Alþýðublaðið - 23.08.1966, Blaðsíða 11
Valsmenn stó&u sig vel
- jafntefli I gegn I
Valur lék fyrri leik sinn í Evr
ópubikarkeppninni gegn Standard
de Liége á Laugardalsvellinum í
gærkvöldi. Ágætt veður var og
áhorfendur margir og skemmtu
sér prýðilega enda leikurinn all
iþokkalegur, en aðallega var það
skemmtileg og óvænt barátta hjá
Valsmönnum. sem gladdi landann.
Að ná jafntefli gegn þrautæfð
um atvinnumönnum er sannarlega
uppörvun fyrir Valsliðið og á-
nægjuleg tilbreyting fyrir áhorf
endur. Leikinn dæmdi J. Adair frá
V-írlandi, og gerði hanh það vel,
STAÐAN:
Úrslit á sunnudag:
Akranes — KR 1:2
Keflavík—Þróttur 1:0.
Valur 8 5 12 18:11 11
Keflavík 8 4 2 2 15:9 10
Akureyri 8 3 3 2 12:14 9
KR 8 3 2 3 14:11 8
Akranes 8 2 3 3 10:10 7
Þróttur 8 0 3 5 7:21 3
Á sunnudag fara fram þrír leik-
ir:
Valur—Akureyri á Akureyri.
Akranes—Keflavík á Akranesi og
KR—Þróttur í Laugardal.
ísafjörður vann B-lið Þróttar í
Bikarkeppni KSÍ á sunnudag 1—0.
Knnammur of
Rennilokar.
Fittines.
Ofnakranar,
Tengfikranar
Slöngukranar,
Blöndunartæki,
Burstafell
bygginsrarvóruveraliiB,
Héttarholtsvegl i.
Síml S 88 40.
úrntHM Q/t/j.
þá voru línuverðir einnig frá V-
írlandi. Seinni leikur þessara liða
fer svo fram í Belgíu eftir 10 daga
★ LEIKURINN.
Skömmu eftir að leikur hófst
fá Valsmenn gott tækifæri sem
þeir misnotuðu -herfilega, þegar
Bergsteinn er kominn einn innfyr
ir, en í stað þess að skjóta þá
rennir hann knettinum fyrir mark
ið, þar sem Belgar hreinsuðu. Ná
kvæmlega það sama skeði hjá Ingv
ari seinna í hálfleiknum. Annars
skeði frekar fátt spennandi í fyrri
hálfléik, sem endaði 0—0, en leik
ur Vals í þessum hálfleik var
mjög góður, sérstaklega varnarleik
urinn. Belgarnir sköpuðu sér ekki
hættuleg tækifæri heldur reyndu
langskot í tíma og ótíma, en þau
lentu annað hvort framhjá marki
eða í öruggum höndum Sigurðar
Dagssonar, sem var bezti leikmað
ur Valsliðsins. Á 14. mín seinni
hálfleiks eru þeir Ingvar og Her
mann á valarhelmingi Belga og
leika hratt upp að marki og Her
mann gefur langa sendingu fram
völl og Ingvar nær knettinum
í víta ,teig og skorar með fastri
spyrnu framhiá úthlaunandi mark
verði Var þessu marki ákaft fagn
að. En Adam var ekki lengi í
Paradís, því aðeins 5 mín. síðar
skorar Standard eftir að innkast
hafði verið tekið og var þar Claess
en miðherji að verki með snöggu
skoti af markteig. Sækja nú Belg
ar miög fast og er oft hætta við
Valsmarkið t.d. björguðu þeir
Hans og Árni á línu og svo flaug
Sigurður Dagsson stanganna á
milli og bjargaði hvað eftir annað.
Síðustu 5 mín. taka Valsmenn
kinn og sæk.ia fast en tekst ekki
að skora, en litlu munaði er Ingv
ar tók aukaspyrnu fyrir utan víta
teig, en markvörðurinn bjargaði
naumlega í horn.
★ LIDIN.
Lið Vals áttj góðan leik í fyrri
hálfleik, en úthaldið dugði ekki
allan leikinn. Vörnin var langtum
sterkari hluti liðsins með þá Sig
urð, Árna og Halldór Einarsson
sem beztu menn. Halldór vakti at
hygli fyrir góðan leik og er í hon
um mikið efni. Hann er sonur
hins kunna knattspyrnumanns Ein
ars Halldórssonar, sem lék með
Val áður fyrr. Beztur í framlín
unni var Ingvar.
Lið Standard sýndi ekki eins
góðan leik og búizt var við og sér
staklega var hittni þeirra léleg.
Beztu menn liðsins voru Semme
ling h.útherji, sívinnandi og eld
snöggur leikmaður þá var v. bak
vörðurinn Beurlef líka góður. Ann
ars virðist liðið nokkuð jafnt.
I.V.
Markmaður Standard hand«amar knöttinn.
KR Vann IA 2-1 í leik
hinna glötu&u tækifæra
Akranesi, 21. ágúst Hdan.
Vonir Akurnesinga um að
blanda sér í baráttuna um íslands-
meistaratitilinn urðu að engu er
þeir misstu bæði stigin til KR í
leik þessara aðila á sunnudaginn
er fram fór á Akranesi.
Veður var hið fegursta er leik-
urinn fór fram, logn og hiti en
sólskinið hefur kannski haft trufl-
andi áhrif á leikmenn. Mikill
fjöldi áhorfenda fylgdist með
leiknum eins og jafnan er þegar
þessi félög leika og voru þeir að
sjálfsögðu flestir á bandi heima-
manna, eins og vera ber.
Það var vissulega súrt í broti
fyrir Skagamenn að sjá á eftir
báðum stigunum til KR-inga. Þeir
misnotuðu hvert tækifærið af
öðru og ofan á það bættist að
mörkin sem þeir fengu á sig voru
mjög ódýr, svo ekki sé dýpra í
árina tekið.
Fyrri hálfleikur var tíðindalít-
ill og lauk án þess að mark værl
skorað. Liðin skiptust á upplilaup-
um og varð Skagamönnum heldur
betur ágengt í því að skápa Sér
tækifæri. KR reyndu aftur ' &
móti langskot sem flest höfnúðu
fram hjá markinu.
Á fyrstu mínútum síðari háK-
Framhald á 15. síðu
Fram vann
Víking 1-0
Þau óvæntu úrslit urðu i II. deild
á sunnudag á Melavelli, að Vík-
ingur sigraði Fram 1—0. Fram átti
meira í leiknum, en Víkingur varð
ist vel, sérstaklega hinn efnilegi
markvörður liðsins, Björgvin
Bjarnason. Nú þarf Fram að sigra
ÍBV i síðasta leiknum í riðlinum,
til að komast í úrslit og leika gegn
Breiðablik um sæti í I. deild.
T rú(of unarhrlngar
FUót afgrelðsla
Sendum gegn póstkr&fu.
GuÖm í>ursteinsson
rnllsmiffur
Bcnkastræti 1S.
Ingvar skorar mark Vals.
ÍFramhald af 10. síSu).
sveit Ármanns 8:02,6 mín. en þaff
var sett 1956.
10000 m. hlaup.
íslandsmeistari Agnar Levý KR,
33:38,9 mín. Jón Guðlaugsson H&K
42:43,4 min.
í,
f •
Aukagrein:
1500 m. hlaup:
Hylke van der Wal, Kanada 3:55
,8 mín. Halldór Guðbjörnsson KR
4:02,5 mín. Þorsteinn Þorsteinsi-
son KR 4,13,7 mín.
23. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