Alþýðublaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 10
 j=RitstiórTOm ! iöasti leikur Norwich er á morgun, fiá leikur liðiö við ÍBK i Njarðvíkum á rvalið stóð sig sæmilega - n Norwich sigraði með 2:1 ÞAÐ var sunnan rok og rigning 'Akranesi sl. sunnudag er Úrvals lfc landsliðsnefndar lék við enska 1 íið Norwieh. Þrátt fyrir þessi semu skilyrði komst íslenzka lið- í saemilega frá lelk sínum og r ega að minnsta kosti vel við úr- slitin una, sérstaklega, ef úrslit- in í leiknum við Dndee á dögun- um eru höfð í huga. Það var vörnin sem var sterk- a ‘i hluti liðsins og barðist hún \ ;1 allan leikinn út. ■Framlínan hafði ekki árangur s >m erfiði og var greinilegt að 1 ún kunni ekki að notfæra sér \ indinn í fyrri hálfleik. Það var t. d mjög áberandi hjá Herði Mark- ain hvað hann missti boltann oft ut af, á hægri kantinum í fyrri ’álfleik af þessum sökum. Allmiklar breytingar voru á ís- lþnzka liðinu í leiknum. Ellert Schram lék ekki, en í hans að kom Jón Leósson. Þá yfir- dáfu þeir leikvöllinn í fyrri hálf- 1 ?ik. Eyleifur og Guðmundur Har- i Idsson, en í staðinn komu Skaga- r íennirnir Guðmundur Guðmunds spn og Matthías Hallgrímsson. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, en þá sóttu íslendingarnir undan vindinum, sem þeir kunnu ekki að notfæra sér. Það voru Bretarnir, sem skor- uðu fyrsta mark leiks, eftir um hálftíma leik og var það Bryce- land innherji sem það skoraði. Vonuðu margir að íslendingarnir mundu svara fyrir sig, en sú von brást og lauk hálfleiknum án þess að fleiri mörk væru skoruð. Eftir um 12 mín. leik í síðari hálfleik bæta Bretarnir öðru marki við, eftir misheppnað útspark. — Curran. útherji, náði knettinum og skoraði frá vítateigshorninu með ágætu skoti, en Guttormur markvörður var of seinn niður og missti af knettinum. Nokkru fyrir leikslok náðu ís- lendingar að skora. Náðu þeir upp ágætri sókn og skoraði Hermann miðherji. Lauk leiknum því með naumum sigri Norwich, 2 gegn 1. Landsliðsnefnd getur eftir at- vikum verið ánægð með leik liðs síns. Henni er vissulega mikill vandi á höndum, með að velja lið, eins og ástatt er, þar sem fáir skara fram úr, en meðalmennsk- an virðist allsráðandi hjá knatt- spyrnuliðunum í dag. Varnarliðsmennirnir, Guttorm- ur, Árni, Ársæll og Þorsteinn áttu allir ágætan leik og börðust vel allan tímann. Jón Leósson, sem kom inn sem varamaður, var að vísu með slakara móti, en hann hefur sýnt að hann á heima í lið- inu. Framlínan átti slæman dag og náði aldrei að ógna, svo orð sé af gerandi, ef undan er skilið þetta eina mark sem skorað var. Því ekki að notfæra sér vindinn í fyrri hálfleik og reyna langskot? Norwich átti að þessu sinni ekki eins góðan leik og á móti Skaga- mönnum á föstudaginn. En eins og við var að búast voru þeir fremri á öllum sviðum. Blautur og háll völlur er ekkert óvenjulegt fyrir þá, þar sem þeir leika meiri hlutann af sínu keppnistímabili við slíkar aðstæður. Helzt hefur það verið rokið og kuldinn sem hefur háð þeim. Magnús Péturs- son dæmdi leikinn og gerði það vel. — Síðasti