Alþýðublaðið - 25.10.1966, Side 3
Njósnari flýr
úr fangelsi
LONDON, 24. október (NTB—
AFP) — Innanríkisráðherra Breta,
Roy Jenkins, skýrö'i frá því í
dagr, að Mountbatten Iávarður, fv.
forseti herráösins, yrði formaður
nefndar, sem rannsaka mundi ör-
ygrgisráðstafanir í brezkum fang-
elsum.
Jenkins skýrði frá þessu þegar
hann gerði grein fyrir flótta
njósnarans George Blakes úr
fangelsi. Fulltrúar íhaldsflokks-
ins mótmæltu því að stjórnin skip
aði ekki sérstaka nefnd til að
rannsaka flótta Blakes.
í undirheimum Lundúna er
því haldið fram, að , flóttanefnd"
kunni að háfa skipulagt flótta
Blakes á sama hátt og hún skipu
lagði flótta tveggja höfuðpaura
lestarránsins mikla 1962 úr fang-
elsi.
George Blake, sem er fvrrver-
andi diplómat, var dæmdur í 42
ára fangelsi 1961 fyrir að láta
George Blake.
Aukning
áfengis-
sölu
Fyrstu níu mánuði þessa árs
nam sala áfengis frá Áfengis og
tóbaksverzlun ríkisins rúmum 356
milljónum króna og er það 29%
söluaukning miðað við sama tíma
á fyrra ári.
Á tímabilinu frá 1. júlí til 30.
sept í ár var áfengi selt fyrir
kr. 137,491,780.00. Þar af nam sala
í Reykjavík tæpum 107 milljón
um króna. Á Akureyri var selt á
tímabilinu fyrir 16,1 milljón kr. og
á ísafirði fyrir 3.8 milljónir kr.
Siglufirði 2,8 milljónir kr. og á
Seyðisfirði fyrir 7,9 milljónir kr.
Er alis staðar um nokkra söluaukn
ingu að ræða miðað við fyrra ár.
Rússum í té brezk ríkisleyndar-
mál. Hann hvarf úr Worwood
Scrub-fangelsi á laugardagskvöld.
Fangaverðir uppgötvuðu ekki
flóttann fyrr en einni og hálfri
klukkustund síðar. Sumir halda
því fram, að á þessum 90 mín-
Framliald á 13. síðu
Fjölmennur
fundur
Reykjavík, — KBÓ.
Verkalýðsfélögin í Hafharfirði
boðuðu til fundar í gærkvöld um
atvinnumál, og það ástand sem
skapast hefur vegna þeirrar á-
kvörðunar bæjarstjórnarinnar að
segja upp öllu starfsfólki Bæjar-
útgerðarinnar. Var fundurinn
geysi fjölmennur. Frummælendur
voru Hermann Guðmundsson, for
maður verkamannafélagsins Hlíf-
ar og Sigurrós Sveinsdóttir, form.
verkakvennafélagsins Framsókn.
Að loknum ræðum þeirra tóku
allmargir til máls, þar á meðal
flestir fulltrúar bæjarstjórnarinn-
ar. Fundinum var ekki lokið þeg-
ar blaöiö fór í prentun.
Hálkaog
árekstrar
Akureyri — SJ — OÓ.
Óvenju margir bílaárekstrar
voru hér um síðustu helgi sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar
Auk margra minni háttar árekstra
voru 6 alvarlegir árekstrar þar
sem bifreiðar skemmdust mikið.
Mikil hálka var á götunum og virð
ast bílstjórar ekki hafa tekið nægi
legt tillit til þeirra aðstæðna í um
ferðinni.
Aðfaranótt laugardags valt bíll
norðan Glerárbrúar og skemmdist
hann mikið en engin téljandi
meiðsli urðu á fólki og er sama
að segja um fyrrgreinda árekstra.
Einn ökumaður var tekinn grunað
ur um að hafa ekið ölvaður.
SENDIR NAIO UPP EGIN
EJARSKIPIAHNÖTT1968?
Reykjavík, EG.
Harlan Cleveland fastafull-
trúl Bandaríkjanna hjá Atlanz-
hafsbandalaginu flutti ræðu á
fjölmennum hádegisverðar-
fundi Varðbergs og Samtaka
um vestræna samvinnu i Þjóð-
leikhúskjallaranum í gær.
Henrik Sv. Björnsson am-
bassador íslands í París
kynnti Cleveland, sem i ræðu
sinni ræddi fyrst um Samein-
uðu þjóðirnar og síðan um
Nato og vandamál, sem efst
eru á baugi í bandalaginu.
