Lesið Alþýðublaðið
HVERFASKRIFSTOFUR
/4
HVERFASKRIFSTOFUR A-LISTANS í Reykja-
vík eru í:
☆ ALÞÝÐUHÚSINU, Hverfisgötu, — Mela- og; f
Miðbæjarskólinn. Símar: 15020, 16724, 19570. S
- aw
ýt BRAUTARHOLTI 20, Sjómanna- og Austur- V
bæjarsltólinn. Símar: 24158 og 24159. 3s
4
i>Al
☆ SUÐURLANDSBRAUT 12. Langholts-,í|<
Laugamess-, Álftamýrar- og Breiðagerðisskóli. 4’
Símar: 38667, 38645 og 38699. H
JÍJt«
. av
Stuðningsfólk A-listans er beðið að hafa sam- 'Í'
band við skrifstofurnar. Skrifstofumar á Suð- Í(
urlandsbraut og í Brautarholti eru opnar frá N
kl. 5—10 daglega. $
' 1
i
it ÞEIR STUÐNINGSMENN A-listans, sem S
vilja starfa fyrir hann á kjördegi eða við undir- r
búning kosninganna fram að þeim tíma eru S
beðnir að hafa samband við aðalskrifstofuna, í
sími 15020. Þar er jafnframt tekið á móti fram- S
lögum í kosningasjóðinn. ■
l
\
ókeypis leiíSbeiningar
Fransks fegrunarserfræðings.
Laugavegi 25 (uppi), sími 22138
.Fegurð fullkomnast með:
Rettri notkun snyrtivöru,
réttu tegundinni,
réttum og samræmdum litum
CODYSf
rú. ROBIC frá Parfa*
..v.grunar sérfræðingur (Estheticienne),
ráðleggur konum val og meðferíS snyrtivöru.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. maí 1966 15