leikur Norwich hér á landi að þessu sinni, verður við Keflvíkinga og fer hann fram nk. miðvikudag á grasvellinum í Njarð I vík. — Hdan. Bergsveinn Alfonsson (með knöttinn) skoraði mark úrvalsins í leiknum á Akranesi. — Myndir: JV. Mikil þátttaka í Firmakeppni G.R. Iíermann sækir að markverði Norwich í leiknum á sunnudag. Hin árlega Firmakeppni G.R. hófst á velli félagsins við Grafar holt, laugardaginn 4. júní og lauk eigi fyrr en síðdegis næsta dag. 181 firma tók þátt í keppninni. Á laugardag var keppnin mjög tvísýn og fór svo að eftirtalin 5 firmu voru jöfn í 'fyrsta sæti að loknum 18 holum. 1—5. Blóm og ávextir, (kylfing ur Hans ísebarn). Kristján Ó. Skagfjörð (kylfingur Jón Þór Ó1 afsson) Bifreiðastöð Steindórs (kylfingur Þorvarður Árnason) Gufubaðstofan Kvi'thaga 29 (kylf ingur Sveinn Snorrason) Þennan dag kom skemmtilegur atburður fyrir. Páll Ásgeir Tryggva son lék fyrir Vogaver lék síðustu Iholuna í umferðinni „í höggi“ (hole in one). Þetta skeði á 2. holu, sem er 145 metra löng. Auk þess er þetta í fyr>-ta sinn, er Páll leikur „holu í höggi“, þó að hann hafi stundum verið sjónar vottur að slíku. Nokkrum dögum áður en Firmakeppnin hófst, lék frú Ólöf Geirsdóttir sömuleiðis „holu í höggi“ þ.e. að segja 11 hoTuna, sem hlýtur að teljast mjög vel að verið enda hefur frúin not ið ágætrar leiðsagnar golfkennara IféCagsirns, Magnúsar Guðmunds sonar frá Akureyri. Frú Ólöf er nýliði í golfíþróttinni og leikur mjög sæmilega miðað við svo skamman tíma. Þessi 5 firmu léku síðan tij úr slita sunnudaginn 5. júní. Leiknar voru 18 holur (höggleikur). Eftir harða og skemmtilega keppni feng ust úrslit í Firmakeppni G.R. 1966 úrslit urðu sem hér segir.: Sigurvegari varð Verzlunin Þing holt (kylfingur Jón Þór Ólafsson) á 89—29 60 högg 2. Kristján Ó Skagfjörð (kylfing ur Tómas Árnason) á 81—19 62 högg. 3.-4. Bióm og ávextir (kylfingur Hans ísebarn) á 88—22 66 högg. 3.-4. Gufubaðstofan Kvisthaga 29 (kylfingur Sveinn Snorrason) 88 —22 66 högg. 5. Bifreiðastöð Steindórs (kylfing ur Þorvarður Árnason) á 88—21 67 högg. Golfklúbbur Reykjavíkur er ört vaxandi íþróttafélag og metur mik ils þann góða stuðning, sem fé laginu var veittur með svo góðri þátttöku í Firmakeppni félagsins að þessu sinni. Frá Goífklúbb Suðurnesja Úrslit keppninnar um „Aðal- stöðvarbikarinn1 ‘ fóru fram á Hólmsvelli í Leiru miðvikudaginn 8 þ.m. við erfðar aðstæður, suð austan roki og rigningu. Þorbjörn Kjærbo sigraði Þor- geir Þorsteinsson í úrslitum í mjög jöfnum og tvísýnum leik Hafði Þorbjörn eina holu yfir eftir að 18 holur höfðu verið leiknar. Keppnin um „Aðalstöðvarbikar inn“ hófst 21. fyrra mánaðar og hefir verið mjög skemmtileg og þátttaka í henni góð. Beztum árangri í undanrás með forgjöf náðu þessir: Jón Þorrteinsson 70 högg, mínus 13=57. Hafsteinn Þorgeirsson 73 högg, minus 9=64. Högni Gunn laugsson 91 högg, mínus 26 = 65. Kristján Pétursson 84 högg, mínus 19 = 65. Án forgjafar náðu bezturn ár angri: Framhald á 11. síðu. 20 ALÞÝUBLAÐIÐ — 14. júní 1966

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.