Alþýðublaðið - 01.06.1966, Side 1
Nliðvikudagui 1. júní 1966 — 47. árg. — 121. tbl. — VERÐ 5 KR.
24 skip meö
4,455 tonn
Gott veður var á síldarmiSun-
um sl. sólarhring. Veiðisvæðið er
220—260 milur réttvisandi NA
frá Glettingarnesi. Síldin er mjög
stygg og erfið viðureignar.
Samtais fengu 24 skip 4.455
tonn.
Axel Benedikts-
son látinn
&fM| - mm
Upplýsingar frá síldarleitar-
skipinu Hafþóri um afla einstakra
skipa.
Gullberg NS 130 tonn, Halkion
VE 240, Auðunn GK 150, Björg N
K 170, Heimir SU, 220, Margrét
SI, 200, Guðbjartur Kristján IS
200, Krossanes SU 160, Jón Finns
son GK 210, Björgvin EA, 60, Gull
ver NS 280, Óskar Halldórsson,
RE 230, Siglfirðingur SI 190, Ás-
björn, RE 190, Bjartur NK 235,
Guðmundur Pétursson, IS 170,
Sigurður Bjarnason, EA 170, Bára
SU 200, Ólafur Sigurðsson, AK,
260, Guðrún Þorkelsd. SU 150,
Þorsteinn RE 200, Guðrún GK 150
Gullfaxi NK 120, Bjarmi II. 170.
S BRENNA SIG TIL
AXEL BENEDIKTSSON, fyrr-
um skólastjóri, andaðist í Landa
kotsspítala annan dag hvítasunnu
eftir nokkurra mánaða sjúkdóms-
legu.
Axel Benediktsson var fæddur
að Breiðabóli á Svalbarðsströnd
24. april 1914. Hai'.n lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskóianum á
Frh. á 14. síðu.
SAIGON, 31. maí (NTB-Raut-
er). — Stjórnin í Suður-Víetnam
og leiðtogar Búddatrúarmanna
gerðu í dag misheppnaða tilraun
til að binda enda á ólgu þá sem
ríkt hefur meðal landsmanna að
undanförnu og er nú komin á
það stig að styrjöldin gegn Viet
cong hefur horfið í skuggann.
Samtímis skoraði einn af leiðtog
um búddatrúarmanna á stuðnings
menn sína að mótmæla ekki her
foringjastjórn Kys forsætisráð-
herra með því að brenna sig til
bana.
Fimm manns hafa ráðið sér
bana undanfarna þrjá daga með
þvi að væta klæði sín benzíni,
kveikja í þeim og brenna sig til
bana. 17 ára gamall búddastúdent
fyrirfór sér með þessum hætti í
dag í Hué í norðurhluta lands-
MWIMMMMtmtMMMMMMMMMIMWWMWIMWWWMWMIWHMWMMMMMWWMWMM*
Slógu upp balli á torginu
Reykjavík.
OÓ.
NÆR þúsund franskir sjó-
liðar áttu . heldur daufa vist í
Reykjavík um hvítasunnuhelg-
ina. Þá daga sem herskipin
dvöldu hérlendis var látlaus
rigning og dimmt yfir. Ekki
bætti úr skák að vegna trúar-
hátíðarinnar voru öll veitinga-
hús lokuð á sunnudag og hvergi
mátti dansa á laugardagskvöld.
Sjóliðarnir gátu lítið gert
sér til dundurs meðan á kurt
eisis heiinsókninnf stóð annað
en rangla um regnvotar göturn
ar og staldra við og brosa til
þeirra tiltölulega fáu stúlkna,
sem þar voru á ferli. En eins
og kunnugt er leitaði mikill
hluti æskulýðs höfuðborgarinn-
ar út í guðsgræna náttúruna
um helgina og kaus heldur
rigninguna á Laugarvatni og í
Borgarfirði en rigninguna í
Reykjavík.
Þegar sjóliðarnir voru orðnir
úrkula vonar um að nokkurs
staðar væri hægt að skemmta
sér á laugardagskvöldið tóku
þeir til eigin ráða og slógu
upp eigin balli á Lækjartorgi.
Söfnuðust þeir þar margir sam
an og drógu upp munnhörpur
og mandólín úr pússi sínu og
léku dátt. Safnaðist þarna að
talsverður mannfjöldi og var
ekki að sjá að neinum þætti
framin helgispjöll.
Á hvítasunnudag fengu nokk-
ur hundruð sjóliða landgöngu-
leyfi. Þann dag var aðeins eitt
veitingahús opið í höfuðborg-
inni Var það Kjörbarinn við
Lækjargötu. Enda var .ekki að
sökum að spyrja að hann varð
yfirfullur af Fransmönnum all-
Frh. á 14. síðu.
ins, en þar hafa búddatrúarmenn
staðið fyrir óeirðum í marga
mánuði.
Ky forsætisráðherra og Van
Thieu forseti voru i forsæti sex
manna ráðherranefndar, sem í
dag settist að samningaborði með
nefnd búddatrúarmanna undir for
sæti Thieh Tan Chau. Eneinn ár
angur náðist á fundinum. sem
stóð í tvo tíma, en annar fund
ur hefur verið boðaður á morgun.
Búddatrúarmenn endurtóku
kröfu sína um, að stjórn Kvs færi
frá völdum, að efnt yrði til kosn
inga og að stjórn borgara yrði
skipuð. Eina krafan sem stjórn
in vildi ganga að á fundmum í
dag var sú, að óbreyttir borgarar
yrðu skipaðir í stjórnina.
í Hué fjarlægðu stúdentar í dag
Frh. á 14. síðu.
Balletskólinn j
lýkur störfum j
í tilefni þess að starfsár Ball 5
ettskóla Þjóðleikhússins var að |
ljúka brugðum við okkur upp 1
í Þjóðleikhús og litum inn á =
síðustu æfingarnar í yngstu 1
flokkunum hjá ungfrú Fay :
Werner, sem verið hefur kenn- j
ari skólans í tvö ár og verður j
; am.k. næsta ár.
Ungfrú Werner hefur bæði j
i dansað og kennt ballett í heima j
i landi sínu, Englandi, og ferð- [
i ast sem aðstoðarstjórnandi ball- j
i ettsflokks og dansmey um ír- ;
i land og Ameríku. Og hún hefur j
i vissulega sínar skoðanir um j
i ballett og ballettkennslu:
íslendingar þurfa amk. að i
j fara að hugsa um að bæta i
j ballettkennsluna ef þeir gera i
j sér vonir um að koma einhvern
j tíma upp þokkalegum ballett- i
j flokki. Ballettskóíi Þjóðleik-
j hússins þarf að geta gert ráð
Framhald á 15. síðu.
WWWIWMWMIWWWWWW.WMMMIWW
Blöðin hækka
ÖLL dagblöðin í Reykjavík
hækka um þessi mánaðamót:
Áskriftarverð Alþýðublaðsins verð
ur framvegis 105 krónur á mán
uði, en var áður 95 kr. og auglýs
ingaverðið 65 kr. á dálksentimet
er, en var áður 60 kr. Hins vegar
verður lausasöluverðið hið sama
og áður, aðeins 5 krónur.