Alþýðublaðið - 23.08.1966, Page 3
Fliigvélasýnmg á
Keflavíkurvelli
Næstkomandi sunnudag, 28. ág
úst, mun varnarlið Atlantshafs-
bandalagsins á íslandi lialda sýn
ingu á Keflavíkurflugvelli fyrir
almenning. Sýningin hefst kl. 1
e.h. og eru allir Íslendingar vel
komnir á þessa sýningu.
Sýndar verða ýmsar gerðir flug
véla og margs konar annar bún
aður og tæki. Auk þess verður
sýningargestum heimilt að skoða
ný skólahús, íþrótta- og leiksvæði
og annan aðbúnað, svo og ýmsa
aðra staði stöðvarinnar, þar á með
al slökkvistöð vallarins, en slökkvi
liðið er skipað bæði íslendingum
Tvennt slasast við
dráttarvélaveltur
Rvk.-ÓTJ.
Tvö síys urðu á Snæfellsnesi
um helgina, og bæði við það að
dráttarvélar ultu. Fyrir öðru slys
inu varg Ólafía Þorsteinssdóttir,
húsfreyja á Setbergi í Skógar-
strandarhreppi. Hún var við
vinnu úti á túni, á dráttarvél,
sem af einhverjum órsökum valt.
Varð Ólafía undir vélinni og
og- mun hafa mjaðmagrindarbrotn
ag. Fyrir hinu slysinu varð
drengur um fermingu, á túninu
að Grund í Eyrarsveit. Valt drátt
arvélin við að lenda ofan í
skurði og varð drengurinn undir.
Hann var fluttur á spítala í
Stykkishólmi og þar gert að
meiðslum hans sem voru mjög
mikil, en ekki talinn í lífshættu.
og Bandaríkjamönnum. Slökkvi-
liðið mun sýna slökkvistarf og
verður notuð skemmd þota við
það atriði. Ennfremur geta gestir
sýningari»ínar fengið að skoða
veðurstofuna , en þar starfa ís
lendingar og Bandaríkjamenn sam
an.
Verði veðurskilyrði hag-
stæð er ráðgerð mikil flugsýning
klukkan 3 e.h. ásamt fallhlífar
stökki. Einnig muínu bjöngunar i
sveitir vajlarins sýna björgunar 1
siörf með þyrlu.
Við vallarhliðið verður afhent
ur leiðbeiningabæklingur og í
honum eru sýndir m.a. þeir staðir
sem opnir eru sýningargestum.
Á sýningu þessari gefst íslend
ingum sérstakt tækifæri til að sjá
útbúnað Atlantshafsbandalagsins
og kynnast því starfi sem banda
lagið hefur með höndum, til vernd
ar friði og öryggi við ísland og
annars staðar við norðanvert At
lantshaf.
ICÍBíverjar. „
Framhald af 1. síðu.
götur skýi-ðar upp og heita nú
menningarlegum baráttunöfnum.
Menningarbaráttuspjöld voru
hengd víða um borgina, og voru
ritaðar á þau áskoranir um að
fólk ætti að taka sinnaskiptum og
láta af gömlum og úreltum siðum
og hugmyndum, og helga liug sinn
og líf hugsjónum menningarbylt-
ingarinnar. Unglingarnir hafa
meðal annars heimtað að fólk taki
upp þjóðlega hárgreiðslu og hætti
að ganga í támjóum skóm að
hætti útlendinga.
VOLSUNGAR I DYRHOLAOSI
Reykjavík OÓ.
Kvikmyndun Völsungasögu,
það er að segja þeim hluta
hennar, sem tekin verður á ís-
landi, hófst við Dyrhólaey s.l.
sunnudag. í Dyrhólaósi flaut
skip af þeirri gerð, sem kennd
er við víkinga, einmastrað. í
stafni er gapandi drekahaus,
sem gnæfir hátt yfir hafflötinn
og skuturinn er fagurlega út-
skorinn.
Byrjað var á að mynda þau
atri'ði er Sigurður Fáfnisbani
leggur skipinu að landi, en síð-
ar verður skipið sett á haf út
og siglingin að landinu kvik-
mynduð. Verður það gert vest-
an Dyrhólaeyjar.
Dyrhólaós er að austanverðu
eyjarinnar og hefur hann verið
stíflaður við ströndina, til að
nægilegt vatn safnist í ofan-
verðan ósinn, þannig að skipið
fljóti og hægt sé að láta það
sigla þar fram og til baka.
