Alþýðublaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 16
Baráttan fyrir bættu veðri Karlinn var íðí £ gœr og .var eins og fyrri daginn að að leggja mér lífsreglurnar. )t>ið vitið hvað fílósófían hjá j honum er alltaf lummó. — iHann sagði til dæmis þetta: iEf þú réttir fjandanum litla ífingur, drengur minn, þá •'færðu hring á puttann við hliðina á . . . Engiarnir spila á fallega sfúðra, en aumingja fjand* flnn hefur bara horn ... C6li Valur ráðunautur birtir . stutta þætti um allmarga igarðyrkjubændur, þar sem tfceir rekja lífs- og ræktunar- fferil sinn . . . Tíminn, MEY álítur að rannsaka i beri hvort ekki sé brýn nauð- syn á að úða sitthvað fleira í .þjóðfélagi voru en garðana. nú ærlega útvortis, sem neita sér um innvortis vökvun. Undir þetta getur Baksíðan ekki tekið, því að hún telur, að þurrleikinn einn só þeirra rétta element, jafnt að utan sem innan. Aðrir halda, að veðr- áttan að undanförnu hafi bara verið höfð svona af stríðni við veðurfræðingana, sem hafa setið á heljarmiklu þingi og þessi skoð un hefur meira að segja stungið upp kollinum hér á Baksíðunni. En varla mun þó neitt hald vera í henni heldur. Auðvitað hafa veðurfræðingarnh- valið sér bezta kafla sumarsins til sinna funda- halda, og þess vegna má búast við, að rigningarnar eigi eftir mjög að aukast. Kétt er þó að geta þess, að end- ingu, að Baksíðan hefur áður spáð fyi’ir um veður, og tekizt það með eindæmum illa. Sannast sagna, þá hefur Baksíðan jafnvel enn minni spásagnargáfu á veður en sjálf veðurstofan. Þess vegna má líta á spár okkar núna um rigningasum- ar sem lið í baráttunni fyrir bættu veðri. r Jb Ls pau ii — Má ég vera með? Ábendsng Suður í Sómalíu býr sannlega gáfuð þjóð. Átta af hverjum tíu yrkja þar Ijóð. Væri nokkur fjarstæða að fá þaðan skáldablóð? ____LÓMUB., ..... fWVVVMWVWWWVVVVWWWWWVWVWWVWWWWVWW ÞEGAR þetta er skrifað, er sæmilega þurrt veður, en sjálfsagt verður aftur farið að rigna, þegar menn lesa þetta. Undanfarna sól- arhringa hefur rignt ein lifandis býsn, og ótrúlegt er annað en svipað veðurlag verði áfram eitt- hvað fram eftir sumrinu. Þótt suð- vesturkjálki landsins geti yfir- leitt ekki stært sig af stöðugleika í veðurlagi og hér sé sjaldan sams konar veður að morgni og var kvöldið áður, þá getur vætutíðin stundum verið alveg ótrúlega þrá- lát. Ýmsir eru þeirrar skoðunar, að mikið rigningasumar sé fram und- an. Satt að segja er líka kominn tími til þess, því að hér hefur ekki komið ærlegt rigningasumar í 11 ár eða síðan 1955, en í út- löndum hefur hverju rigningar- sumi’inu öðru meira rignt yfir menn nú um allangt árabil, og þess vegna er ekki nema mann- legt, að við förum að verða svip- aðrar veðráttu aðnjótandi. Og af því að öllu er alltaf að fara fram og árangur ævinlega að batna á öllum sviðum, þá er auðvitað við- búið að væntanlegt rigningasum- ar verði meira rigningasumar en nokkurn tíma hefur dunið yfir þetta land, enda væri satt að segja lítið varið í það, ef ekkert met væri slegið. Það skal tekið fram, að Bak- síðan hefur ekki borið þennan spádóm sinn um rigningasumar undir veðurfræðinga og henni er öldungis ókunnugt um það, hvað veðurstofan hefur um málið að segja. Trúlega hættir sú ágæta stofnun þó ekki á það að spá nema til næsta dags, eins og hún er vön, enda verður það að teljast viturleg varkárni að vilja ekki fá á sig skammir fyrir margra daga óveður í einu. En jafnvel þó að veðurstofan tæki á sig rögg og spáði sóiarblíðu í allt sumar fram á haust, þá breytti það engu um afstöðu Baksíðunnar. Baksíðan er þeirrar trúar, að sumarið verðí með eindæmum vætusamt, og ef að líkum lætur verða 17. júní og dagarnir kringum verzlunar- mannahelgina langblautastir allra. Því hefur heyrzt fleygt, að rign- ingarnar núna standi í einhverju sambandi við það, að Stórstúkan er að halda þing og á auk þess merkilegt afmæli á vorinu. Fylgis menn þessarar skoðunar halda því sem sé fram, að máttarvöldunum hafi þótt hæfa að vökva þá menn

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.