Alþýðublaðið - 02.10.1966, Síða 7

Alþýðublaðið - 02.10.1966, Síða 7
Sunnudags ALÞÝOUBLAÐIÐ - 2. október 1966 EINS og önnur markaðsvara eru bókmenntir og listir háðar menningar- og fjórhagsástæðuin l>ar sem unnið er að þeim. Til a8 bókmenntir verði stundaðar í einhverju tilteknu samfélagi þarf til að mynda að vera til taks einhver lágmarksfjöldi fólks í samfélaginu á því menn- ingarstigi að það hagnýti sér bókmenntir, kaupi og lesi bækur, hafi smekk og áhuga á skáld- skap sem sé meiri en nafnið tómt. Skáld vinna ekki í tóm- rúmi; bókmenntir skapast og mótast af samneyti höfunda og lesenda í viðtækustu merkingu; næði til að semja skáldskap kostar peninga. Hver þessi lág- marksfjöldi tiltækilegra lesenda sé kann að velta á ýmsu hverju sinni. Eh það er líklegt að einn þeirra erfiðleika sem há ís- lenzkri skáldsagnagerð um þess- ar mundir sé hinn mðþröngi markaður sem rithöfundarnir skrifa fyrir; það er sem kunnugt er nær óhugsandi að skáldsögu- höfundur geti lifað af iðju sinni á íslandi. Því væri íslenzkum ritliöfundum ómetanlegt, el þeim opnaðist leið að erlendum markaði — sem aldrei verður nema þeir hafi eitthvað fram að færa sem erlendir lesendur láta sig varða. Um ljóðagerð virðist gegna nokkuð öðru máli. Enda verða ljóð ort í tómstundum frá öðru starfi meðan skáldsöguhöf- undur getur í hæsta lagi sinnt öðrum störfum í tómstundum frá sínu eiginlega verki. Þarna kann að reynast mjótt á munun- um é stundum, og þó er munur- inn raunverulegur. En fækki les- endum ljóða á íslandi til þeirra muna að torvelt. verði eða ó- mögulegt að fá ljóðabækur út gefnar mun málið vandast. Ein- hverjum mun aö vísu þykja ærið nóg prentað og gefið út. En hverfi lággróður ljóðanna af markaðnum mun senn sverfa að raunverulegum skáldum og skáldefnum. Ekkert af þessu er nýtt. Við vitum að slíkir örðugleikar verða yfirunnir af því að fyrri höf- undum hefur tekizt það. Ef til vill er það einn mælikvarði á lífsmagn bókmennta hvernig þeim tekst að semja sig að mark- aðsástæðum sínum á hverjum tíma, geta höfundanna að sigr- ast á þeim á einn veg eða ann- an. ★ Ýmsir haía orðið til að nefna kvikmyndagerð list „okkar tíma“ umfram aðrar- listgreinir. En kvikmyndir hafa alla tíð verið aðkomulist á íslenzkum menn- ingarmarkaði. Innlend kvik- myndagerð hefur aldrei orðið til, svo heitið geti, af þeirri ein- földu ástæðu, að markaðurinn taldist of lítill til að framfleyta eigin framleiðslu. Til að kvik- myndagerð beri sig þarf svo og svo marga áhorfendur, og til þess eru íslenzkir áhorfendur ekki nógu margir, einir sér. — Þetta virðist einfalt reiknings- dæmi, en þó eru ekki allir á einu máli um að það sé rétt leyst. Ekki Þorgeir Þorgeirsson sem í nýbirtri ritgerð, ísleftzk menning í spennitreyju (Iíeiga- fell 1966, 26 bls.) veitist að'is- lenzkum menntamönnum óg stjórnvöldum fyrir „fjölmiðl- unarótta” þeirra, 30 ára vah- rækslu í kvikmyndamálum. - Hann bendir á ýmsar stofnanir, fyrirtæki og framkvæmdir sem kostað hafi margfalda fjárfest- ingu á við hæfilegt kvikmynda- ver, og telur að skattlagningu á bíórekstur beri fyrst og fremst að beita til að byggja upp inh- lenda kvikmyndagerð. Annars staðar í heiminum er það nú loks „að renna upp fyrir oddvitum menntanna að mikilvægt og 'ö- frávíkjanlegt verkefni nútíma- mannsins er einmitt fólgið í þvi að flytja það dýrasta og verð- mætasta úr menningarhefðinfti yfir á starfssvið svokallaðra fjöl- miðlunartækja,“ segir Þorgéir. Þessa stefnu verður einnig að taka hér á landi: „Það verður strax að krefjast þess að allir skattar af kvik- myndahúsarekstri komi til góða því sjónarmiði að kvikmynöa- gerð verði sæmilega tryggur at- vinnurekstur ekki síður en bóka- útgáfa. Það verður að krefjást þess að stofnað verði hér kvik- myndasafn, sem hafi reglulegar sýningar og annist fræðslu ’á þessu sviði. Það verður að kréfj- ast þess að öllum hugsanlegúm ráðum verði beitt til að lélta þeim, sem það kjósa, verkefnið að færa íslenzka menningarhefð yfir í tæki nútímans, kvikmyftd- ina, svo íslenzk menning vei'ði einnig á því sviði þrotlaftst skapandi starf.” Það kann að vera að þetta sé rétt