Alþýðublaðið - 25.10.1966, Side 11
Gunnlaugur skorar fyrir Fram í leiknum við IR.
ÍR-ing:ar hindraðir illilega á línu í leiknum við Fram.
Ávarp formanns HKRR við
setningu Reykjavíkurmóts
GóSir handknattleiksmenn og
handknattleiksunnendur.
í kvöld hefst hér í íþröttahöll
inni í Laugardal 21. meistaramót
Reykjavíkur í handknattleik. Eru
þetta merk tímamót í sögu hand
knattleiks á íslandi, því að þetta
er fyrsta handknattleiksmótið,
sem fram fer í íþróttahöllinni.
Þess má einnig geta að á þessu
nýhafna starfsári verður HKRR 25
ára og HSÍ 10 ára.
Það mun hafa verið von hand
knattleiksunnenda að með tilkomu
íþróttahallarinnar mundi verða
hægt a@ flytja handknattleiksmót
flestra flokka í þetta glæsilega hús
En í Reykjavíkurmótinu munu
aðeins leika hér meistaraflokkar
karla og kvenna og 2. f lokkur karla
og 3. flokkur karla að hluta. Aðrir
flokkar munu leika að Hólogalandi
sem áður.
Útlit er ekki fyrir það, sem stend
ur, að hægt verði að leika hér í
fleiri flokkum en munu leika
hér ,í Reykjavíkurmótinu og jafn
vel vafasamt að hægt verði að
láta alla þessa flokka leika hér í
íslandsmótinu.
Ástæða þessa er sú, að lágmarks
leiga fyrir hvert keppniskvöld er
svo há, að ekki er útlit fyrir ann
að en mótin verði rekin með tapi
ef ekki fæst úr þessu bætt.
Það hefur sýnt sig að þá daga
og kvöld, sem yngri flokkarnir
leika er fátt áhorfenda, og ef svo
verður áfram , getur svo farið að
ekki verði hægt að láta þá leika
hér vegna þessa mikla kostnaðar,
sem af því leiðir.
Ef ekki verður hægt að láta
yngri flokkana leika hér, er ég
hræddur1 um að tilkoma íþrótta
hallarinnar verði ekki sú lyfti
stöng fyrir íslenzkan handknatt
leik, sem búist var við.
Ef íslenzkir handknattleiksmenn
hefðu ekki fjöJmennt til vinnu í
íþróttahöllinni síðastljðinn vetur
hefði ekki verið hægt að hefja
keppni hér svo snemma sem gért
var.
Aftur fyrir nokkrum dögum voru
handknattleiksmenn að störfum við
að koma búningsklefum íþrótta
hallarinnar í þokkalegt ástand
Mun HKRR stefna að því að sem
flestir flokkar geti fengið tælci
færi til að keppa í íþróttahöllinni
og vonast til að hlutaðeigandi að
ilar muni aðstoða við það eftir
föngumt
Ávarp þetta átti að flytja við
setningu Rvíkurmótsins, en þar
sem engir magnarar voru fyrir
hendi í íþróttahöllinni var álitið aS
sárafáir og jafnvel engir niundu
geta heyrt innihald þessa ávarps
25. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Reykjavíkurmótið hafið:
Áriiiann vann Þrótt, Fram
ÍR og KR Val í mfl. karla
Á sunnudagskvöld hófst Reykja
víkurmótið í handknattleik með
þremur leikjum í meistaraflokki
karla. Má segja að nú fyrst sé
hafinn þáttur hinnar nýju íþrótta
hallar, þar sem þetta er fyrsta op
inbera mótið sem hefst þar.. Einn
skuggi hvílir á opmm þessa móts
og er hann sá að varla má búast
við öðru en að Reykjavíkurmótið
verði rekið með stórfelldu tapi,
vegna iþess að fyrir hvert leik
íkvöld verður HKRR að greiða
húsinu kr. 5000,00 og er mjög vafa
samt að greiddur aðgantgseyrir nái
að greiða þennan kostnað. Þetta
leikkvöld voru áhorfendur aUmarg
ir eða um fimm hundruð, en sá
fjöldi hefði nánast fyllt húsið að
Hálogalandi en heldur fór lítið
fyrir honum á hinum rúmgóðu á-
horfendapöllum hallarinnar.
