Alþýðublaðið - 08.06.1966, Síða 9
til æfinga og upptöku þáttarins.
Stundum er sjónvarpað beint
og þá á þeim tíma, sem óskað er
af hálfu skólanna, sem kennsl-
unnar njóta. Algengar er þó, að
kennslan er tekin upp á sérstakt
segulband, sem bæði er hægt að
taka á mynd og tal eða tón.
Þetta er einkar þægilegt, þar
eð bandinu má spóla til baka og
sýna upptökuna strax á eftir á
sjönvarpsskermi í upptökusal, —
ré'tt eins og hægt er að'gera við
venjulegt tón-segulband. Þannig
er hægt að leiðrétta skekkjur og
btéta úr ágöllum, áður en sent
er út.
Þessi segulbönd eru 2ja þuml.
breið. Tækin eru stór, og mjög
dýr. En nú eru komin á markað
mun minni og ódýrari tæki, að-
eins stærri en venjuleg segul-
bandstæki og taka bönd frá 1 cm.
og upp í 1 þumlung á breidd.
Þessu má stinga í samband við
venjulega stjónvarpstæki og taka
upp efni til geymslu og notkunar
síðar.
Slík tæki má nota þar sem sjón-
varpsstöðvar ná ekki til og tengja
við þau eins mörg sjónvarps
tæki og óskað er. Þau eru einn-
ig notuð til upprifjunar á efni,
sem áður var sjónvarpað.
Almennir kpnnarar við þá skóla,
sem sjónvarps njóta, losna að
sönnu við nokkra raunverulega
kennslutíma fyrir tilkomu sjón-
varpskennslunnar, en þessum tím-
um er ekki á glæ kastað.
í barnaskólum er talið æski-
legt, að bekkjarkennarinn sé við-
staddur, eins og áður var drepið
á, en þó eru stundum frávik frá
þessari reglu.
Þá er nokkrum bekkjum á sama
stigi hóað saman í stórar, sam-
liggjandi stofur eða samkomusal
með hæfilega mörgum sjónvarps-
tækjum og 1-2 kennarar hafðir til
eftirlits.
Gefst kennurum þannig oft
tóm frá kennslurútínunni og geta
þá notað tímann til að huga að
öðrum verkefnum, eða líta yfir
öxl nemenda og fylgjast með við
brögðum þeirra og einbeiting að
viðfangsefninu.
Ábyrgð bekkjarkennarans
minnkar síður en svo við tilkomu
sjónvarps, heldur stuðlar sjón-
varpið að því, að kennarinn geti
betur gegnt hlutverki sínu og
hjálpað þeim, sem þess þurfa með
— á þeim tíma, er þeir þurfa mest
hjálpar með.
Þessi verkaskipting er vinsæl
meðal kennara og fer vaxandi.
Þá er komið að þætti nemand-
ans.
Það er yfirlýst staðreynd af
hálfu fjölda skóla, sem njóta sjón-
varpskennslu, að nemendur láti
ekki truflast svo mjög af utanað-
komandi áhrifum meðan á sjón-
varpskennslu stendur. Nemend-
ur læra smám saman, að sjón-
varpið flytur þeim gagnlegar upp-
lýsingar, og yfirleitt finnst þeim
sjónvarpskennslan spennandi.
Þetta byggist að sjálfsögðu á
því, að sjónvarpið er einkum not-
að til að glæða áhuga og vekja
nemendur til starfa við einhvern
nýjan þátt í kennslustarfinu, frek-
ar en að þar sé alltaf um að ræða
mjög gagngera kennslu í sjálfri
greininni.
Nemendur hafa oftast tvö tæki
í stofu, þannig að allir sjá allt,
sem fram fer á skerminum; allir
liafa bezta sætið til að fylgjast með
því, sem fram fer.
Yfirleitt er reynt að byggja
sjónvarpskennslu þannig upp, að
Framhald á 15. síðu
Sjónvarpsefni er aðallega geymt á myndböndum. Þetta er úr forða-
búri skólans t'ljúgandi.
NÝKOMIÐ
Þýzkir drengjahaítar
Hvítir sportsokkar
Vatteraðar nylonúlpur
ELFOR
Laugavegi 38 — Snorrabraut 38 — Skólavörðustíg 13.
Síl d arsöltunarsfúllair
Söltunarstöðin Óskarsstöð h.f. á Raufar-
höfn óskar að ráða nokkrar duglegar síldar-
stúlkur í sumar. Kauptrygging.
Uppl. í síma 10724
ÓSKARSSTÖÐ H.F.
BLÖÐRUR - FLÖGG
íslenzk flögg (silki).
17. júní blöðrur með íslenzkum fána.
Blöðrur margar tegundir.
Heildverzlun Eiríks Ketitss.
Sími 23472 og 19155.
GOLFTEPPI -
TEPPADREGLAR
N Ý K O M I Ð :
Gólfteppi í mörgum stærðum og gerðum.
Hagstætt verð.
Enskir teppadreglar 366 cm br.
Greiðsluskilmálar. — Teppalagnir.
Verzlunin PERSÍA
L'augavegi 31 — Sími 11822.
Teak - Palisander
Nýkomið:
Teak: margar stærðir
__ .
Palisander: 2”
Álmur: .lVá” — 2”
Askur: 1W’ — 2”
Afromosía: V/z’ — 2” — 3”
Japönsk eik:
2” — 2VÁ” — 4”.
Sími: 24459.
Vöruafgreiðsla v/Shellveg
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. júní 1966 $