Alþýðublaðið - 14.06.1966, Síða 2
Eeimsfréttir
sidtesstlicSna nótt
HUE: — Cao Ky forsætisráðherra sendi enn hermenn til
liáskólabæjarins Hué í gær eftir átök hermanna og búddatrúar-
manna. Fyrír fjórum dögum voru 400 lögreglumenn sendir til
•Hué til að koma á lögum og reglu eftir samfelldar óeirðir í þrjá
snánuði og í gær voru 120 lögreglumenn til viðbótar sendir til
toæjarins vopnaðir byssum og táragassprengjum. í Saigon beitti
Íögreglan táragasi í gær gegn hópi búddatrúarmanna sem efndu
'til mótmælaaðgerða gegn stjórninni. í gær hrundu stjórnarher-
menn árás íjölmennra Vieteonghersveita skammt frá Danang og
etóðu bardagarnir í 12 tíma.
STOKKHÓLMI: — Danskir, sænskir og norskir flugmenn
Ihjá SAS hófu verkfall í gær eftir að slitnað hafði upp úr samn-
ingaviðræðum.
BONN: — Frakkar munu flytja burtu flugsveitir sínar í
Vestur-Þýzkalandi, að iþví er formælandi vestur-þýzka utanríkis--
eiráðuneytisins skýrði frá í gær. Talsmaðurinn sagði, að ekki
væri ijóst hvort allt fluglið Frakka yrði flutt burtu, en í því
eru rúmlega 11 þúsund menn. Franska stjórnin skýrði Bonn-
(Stjórninni frá þessari ákvörðun sinni er viðræður hófust um
framtíðarstöðu franska herliðsins í Vestur-Þýzkalandi í gær. Her
imálasérfræðingar segja, að ókleift mundi reynast fyrir deildir
franska flughersins í Vestur-Þýzkalandi að starfa með eðlilegum
ihætti þegar þær væru ekki lengur undir yfirstjórn NATO.
BERLÍN: — Leiðtogar Austur-Þjóðverja og Ungverja
þófu í gær viðræður um sambúð landanna örfáum klukkustund-
ttm eftir aö leiðtogi ungverska kommúnistaflokksins, Janos Kadar.
ikom í opinbera heimsókn.
PEKING: Nítján ára gamall Kínverji var dæmdur til dauða
f gær fyrir að hafa sært tvo útlendinga með hnífi. Iíann var á-
kærður fyrir tiiraun til að valda milliríkjadeilu og sverta Kín-
vterja í augum umheimsins með því að stinga starfskonu austur-
?ýzka sendiráðsins í Peking og blaðamann frá Mali með hnífL
©ómurinn var lesinn upp í stærstu íþróttahöll Peking og 13.000
otanns fögnuðu ákaft dauðadómnum yfir „hinum gagnbyltingar-
einnaða morðingja Yang Kuo Ohing.”
HELSINGFORS: — Aleksei Kosygin, forsætisráðherra Rússa
feom í gær til Finnlands í sex daga opinbera heimsókn, fyrstu
lieimsókn sína til Vestur-Evrópu síðan hann varð forsætisráð-
herra.
BASEL: — Helztu aðalbankar heims tilkynntu í gær nýjar
iráðstafanri er miða að því að treysta gengi pundsins. Samning-
nr um þessar ráðstafanir var undirritaður á fundi í Alþjóða-
.greiðslusambandinu (BIS), sem er samband helztu aðalbanka
iieims. Talið er, að gripið sé til aðgerðanna vegna uggs þess er
vaknað hefur vegna brezka farmannaverkfallsins og hins óhag-
istæða greiðshijöfnuðar.
GENF: — Kínverskir og albanskir fultrúar á fundi Heims
friðarráðsins, sem kommúnistar stjórna, mótfæltu í gær ólýðræð
islegum fundarreglum. Þeir mótmæltu því að ræðutími er ákveð-
inn 10 mínútur fyrir hvern mann og að bann er lagt við því að
iræða mál, sem ekki eru á dagskrá fundarins.
I GÆR
Stokkhólmi og Kaupmannaliöfn 13.
júní (NTB/TT-RB)
Danskir, sænskir og norskir flug
menn hjá SAS hófu verkfall í dag
eftir að slitnað hafði upp úr
samningaviðræðum.
Formaður skandinavisku sátta
nefndarinnarí Valter Áaman lands
höfðingi sagöi að ókleift liefði
reynzt að ná samkomulagi þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Verkfallið nær til allra flugvéla
SAS. Flugvélum þeim, sem stadd
ar eru utan Skandinavíu, verður
flogið heim og síðan munu áhafn
ir þeirra gera verkfall.
Ekki er unnt að segja fyrir um
hvnær verkfallið verður algert.
Þetta er fyrsta algera verkfallið
í sögu SAS. Talið er að það ko-ti
félagið 3 milljónir norskra króna
á dag.
Verkfallið á m.a. rót sína að
rekja til deilu um hvað samið
skuli til langs tíma Sáttanefndin
Síldin
Laugardagur 11. júní.
SL. sólarhring liafa síldveiði-
skipin aðallega verið að veiðum
90—95 milur SA frá Jan Mayen og
125 mílur ASA frá Langanesi. —
Veður var sæmilegt á þessum
slóðum.
Sl. sólarhring tilkynntu 11 skip
um afla, samtals 1.512 tonn.
Auðunn GK 50 tonn, Höfrungur
II. AK 100, Gunnar, SU 70, Dag-
fari, ÞH 196, Gísli Árni, RE 302,
Akurey, RE 220, Haraldur AK
90, Faxi GK 107, Hamravík, KE
167, Oddgeir ÞH 70, Reykjaborg
RE 140 tonn.