Eitt var það sem vakti athygli
áhorfenda ó sunnudagskvöldið og
var það hve snyrtilega klæddir
dómarar leikjanna voru. Voru hvor
t^reggja dómari og línuverðlir
klæddir búningum Dómarafélags-
ins og er það til mikillar fyrirmynd
ar o@ á Dómarafélagið þakkir
skildar fyrir framtakið.
Leikirnir þetta kvöld voru held
m- braigðlitlir. Fyrst léku Ármann
og Þróttur og var leikur þeirra
frekar lélegur. Eftir jafnan fyrri
hálfleik sem lauk 4-3 fyrir Þrótt,
tóku Ármenningar leikinn i sínar
hendur í síðari hálfleik og sigruðu
sanngjarnt með 13 mörkum gegn
10. Ekkert sérstakt vakti athygli
í þessum leik.
Næst léku ÍR og Fram og rak
menn í rogastanz þegar staðan
var orðin 3-0 fyrir ÍR, en þá tóku
Framarar kipp og í hálfleik var
staðan orðin 7-6 fyrir Fram. í
síðari hálfleik tóku Framarar leik
inn í sinar hendur og juku for
skotið jafnt og þétt til leiksloka en
leiknum lauk með yfirburðarsigri
Fram 23:13.
Framliðið verður án efa sterkt í
vetur, en virtist í þesum leik ekki
komið í fulla æfingu, sem kannski
er ekki nema eðlilegt. ÍR liðið,
sýndi dágóðan leik og má búazt
við miklu af þeim í framtíðinni, en
liðið er sklpað að mestu leyti ung
um og efnilegum piltum.
Síðasti leikur kvöldsins var leik
ur KR og Vals og komu úrslit
hans á óvart þar sem KR sigraði
með 16 mörkum gegn 13. Þegar í
upphafi leiks tóku KR forystu og
hélt henni aUan leikinn út í gegn
Karl Jóhannsson skoraði bróður
partinn af mörkum KR oig var
hann jafnframt bezti maður liðs
ins, en með honum léku ungir
piltar, sem svo sannarlega komu
á óvart með getu sinni. Liðið var
allt vel hreyfanlegt og knattmeð
Keflavík sigraði Kópavog
og Hafnarfjörð um helgina
Um helgina voru háðir tveir
leikir í Litlu bikarkeppninni, en
þátttakendur í henni eru Kefla
vík, Akranes, Hafnarfjörður og
Kópavogur. Á laugardag sigraði
Keflavik Hafnarfjörð með 5
mörkum gegn 1 í Keflavík. Á
sunnudag léku Keflavík og
Kópavogur á Kópavogsvelli.
Keflavík sigraði með 3 mörk-
um gegn engu.
Nú er aðeins einum leik ó-
lokið í keppninni, milli Akra-
ness og Keflavikur, en hann fer
fram í Keflavík á sunnudag kl.
2.
Staðan í keppninni er þessi:
Keflavík 5 4 0 1 18:3 8
Akranes 5 3 1 1 22:6 7
Hafnarfj. 6 2 2 2 9:17 6
Kópav. 6 0 1 5 4:27 1
ferð ágæt. Lið Vals olli vonbrigð
um í þessum leik og virðist það
langt frá því að vera komið í
góða æfingu.
Næstu leikir Reykjavíkurmóts-
ins fara fram um næstu helgi, á
laugardag leika yngri flokkar og
kvennaflokkar, en á sunnudag held
ur keppni í meistaraflokki karla