hugsað. Vel má vera að það sé fært fjárhagslega að koma hér upp álitlegu kvik- myndaveri, hvort sem slík stofnun yrði opinber, hálfopin- ber eða einkaeign, og vert að notfæra bíóskatta til að efla inn- lenda kvikmyndagerð. Það qr sjálfsagt maklegt að kvikmynda- gerð verði sæmilega tryggur at- Framhald á 10. síðn. POSTULIUNDANTEKNINGARINNAR MADUR er nefndur Charl es H. Fort. Hann var Banda ríkjamaöur og kallaðí sjálfan sig „eollector of notes“. ÞaS nafn bar hann með rentu. Ævi starf hans var sérstætt. Hann lagði stund á að safna smá fróðleik, blaðafréttum, frá- sögnum úr bókum og hvers konar rituðum heimildum, ffömliun og nýjum. Mest kapp lagði hann þó á að viða að sér umgetningum um ýmiss konar undrafyrirbæri cg furðuleg heit. Og þegar hann andaðist 1934 lágu eftir hann þau ó- grynni af slákum nótum að hreinum fádæmum sætir. Mr. Fort var postuli undan tekningarinnar. Mikið af elju lians fór £ að athuga það sem ekki getur staðizt. Hann átti fjölda af frásögnum af því er þyngdarlögmálið virtist liafa verið uphafið, hann vissi um ó kennlilegar orsshii* mannsláta óútskýranleg mannhvörf, undar leg farartæki í loftinu, og dæmi átti liann um blóðiegn, fræregn, brennisteinsregn, lýs andi hj’ól úti í reginhafi og um flyksufjúk svo stórkostlegt að snæflyksurnar voru á stærð við undirskálar, svo dæmi séu nefnd algerlega af handahófi. Hve mikið gerðist af atburð um í heiminum sem ekki gátu staðizt? Þetta voru i hans aug lun hin forboðnu sannindi. Hann tók að raða saman nót um sínum í flokka. Og svo al varlega tók hann sjálfan sig að hann eyddi átta árum í uð stúdera ýmiss konar vísindi og listir tii þess að hafa betra vit á og greiðari aðgang að ýmsum fróðleik scm freistaði hans. Þessu næst hóf hann að skrifa bækur. Hann hafði kom izt að raun um að eiinhver þurfti að vera fulltrúi þess sem enginn vildi viðurkeima, hinna forboðnu sanninda. Hann skrif aði alls fjórar bækur þar sem hann skopast að því sem menn kalla reglm- og lögmál, því að allt sé þettai götótt eða að mcstu ímyndun. Það eitt sé kall að satt sem mcirihlutasamþykkt er fyrir. Fyrir því skulum við elcki falla í stafi fyrir dásam leik vísindanna sem lun allt vilji f;ia!ta mcið rþglum oa skilgreiningum, því að í raun inni haldi engar reglur og ekk ert sé hægt að skilgreina til hlítar. Ef við á hinn bóginn gef um tindantehningunum gaum þá sjáum við nýjar hliðar á heiminum sem við lifum í, því að heimurinn verði ekki athug aður af neinu viti öðru vísi en að hvert atriði sé tekið eins og það sé undantekning frá regiu. Þetta minnir okkur á skoðanir sumra manna hálærðra sem líta svo á að ekki þurfi að telja að náttúrulögmálin séu í náttúr- unni. Það megi allt eins taka þau svo að þau séu aðferð' mannsins til þess að' gera sér grein fyrir heiminum, séu til lieyrandi hugsun mannsins frem ur en heiminum — ef það er hægt að að'greina þetta tvennt. Vafalaust er mikið af nótum Forts misskilningur sem stafar af missýningum, beinu rang- hermi eða viðbótum ímyndunar aflsins við það sem bar fyrir augu. En hinu verður ekki neit að að það er fróðlegt að líta á heiminn frá sjónarmiði undan tekningarinnar. Menn héldu nefnilega einu sinni að jörðin væri flöt eins og pönnukaka, og kúlulögun hennar var þá for boðinn sannleikur, eitt af því sem mönnum datt í hug með því að taka sér sjónarmið und antekningarinnar. Og fyrir rúm um 150 árum mátti það' ekki heyrast í lærðra manna hópum að' steinar gætu fallið úr loft inu, því að vitað væri að ekk ert grjót væri uppi í loftinu. Það' er sagt að undantekning in staðfesti regluna, og er þá ekki alveg eins hægt að segja að undantekningin geri regl- una merkilega, því að einmitt í henni er fólginn möguleikinn til að sjá betur og réttar. Menn sjá það eitt sem þeir vilja sjá. Sá hæfileiki að vejta því athygli sem maður gat alls ekki búizt við er fátíður. Allt sem við sjáum skiljum við' í ljósi þess sem við höfum áð' ur séð, og við gætum þess alls ekki sem skyldi að til er einn- ig það’ sjónarmið að athuga hvern lilut eins og hann sé Framhald 14. síðu. Sigvaldl líjálmarsson:

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.