Sunnudagur, 12. júní:
Framhald á 15. síðn
hefur stungið upp á samningum
tll tveggja eða þriggja ára, en
flugmenn vilja ekki semja til
lengri tíma en eins árs.
Tiliögur sáttanefndarinnar fólu
í sér 35% launahækkun á þriggja
ára tímabili. Þetta mundi hafa það
í för með sér að launagreiðslur
SAS hækkuðu um 17 milljónir
sænskra króna. í ár nema launa
Eftir að verkfalið er skollið á
munu engar flugvélar hefja sig til
flugs frá Stokkhólmi, Kaupmanna
höfn og 0:10. Þegar flugvélar
þær, sem staddar eru utan Skandi
navíu, koma heim fjara flugsam
göngur út. Talið er, að allt flug
stöðvist á morgun.
Að sögn SAS verða gerðar ráð
stafanir til að tryggja farþegum
greiðslur SAS 47 milljónir s. kr. 1 far með öðrum flugfélgum
52 biðu bana í
járnbrautarslysi
Bombay 13. 6. (NTB-Reuter.)
Að minnsta kosti 52 menn biðu
bana og 106 slösuðust alvarlega
þegar tvær járnbrautalestir rák-
ust á í Bombay í morgun. Orsök
slyssins er ókunn( en talið er ar
um tæknibliun geti hafa verið að
ræða. Ekki er talið að slysið hafi
oröið af völdum skemmdarverka,
en mörg skemmdarverk liafa ver
ið unnin á járnbrautarlestum
á Indlandi á þessu ári og eru
Naga stríðsmenn grunaðir um að
standa á bak við þau.
Mikið hefur verið um árekstra
og sprengingar í indverskum jám
brautum það sem af er þessu
ári og staðfest hefur verið að
Naga-menn eigi sökina á tveimur
þessara slysa. Mesta jámbrautar
slysið fyrir utan slysið • í dag var
26. maí þegar hraðlestin Banga
lore-poona fór út af sporinu og
22 manns biðu bana. í maíbyrjun
biðu 11 bana og nolckur hundr
uð særðust í sprengingu í vöru
flutningalest skammt frá Bombay.
Þorsteinn hlaut
Silfurlampann
Brezkt hafrannsoknar og
sjómælingaskip statt hér
HMS. HYDRA, nýtt, brezkt haf-
.rannsókna- og sjómælingaskip
feom til Reykjavíkur í gær. Þetta
er þriðja skipið sinnar tegundar,
eem byggt er fyrir brezka sjóher-
íqn með ofangreint hlutverk í
huga, einkum varðandi rannsókn-
Ír á djúpsævi. Skipið er 2800 tonn
og ganghraði er 14 hnútar. Skipið
er útbúið lofthitunar- og loftkæl-
íngarkerfi, sem gerir því kleift
að starfa hvar sem er á linettin-
um. Það er ennfremur sérstaklega
etyrkt til siglinga í ís. Skipið er
fcúið bólgskrúfum til að auðve.lda
nákvæmar rannsóknir við óhag-
stæð veðurskilyrði. Á skipinu er
Landrover jeppi, ef til landgöngu
skyldi ráðizt og þar er einnig
þyrla um borð. Þá er skipið búið
g ALÞÝUBLAÐIÐ - 14. júní 1966
rannsóknarstofum, Ijósmyndaút-
búnaði, þvottahúsi og spítala með
fullkomnum búnaði. Á Hydru er
áhöfn 12 yfirmanna og 100 und-
irmanna, sem sumir hverjir liafa
hlotið sérmenntun í hafrannsókii-
um.
Hydra er systurskip Heklu, sem
var fyrsta skipið í þessum flokki,
en annað var HMS. Heeate. Nafn-
ið Ilydra er komið úr grískri
goðafræði, en táknaði þar ferlíki
eitt mikið. Mynd af því getur að
líta á skipinu.
Skipherra á Hydru er Com-
mander J. Paton, en hann hefur
starfað að hafrannsóknum síðan
1946. Skipið verður aðallega að
rannsóknum sínum á Atlantshafi
— suður af íslandi.
í GÆRKVÖLDI var Þorsteini
Ö. Stephensen veittur silfurlamp-
inn fyrir leik sinn í hlutverki
pressarans í Dúfnaveizlunni.
Silfurlampinn er veittur af
Félagi leikdómara á hverju vori
fyrir bezta leik ársins.
Formaður Félags leikdómara,
Sigurður A. Magnússon, afhenti
Þorsteini silfurlampann í hófi sem
haldlð var í Þjóðleikhússkjallar-
anum í gærkvöldi. Þetta er í ann-
að skipti sem Þorsteinn hlýtur
Silfurlampann. Áður var honum
veittur lampinn fyrir leik sinn í
Browning þýðingunni.
Við atkvæðagreiðslu leikdóm-
ara að þessu sinni hlaut Þorsteinn
450 stig fyrir leik sinn í Dúfna-
veizlunni. Herdís Þorvaldsdóttir
hlaut 325 stig fyrir leik sinn í
hlutverki Maggie í Syndafallinu
og fyrir leik í Fei-ðin til skugg-
anna grænu . Er þetta 3. árið í
röð sem hún er nærthæst að stiga
fjölda. Lárus Pálsson hlaut
275 stig fyrir hlutverk Engströms
í Afturgöngunum og Helga Val-
týsdóttir 225 stig fyrir Mutter
Courage.
•V
\ -V l u