Hann lét svo ummælt, að ís-
land hefði gert betur en flest
önnur lönd í sambandi við
fjárframlög til ýmissar starf-
semi SÞ og minntist þess m.a.
að framlög okkar til friðar-
gæzlu SÞ hefur numið rúm-
lega liálfum Bandaríkjadollar
á hvert mannsbarn í landinu.
Sagði hann, að ef Bandaríkin
hefðu hlutfallslega lagt fram
jafnháa upphæð, mundi hún
hafa dugað til að standa
straum af reksturskostnaði SÞ
í heilt ár.
Fór hann síðan nokkrum
orðum um vandamálin innan
'íato, sérstaklega í sambandi
við afstöðu Frakklands, og
sagði, að hinar aðildarb.jóðirn-
ar hefðu ákveðið að treysta
samstöðu sína um varnir án
tillits til Frakka, því ekki væri
að vita á hvaða stigi máls,
þeir mundu á ný setja hluta
hers síns undir stjóm Nato,
ef í harðbakka slægi. F.innig
fór ambassadorinn nokkrum
orðum um þær viðræður sem
átt hafa sér stað í sambandi
við herafla Breta og Bnnda-
Framh. á .13. s:ðu.
Skógræktarfélag Reykja-
víkur varð 20 ára í gær
Nú eru liðin 20 ár frá því að
Skógræktarfélag Reykjavíkur var
stofnað, en stofnfundur þess var
haldinn 24. október 1946. Það var
Skógræktarfélag íslands, sem átti
upptökin að stofnun þess, en um
sama leyti var einnig stofnað Skóg
ræktalrfélíag Hafnarf jarðar.
Félagið starfaði fyrst í stað í
smáum stíl, en ýmsar ráðstafanir
voru þá gerðar. Var. félagiö fyrst
starfrækt undir forystu Hákonar
Bjarnasonar, sem var fyrsti há-
skólalærði skógræktarfræðingur-
inn hérlendis, en hann var skipað
ur framkvæmdastjóri Skógræktar
Námskeið fyrir rjúpnaskyttur
HJALPARSVEIT skáta í Reykja-
vík heldur riámskeið fyrir al-
menning í þessari viku, þar sem
kennd verður meðferð áttavita og
lanðakorts. Námskeiðið er eink-
um ætlað fyrir rjúpnaskyttur.
Það' er því miður mjög algengt
með þá sem rjúpnaveiðar stunda,
að þeir villist af réttri leið og;
ráfi fram og aftur um óbvggö-
ir, algerlega ráðþrota. Er þá
jafnvel þeirra eina von að næsta
dag verði skyggni það gott að
leitarflugvélar- og flokkar geti
fundið þá.
Og með vetrarveðráttu eins og
á íslandi er ekki gaman að eiga
líf sitt undir því. En með því
að hafa meðferðis áttavita og
landakort, og kunna með það að
fara geta menn varið öjtu gglir
um að komast hjálparlaust til
byggða. Er því rjúpnaveiðimönn-
um eindregið ráðlagt að sækja
þetta námskeið. Það verður hald
ið í Iðnskólanum miðvikudags og
föstudagskvöld og þeir sem á-
huga hafa geta látið innrita sig
í Skátabúðinni. Síminn er 12045.
Nú vill svo til að íslenzka sjón-
varpið verður með útsendingar
þessi kvöld og munu því eflaust
einhverjir sitja heima af þeim
sökum. Þeir ættu þó að hugsa
sig um tvisvar því þó að hlýtt
sé og notalegt í sjónvarpsstóln-
um gæti svo farið að sú seta
kostaði þá helst til mikinn kulda
síðar meir.
félags íslands 1932 og þrem árum
síðar varð hann skógræktarstjóri.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
leggur megináherzlu á plöntuupp
eldi, en strax upp úr stofnun þess
var verndun Heiðmerkur á döf
inni. Upphaflegt landflæmi félags
ins var 9 ha., en seinna var land
keypt af Hermanni Jónassyni en
það þótti einkar vel til fallið til
ræktunar. Nam þá landflæmið 14
ha.. Var meginhluti þess lands
notað undir gróðurreiti og skjól
belti og skógarlundi, en skjólbelt
ið hefur gert ræktunina. auðveld
ari.
Eins og áður er igetið liefur
Skógræktarfélagið beitt sér mik
ið fyrir verndun Heiðmerkur. Var
undirbúningur að friðun þess svæð
is raunar hafinn 1938 með því að
1359 ha. voru afgirtir, en fyrir
því stóð Skógræktarfélag Reykja
víkur. Tíu árum síðar kom svo
Skógræktarfélag Reykjavíkur til
skjalanna og 1940 voru fyrstu veg
irnir lagðir þar. 1950 var Heið
Framh. á 13. síðu.
25. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐHÐ 3