Alþýðublaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 5
I
Frá vinstri: Sigursveinn D. Kristinsson, Magnús E. Guðjónsson, bæjarstjóri, Heiffrún Steingrímsdóttir
og Theódór A. Jónsson.
Áttunda þing S.jálí'sbj'argar,
landssambands íatlaðra, var háð
í Skíðahótelinu, Hlíðarfjalli, Akur
eyri^ dagana 4—6. júní sl. og var
sett laugardaginn 4. júní kl. 10 fh.
af formanni landsambandsins,
Theóduri Á. Jónssyni.
Þingforsetar voru kjörin, Sig
Ursveinn D. Kristinsson Reykja-
vík og Heiðrún Steingrímsdóttir
Akureyri.
Ritarar voru kjörin, Árni Sveins
son, Reykjavik, Þórður Jóhanns
son, Hveragerði, Þorgerður Þórð
ardóttir, Húsavík og Sveinn Þor
steinsson, Akureyri.
Mættir voru 41 fulltrúi frá öll
um félagsdeildunum 10t Reykja
vík, Árne sýslu, Bolungarvík, ísa
firði, Siglufirði, Sauðárkróki, Ak
^reyri, Húsavík, Vestmannaeyj
um og Keflavík.
Að lokinni kosninglu I starfsL
manna þingsins, flutti formaður
sambandsins sameiginlega skýrslu
stjórnar og framkvæmdastjóra.
Innan sambandsins eru nú 10
félög með um 790 félaga og um
610 styrktarfélaga
Skrifstofan að Bræðraborgar-
stíg 9, var rekin með sama sniði
og áður. Til hennar leituðu á síð
astliðnu starfsári 1189 einstakling
ar, sem fengu margháttaða fyrir
greiðsju í félag=- og atvinnumál
um. Framkv.stjári sambandsins
er Trausti Sigurlaugsson
Á árinu var unnið áfram að
undirbúningi að byggingu samtak
anna í Reykjavík, við Hátún aust
an Laugarne-vegar. Byggt verður
í áföngum og er í fyrsta áfanga
ráðgert vistheimili fyrir 45 manns
æffngastöð, virtnu'tofujr, fundar
salur, skrifstofur og fleira. Fyrsti
áfangi er 16.800 rúmmetrar og
munu framkvæmdir hefjast á þessu
ári, en öll er byggingin samtals
2^ 000 rúmmetrar. Bvgeingin er
teiknuð af Teiknistofunni sf., Ár
mi'da 6 en einnig var haft saroráð
við danska arkitekta sem mikla
reyn-lu hafa í að teikna bygging
art sem sérstaklega eru skipulagð
ar fyrir mikið fatlað fólk.
Mun þetta verða stórt átak hjá
samtökunum að koma þessari bygg
ingu upp, en nú eru í Styrktar
sjóði fatlaðra um 4,2 milljónir
króna.
Á árinu var einnig unnið að því
að fá Húsnæðismálastofnun rík
isins til að viðurkenna férstöðu
öryrkja og þeir nytu betri lána
en almennt, til að eignast eigin
íbúðir. Að ósk Sjálfsbjargar, lands
sambands fatlaðra skrifaði félags
má'jaráðherra, formanni Húsnæðis
málastofnunarinnar og mælti með
því, að þetta yrði tekið til athug
tinar í sambandi við heildarend
ur koðun á löggjöfinni um hús-
næðismál.
Þá var Arkitektafélagi íslands
send áskorun, þess efnis, að tek
ið yrði tiBit, til fatlaðra, við skiou
lag og teikningu opinberra bygg-
inga.
Gjaldkeri sambandsins Eirikur
Framhald á 15. síðu.
Gólfflísar
Vinylgólfflísar ávallt fyrirliggjandi í fjölbreyttu úrvali.
Einnig mikiff úrval af Vinylgólfdúk meff áföstu korki
eða fílti
FAGMENN OG EFNI Á SAMA STAÐ.
Klæðning
Laugavegi 164. — Simi 21444.
SELJUM ADEINS >ÁD BEZTA
Leiguíbúðir
crð Austurbrún 6
Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að
auglýsa til leigu 67 íbúðir í háhýsi að Aus-
turbrún 6.
íbúðir þessar eru 1 herbergi með svefn-
krók, eldhús og bað og eru sérstaklega ætl-
aðar öldruðu fólki, öryrkjum og einstæðum
mæðrum.
Væntanlega verða íbúðir þessar fullgerð-
ar í júlímánuði.
Ákveðið hefur verið, að eftirtaldar meg-
inreglur gildi um úthlutun:
1 Við úthlutun á íbúðum til aldraðra,
koma þeir einir til greina, sem náð hafa , ■
ellilífeyrisaldri.
: :
2 Úthlutun íbúða til öryrkja er því
skilyrði háð að um sé að ræða minnst
75% örorku að mati tryggingalæknis.
3. Búseta í Reykjavík s.l. 7 ár er skil-
yrði.
f ■
4 íbúðir þessar eru að hluta ætlaðar 1
til útrýmingar heilsuspillandi húsnæð-
is og munu þeir 'að öðru jöfnu ganga
fyrir, sem búa í óíbúðarhæfu húsnæði.
5. Eigendur íbúða koma eigi til greina,
Að öðru leyti mun borgarráð setja nán-
ari reglur um úthlutun leiguíbúða þessara.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í skrif-
stofu félags- og framfærslumála, Pósthús-
stræti 9, Reykjavík og skulu umsóknir hafa
borist eigi síðar en 28. þ.m. til húsnæðisfull-
trúa, sem gefur allar frekari upplýsingar.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
ALÞÝUBLAÐIÐ - 14. júní 1966 §