Hópur kvikmyndafólks hafðist
við á sandinum austan við ós-
inn, meðan myndatakan fór
fram á sunnudag. Þar gaf að
líta knálega liðsmenn Guðrún-
ar Gjúkadóttur, íklæddum skó-
síðum kirtlum og girtum sverð-
um afar hárprúðar ljóshærðar
konur sem vöfruðu fram og til
baka um sandinn í fádæma
efnismiklum pilsum, og biðu
eftir að kæmi að þeim atriðum,
sem þær eiga að leika í. Og
einsog alltaf þegar verið er að
talca stórmyndir sátu óteljandi
menn og konur á stólum, sem
hægt er að leggja saman, hér
og hvar umhverfis athafna-
svæðið, og virtust lítið hafa
annað að gera en sofa.
Við vestanverðan ósinn er
hár. höfði með frábæru útsýni
yfir kvikmyndasvæðið, og þar
héldu áhorfendur sig og horfðu
á skipið dregið fram og til
baka um ósinn meðan kvik-
myndað var í sífellu.
í skut skipsins stóðu Fáfnis-
bani við stýri íklæddur brúnni
skyggju og brynju, með hár-
greiðslu sem sóma mundi
hvaða titli, sem væri og bak við
hann sat dvergur, sem lagði á
ráðin hvernig Sigurður skyldi
haga sér þegar á land er komið
við að vekja Guðrúnu Gjúka-
dóttur af værum hundrað ára
blundi og taka sér fyrr konu.
En þeir sigldu farkostinum
einir til íslands. Kvikmynda-
vélinni var komið fyrir mið-
skips og atriðið tekið aftur eft-
ir skipinu.
Aðeins eitt atriði var tekið
fyrsta daginn, það er að segja
af dvergnum og Sigurði í
skutnum. Heldur illa gekk í
fyrstu meðan verið var að læra
hvernig stjórna skyldi skipinu,
en þegar leið á daginn fór allt
að ganga betur. Sá sem mest
hafði að gera var Bjarni Ein-
arsson, skiþasmiður, en hann
sá um smíði skipsins. Var hann
á þönum fram og til baka við
stjórn skipsins. f landi voru
nokkrir menn sem höfðu þann
starfa að draga farkostinn fram
og til baka um ósinn, en hann
þurfti að vera á ferð meðan
myndirnar voru teknar. Atriðið
var tekið upp aftur og aftur
og virtist leikstjórinn, sem sat
framan við kvikmyndavélina
aldrei ætla að verða ánægður,
og dráttarmennirnir í landi
máttu draga skipið aftur á bak
og áfram klukkutímum saman
meðan flestir leikara og að-
stoðarmanna í landi sváfu í
stólum sínum eða tuskuðust á
sandinum.
Ógnvekjandi öskur úr Iandi
eyðilagði eina upptökuna. Her-
klæddur leikari hafði fengið
hest að láni hjá manni sem
komið hafði að skoða undrin.
Eitthvað kunni hrossið illa við
knapann og setii hann af baki
eftir stutta reið og gaf reið-
maðurinn frá sér hljóðin. Fáfn
isbani hrökk í kút þar sem
hann stóð við stýri og fólkið
í stólunum vaknaði og spratt
upp. Það gerði sá síðklæddi
einnig og varð ekki meint af.
Allir hlógu að þessum atburði
og höfðu gaman af, nema leik-
stjórinn, dr. Reinl. Heimtaði
hann að enn skyldi atriðið tek- -
ið upp og enn máttu dráttar-
menn taka á honum stóra sín-
um.
Þegar leið að kvöldi fóru á-
horfendur á höfðanum að tín-
ast til bíla sinna og halda heim
og kvikmyndamenn að taka
saman pjönkur sínar. Kvik-
myndað verður í ósunum í
nokkra daga, en síðar í vik-
unni verður stíflan tekin úr
og skipinu siglt út á haf og
myndað þar. Þá verða tekin
nokkur bardagaatriði 4 Þing-
völlum og ef til vill víðar. Ekki
mun enn ákveðið hvort búið
verður til eldfjall til kvik-
myndunar eða gamli Surtur
fær hlutverkið.
Búið er að taka mestan hluta
kvikmyndarinnar í Þýzkalandi
og í Júgóslavíu, en þangað
verður aftur haldið þegar Iok-
ið er við upptökur hér. Búizt
er við að ljúka kvikmyndun-
inni á íslandi eftir um þrjár
vikur, en það getur dregist ef
illa viðrar.
23. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3g