Alþýðublaðið - 01.06.1966, Síða 10
l=Ritstióri
Þréttarar voru heppnir að
ná 1:1 í leiknum við ÍBA
EÓP-mótið
FYRSTI leikur Knattspyrnu-
móts íslands, 1. deildar, í Reykja-
vík, að þessu sinni, fór fram á
2. hvítasunnudag á Laugardals-
vellinum,við næsta erfið skilyrði.
Völlurinn var gegnblautur, háll og
þungur og spændist upp, og var
eing og flag yfir að líta, í leiks
lokin.
Það voru Akureyringar og hinir
nýbökuðu Reykjavíkurmeistarar
Þróttar, sem þarna áttust við. —
Leiksloki'n urðu þau, að jafntefli
varð, 1 gegn 1. Mega Þróttarar
sannarlega vel una þeim úrslit-
um og telja sig heppna að ná öðru
stiginu.
Yfirleitt voru það Akureyringar
sem réðu stefnu og gangi leiksins.
Mátti segja að Þróttar-liðið næði
sjaldan neinum samræmdum leik
hvorki í sókn né vörn, en tilviljun-
in ein réði að mestu öllum gangi
þess og gerðum. Hins vegar sýndu
Akureyringar oft jákvæðan leik og
furðu gott samspil, þrátt fyrir hin-
ar erfiðu aðstæður. En það sem
gerði' gæfumuninn var, að Akur-
eyringum tókst miklu betur að
fóta sig en mótherjunum, sem hvað
Sfoðon
Þróttur - Akureyri 1:1
Akranes - Keflavík 2:1
Valur - KR 0-1
KR 110 Oíl-O 2
Akranes 1 1 0 0 2-1 2
Akureyri 10 10 1-11
Þróttur 10 10 1-11
Valur 10 0 10-10
eftir annað runnu til, skrikaði fót-
ur eða veltust um hrygg, þegar
mest lá við að standa og lialda jafn
vægi. Þar sem það er meginskil-
yrðið til að geta leikið k natt-
spyrnu, að standa og halda jafn-
vægi, var ekki von að vel tækist
til hjá Reykjavíkurmeisturunum.
En þrátt fyrir það þó Akureyring-
ar héldu miklu betur jafnvæginu,
en mótherjarnir — og væru hittn-
ari á knöttinn, snarpari í sókn
og samleik og gætu skapað sér
gullin tækifæri, oftar en einu
sinni, fyrir opnu marki, sérstak-
lega í fyrri hálfleiknum er Kári
miðherji Árnason „brenndi” fimm
sinnum af, sem, ef vel hefði ver-
ið átt að gefa Akureyringum jafn
mörg mörk, þá voru það samt
þrátt fyrir allt hinir „slöppu” mót-
herjar, sem skoruðu bæði mörkin
í leiknum. Svona duttlungafull
getur spyrnan verið, ef þeir sem
tækifærin fá, eru ekki menn til
að nota þau rétt.
Það var á 15. mín. sem fyrra
markið kom, eða þetta eina, sem
gert var 1 fyrri hálfleiknum. Val-
steinn v. útherji ÍBA, einn bezti
leikmaður liðsins, átti fyrirsend-
ingu rétt við markið; þetta var
heldur laus spyrna, en háll bolt-
inn hrökk af Gunnari bakverði og
inn. Hvað eftir annað, bæði fyrir
og eftir þetta mark, áttu Akur-
e.vringar ágæt tækifæri til að skora
úr, en allt mistókst, skotið var eða
skallað utan hjá eða yfir. í síðari
hálfleiknum hertu Þróttarar sig
nokkuð og var sá hluti leiksins yf-
irleitt jafnari en sá fyrri. Einna
næst því að jafna áður en til þess
kom endanlega, komst Jens Karls-
háb á morgun
mundsson átti hörkuskot í þverslá
á 38. mín. en knötturinn hrökk
aftur fyrir.
Magnús Haraldsson hægri bak-
vörður Keflvíkinga varð að yfir-
gefa völlinn vegna meiðsla seint í
síðari hálfleik. Bæði liðin áttu
góð tækifæri til að skora sem ekki
komu að tilætluðum notum.
Leiknum lauk því með sigri
Akurnesinga og var það verð-
skuldað eftir gangi leiksins.
Akranesliðið kom nokkuð vel frá
þessum leik, sérstaklega er líða
tók á leikinn. Vörnin er sterkari
en hún hefur verið fyrr í vor.
Einar markvörður, sem er nýliði í
liðinu stóð sig mjög vel. Sama er
að segja um Þröst Stefánsson, v.
bakvörð, sem á að vísu margt ó-
lært i þeirri stöðu.
Jón Leósson var duglegur að
vanda. Ríkarður stóð sig vel í
leiknum og hugsar nú meira um
að skipuleggja og byggja upp. —
Björn Lárusson, Guðjón Guð-
mundsson og Matthías Hallgríms-
son eru allir skemmtilegir leik-
menn, en Matthíasi hættir til að
einleika um of.
