Alþýðublaðið - 25.10.1966, Side 10
t=RitstiórTÖrn Eidsson
KR SIGRAÐI VAL 1:0
í ÞÓFKENNDUM LEIK
Bikarkeppni KSÍ hefur til þessa, alls verið háð 7
sinnum og átt auknum vinsældum að fagna. í fimm
fyrstu skiptin, sem keppnin fór fram, gengu KR-
ingar með sigur 'af hólmi. En í 6. sinni fengu Vals-
menn rofið sigurkeðjuna, en aftur á þessu ári hafa
KR-ingar á ný háfnað í sigursætinu, eftir nauman
sigur yfir Val.
j 'Úrslitaleikur Bikarkeppninnar
íið þessu sinni fór fram á sunnu-
daginn var. Veðurskilyrði öll voru
hin ömurlegustu. Norðanstormur,
frost og meira og minna linnulaust
moldviðri.
-rMá segja, að það stappi nærri
Óivitaskap að etja mönnum, fá-
klæddum til keppni, við slíkar að-
stæður. En þetta er svo sem ekki
eins dæmi í þessu sambandi, knatt
spjpnpýfífvöldin virðast nefriF
lega áíítaf vera í timaþröng með
allt sitt leikskipulag.
•KR vann hlutkestið og kaus að
leika undan storminum. Sóttu KR-
ingar þegar fast og hélzt svo meg-
inhluta þálfleiksins. Hins vegar
vöruðst Valsmenn vasklega. En
þrátt fyrir það, áttu KR-ingar
þegar á fyrstu tíu mínútunum tví-
vegis allgóð tækifæri, það fyrra er
Baldvin skallaði laglega að mark-
inú, en það síðara er hann lagði
boltann fyrir Eyleif, með ágætri
sendingu. Fyrri hættunni bægði
Sigurður Dagsson frá með snjallri
markvörzlu, en Eyleifur hinni síð-
ari, með herfilegum mistökum og
lélegu skotj fram hjá. En stuttu
síðar bætti hann þó vel fyrir mis-
tök sín, með ágætu hörkuskoti,
sem Sigurður hins vegar varði
mjög vel. Var þetta skot Eyleifs
eitt það bezta í öllum leiknum.
Ánnars var meirihluti þessa hluta
leiksins þófkennt puð á vallar-
helmingi Vals. KR-ingar sóttu all
fast en Valsmenn vörðust vel. —
Markskot og möguleikar nýttust
illa, þrátt fyrir tækifæri. Loks
á 25. mínútu skeði atvik, sem
gerði út um leikinn. Ársæll Kjart-
ansson bakvörður, sem kominn
var alllangt fram, sendi loftbolta
inn að marki Vals, meinleysislega
sveif boltinn í áttina að markinu.
Einn varnarmanna Vals gaf til
Björgvin Schram, formaður KSÍ óskar Bjarna Felixsyni til hamingju með sigurinn.
kynna, a'ð hann „hefði boltann”.
Sigurður markvörður uggði ekki að
sér, treysti félaga sínum, en það
traust varð oftraust, og sýnir að
bezt er að treysta á sjálfan sig.
En boltinn skoppaði „óvenjum
vindanna óáreittur inn í markið.
— Hér var vissulega um beina
slysni að ræða, því að Sigurður
hefði getað gripið inn í leikinn
með öruggum árangri. En hvað um
það. Þetta óvænta ’skot, eða öllu
heldur sending, tryggði Bikarinn
með KR - ingum næsta ár þrátt
fyrir mörg önnur tækifæri
miklu betri. En svona getur knatt
spyrnan verið duttlungafull.
Nokkuð tóku Valsmenn við
sér eftir markið og sóttu á gegn
stormi og moldviðri en ekki tókst
þó að jafna metin. En litlu munaði
er Reynir átti gott skot rétt fyrir
hlé, en Guðmundur markvörður
varði prýðilega.
í síðari hálfleiknum kom storm
urinn til liðs við Val. Almennt
var ástæða til að ætla að Valsmenn
myndu herðasig og ekki aðeins
jafna metin heldur og fá haldið
bikarnum. En það sýndi sig að KR
ingar voru fullkomiega á því að
halda því sem þeir höf'ðu og vel
það. Því þrátt fyrir það að þeir
áttu nú gegn storrni að sækja, var
þeirra hlutur sízt lakari allan
hálfleikinn þeir lögðu á það meg
inatriði að senda boltann á milli
sín með stuttum og iágum
spyrnum og tókst það oft prýðilega
Baráttan var að mestu á svæðinu
milli vítateiganna en markskot fá
og ekki hættuleg. Að undan
skyldu skoti frá Gunnari Felix
syni síðast í hálfleiknum, en þá
bjargaði Sigurður af mikilli fimi
og sannaði enn einu sinni ágæti
sitt sem markvörður.
í leiknum í heild sýndu KR-
ingar miklu meiri baráttuvilja en
mótherjarnir. Þeir komu til leiks,
þess albúnir að leggja sig alla
fram og slökuðu hvergi á allan
tímann. Þetta kom hvað bezt í
ljós í seinni hálfleiknum, þegar
þeir áttu gegn stormi að sækja.
Beztu menn í liði KR voru þeir
Ellert Schram og Gunnar Felixson.
Valsliðið sýndi hvergi nærri
þann dug sem vænta hefði mátt
línian í heild var kraftlítil og
ósamtaka, hinsvegar var yörnin
sterk en þar bar af, Sigurður
Dagsson í markinu.
Blkarmeistarar KR í knattspyrnu 1966, fremri röð talið frá vinstri: Ilörður Markan, Einar Isfeld Kristjánsson, Ellert Schram_ Gunn-
ár Felixson, Kristinn Jónsson og Óskar Sigurðsson. Aftari röð: Heimir Guðjónsson, Sveinn Jónsson, Ársæli Kjartansson, Þórður
Jónsson, Baldvin Baldvinsson, Guðmundur Pétursson, Bjarni Fe lixson, Eyleifur Hafsteinsson, Jón Sigurðsson og Guðjón Jónsson.
þjálfari. (Myndir: Bj. Bj.).
Magnús Pétursson dæmdi leik
inn. Áhorfendur voru á 4. þúS-
und, þrátt fyrir hið óhagstæða og
kaldranalega veður, og sannar
það enn einu sinni, þá hylli sem
knattspyrnuíþróttin nýtur meðal
almennings. E.B.
10 25. oktöber 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
r