Alþýðublaðið - 26.06.1966, Síða 7
% ur hafa-skarað fram úr í frjálsum
.. íþróttum? ,
— Já, menntaskólanemendur
hafa getið sér mjög góðan orðátír
sem íþróttamenn á flestum sVið-
um. Við kepptum oft við háskól-
ann í leikfimi, en það hefur lefeið
niðri um sinn vegna þess að ejtki
er rúm í húsinu fyrir aukaæfihg-
ar, en áhuginn er þó sízt minni,
en var áður fyrr.
— Hvað er þér nú sérstakléga
minnisstætt úr þínu langa starfi
við Menntaskólann? i
upp skfðaferðir. Við Pálmi Hann-
esson, Einar Magnússon , og ég
skiptum með okkur að fata með
hópunum.
Fimmtubekkjarferðirnar hef ég
farið í flestar, síðan þær hófust
um 1930, og framan af ferðuð-
umst við þannig, að við gistum í
tjöldum og matreiddum sjálf og
voru ferðirnar þá, að ég held,
miklu skemmtilegri, enda voru
þær þá yfirleitt lengri. Þá vorum
við ekki bundin við nein hótel
eða þess háttar; einu sinni man
— Og er nú ekki margs að sakna
úr starfiríu?
— Þú skalt bera kveðju mína
til allra minna nemenda frá fyrstu
tíð. Ég hef sérstaklega saknað
þess að skilja við góða flokka og
geta ekki fylgt þeim lengur, og
enn þann dag í dag, þó að ég sé
þreyttur og látur óg kem inn í
góðan bekk,fer ég þaðan út aftur
eins og nýr maður, öll þreyta horf-
in. Og það er sérstaklega sú
heilsubót, sem ég hlýt að sakna
hér eftir.
— Ferðalögin finnst mér mjög
eftirminnileg. Helgarferðirnar
voru sérstaklega eftirminnilegar,
þá fórum við Pálmi Hannesson og
Einar Magnússon oft á laugardög-
um eða sunnudögum í „Grána”,
menntaskólabílnum, með bekki
út úr bænum. Við ókum þá
„Grána” sjálfir og fórum oftast í
gönguferðir á nærliggjandi fjöll
og svo var komið heim að kvöldi.
I fyrstu ferðinni, er við fórum,
vár lítil þátttaka, aðeins 7 nem-
endur úr öllum bekkjum, en brátt
varð aðsóknin í ferðirnar svo mik-
il, að við réðum ekki við það, þar
sem bíllinn var aðeins einn; er
skólinn átti, og of dýrt að leigja
bíla um hverja helgi. Þá var ráð-
izt í það að byggja selið.
Við fórum einnig í skíðaferðir,
oft um hverja helgi, Menntaskól-
inn var fyrsti skólinn til að taka
ég eftir að við Pálmi Hannesson
vorum að koma með bekk í Hval-
fjarðarbotn kl. 7 um kvöld á leið
heim í glampandi sól og hita. Þá
datt okkur allt í einu í hug að
tjalda þar og fresta heimförinni.
Daginn eftir gengum við svo á
fjölk
Lengsta ferð, sem ég man eftir
var 13 daga ferð. En hún varð
svo löng, vegna þess að Markar-
fljót og Kerlingardalsá voru ó-
færar og vötnin á söndunum líka.
Og alltaf sat „Gráni” fastur.
Lárus Pálsson leikari var þá í
5. bekk og hefur skrifað sögu urn
þessa ferð og kannast margir við
hana. Sú saga hefur oft verið les-
in upp í selinu.
Ferðalögin voru skemmtileg og
ógleymanleg og ég tel að þau hafi
haft mikla þýðingu fyrir skólann.
Ég hef haft mjög marga
góða nemendur. Ég hef verið
heppinn að því leyti, að alvarleg
meiðsli hafa aldrei komið fyrir í
tímum hjá mér, og það tel ég
mikla heppni.
Mér hefur alltaf fallið vel við
mitt starf, aldrei leiðzt að kenna
leikfimi. Ég mundi gjarnan vilja
segja það, að til þess að mönnum
ekki leiðist kennsla, verða þeir
að kynnast börnunum eða ung-
lingunum. Það, sem ég held, að
hafi verið minn styrkur, er, að
ég hef aldrei verið með neinn her
foringjastíl, nemendur alltaf ver-
ið góðir vinir mínir og alltaf verið
góð samvinna með okkur.
A.K.B.
Leikfimihús Mennt'askól-
ans í Reykjavík, en þar hef
ur Valdimar kennt leikfimi
í áratugi.
> :
Bónstöð Garðars
Skúlagötu 40.
Vel bónaður bíll er yndisauki eigandans.
Fljót og góð vinna. - Opið kl. 8 f.h. til 7 e.h.
t í
. t
' :
TILKYNNING
frá Háskólia íslands.
Skrásetning nýrra stúdenta í Háskóla ís-
lands hefst föstudaginn 1. júlí 1966 og lýk-
ur föstudaginn 29. júlí 1966.
Við skrásetningu skulu stúdentar út-
fylla eyðublað, sem fæst á skrifstofu Há-
skólans. Ennfremur skulu þeir afhenda ljós-
rit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskír-
teini og greiða skrásetningargjald, sem er
1000 kr.
Skrásetningin fer fram alla virka daga
nema laugardaga (á mánudögum til kl. 6
e.h.). Ekki er nauðsynlegt, að stúdent komi
sjálfur til skrásetningar.
i
\
+
i- í
f
Verð fjarverandi
til 12. júlí. Þorgeir Gestsson Háteigsvegi.
1 gegnir sjúkrasamlagsstörfum fyrir mig.
Ófeigur J. Ófeigsson læknir.
-1
TILBOÐ
óskast í nokkfar fólksbifreiðar er verða sýnd
ar að Grensásvegi 9, má'nudaginn 27. júní
kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu
vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
LOKAÐ
Skrifstofur vorar og afgreiðsla að Lauga-
vegi 114 verða lokaðar mánudaginn 27. júní
vegna skemmtiferðar starfsfólks.
Tryggingastofnun ríkisins.
Áskriftasíminn er 14901
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. júní 1966 J