Þórður Jónsson var lélegur fram
an af, en sótti sig er á leikinn
leið. Af Keflvíkingum bar mest
á Jóni Jóhannssyni í framlínunni
og Magnúsi Torfasyni og Sigurði
Albertssyni í vörninni.
Carl Bergmann dæmdi ieikinn
og mætti hann vera miklu ákveðn-
ari og nota flautuna meira í stað
þess að veifa höndum við aug-
ljós brot eins og t. d. vítaspyrn-
una á Keflvíkinga í síðari hálfleik.
son á 25. mín. er hann sendi fastan
loítbolta að markinu af vítateigi,
en of hátt og aftur stuttu síðar,
ír liann skallaði fram hjá. Al-
mennt var litið svo á að Akureyr-
ingar myndu sigra með þessu eina
„Þróttar-marki” þrátt fyrir öll sín
glæsilegu tækifæri og hirða þann-
ig bæði stigin. En rétt fyrir leiks-
lokin á 42. mín. breyttist skyndi-
lega aðstaðan. Kjartan Kjartans-
son lék laglega á einn norðanvér-
an, og afgreiddi knöttinn viðstöðu
laust til Axels, sem þegar sendi
fyrir markið til Jens, sem var í
óvaldaðri stöðu og þrumaði að
markinu og skoraði mjög vel. Voru
þessi tilþrif þau beztu, og einustu,
sem að kvað er Þróttur sýndi í
leiknum.
Steinn Guðmundsson dæmdi
leikinn og hefur oft verið betri en
að þessu sinni. EB.
ÍA átti
leik og
Akranesi. 31. maí. Hdan.
Akurnesingar unnu Keflvíkinga
með 2 gegn 1 í fyrsta leik liðanna
í 1. deildar keppni er hófst sl.
mánudag. Fyrr í vor höfðu Kefl-
víkingar sigrað Akurnesinga með
2—0 í Litlu-bikarkeppninni.
Rigning og háll og þungur völl-
ur settu svip sinn á leikinn á
Akureyringar skjóta á mark — en boltinn fór framhjá.
Akranesi og sköpuðust oft skemmti
leg augnablik af þeim sökum.
Keflvíkingar fóru betur af stað
og voru mun betri framan af
leiknum en í síðari hálfleik fóru
Skagamenn að átta sig á hlutun-
um og það dugði þeim til sigurs í
þessum leik. Fyrsta mark leiksins
kom á 34. mín. og var það Jón
Jóhannsson miðherji Keflvíkinga
sem brauzt í gegn og tókst að
skora úr þröngri stöðu. Boltinn
skauzt undir Einar Guðleifsson
markvörð og rétt inn fyrir línu.
Það var ekki fyrr en nokkrum sek-
úndum fyrir lok hálfleiksins að
Skágamönnum tókst að jafna. —
Björn Lárusson fékk knöttinn á
vitateigslínu og skaut í mitt mark-
ið fram hjá nokkrum varnarmönn-
um. Kjartan misreiknaði knöttinn
og missti hann inn fyrir línu. —
Lauk því hálfleiknum með jafn
1 gegn 1.
Keflavíkingar sóttu meira fyrstu
mínúturnar í síðari hálfleik, en
þá tóku Skagamenn fjörkipp sem
entist þeim út leikinn og á 30
mín. skora þeir sigurmarkið. —•
Sigurmarkið skoraði Matthías
Hallgrímsson, vinstri útherji, mjög
skemmtilega. Hann fékk knött á
hægra vítateigshorninu, lék á þrjá
leikmenn og skaut með vinstri
fæti neðst í markhornið. Kjartan
markvörður náði að koma við
knöttinn, en það dugði ekki, —
knötturinn hafnaði í netinu við
mikinn fögnuð hinna fjölmörgu
áhorfenda, sem flestir voru fylgj-
endur Skagamanna. Guðjón Guð-
Matthías skoraði sigurmark
Akurnesinga.
HIÐ árlega EÓP mót í frjálsum
íþróttum verður háð á Melavellin-
um á morgun og hefst kl. 20,30.
Keppt verður í eftirtöldum grein-
um: 100, 400, 1500 m. hlaupi, 110
m. grindahlaupi, 4x100 m. boð-
hlaupi, langstökki, hástökki,
stangarstökki, kúluvarpi og
kringlukasti. Þátttaka tilkynnist í
síma 14608 í dag.
AHWUMMMMMMMWMHVn
2.21m.
I frjálsíþróttakeppni Len-
ingrad og Moskva um helg-
ina vann hinn kornungi
Rússi, Skortsow það frá-
bæra afrek að stökkva 2,21
í hástökki, sem er fjórði
bezti árangur í heiminum.
Skortsow er aðeins tvitugur.
wwvwtwvwwwwwwv
allgóðan
vann IBK
1Q 1. júní 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