Alþýðublaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 14
Að ríða gráu Framliald af 6. síðu. Fljótið þræðir þrönga ála, þungt og mótt af krapaförum. Þó er vökin þíð sem áður þar sem bæjarlindin streymir. - Þessar einföldu, yfirlætislausu fnyndir þykja mér fallegri og skáldlegri en flest annað í bók fíeiðreks Guðmundssonar; efnið er kunnugt, mál og kveðandi hefð- bundið, en í allri hófsemi, ein- feldni sinni miðla þessi kvæði einliverju nýju; þau eru óbrotin og einlægnisleg en virðast samt leyna að baki sér miklu meiri efni- við en þau láta nokkurntíma uppi, efni sem sé skáldinu hugleikið, nærtækt og líklega skáldskapar- vænlegra en margt sem hann kveður um meira mál, berari orð- um. „Einfeldnin” er aðferð þeirra, raunverulega eru þau ort af veru- legri iþrótt; „raunsæi” þeirra stafar af því hve stranglega eru vinzaðir burt óþarfir þættir mynd- arinnar. En því miður eru ekki nema fá kvæði í bók Heiðreks Guðmundssonar sem njóta þessar- ar aðferðar að nokkru gagni og ekkert sem heldur henni lengra áfram. — Ó.J. Rjúpnaveiðibann Rjúpnaveiði og allt fugl'adráp er strang- lega bannað í löndum Óttarsstaða, Lónakots og Hvassahrauns sunnan Hafnarf j arðar. Landeigendur. ■WWWWWWWWMVMWMWWWM4WWMWMWWWM Kaupum hreinar léreftstuskur i> «> <» i Prénfsmiðja AJþýðuhlaðsins WWVMMWWWWWMMWWWMWWWWWWMMWWWWW BORIM munið regluna heima klukkan 8 Auglýsingasími AlþýSublaðsins er 14906 -----------------------------------------j f % 1[4 25. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Minningarorð: Línbjörg Árnadóttir Línbjörg Ámadóttir, Fálkagötu 30 hér í borg verður jarðsungin í dag kl. 1,30 frá Dómkirkjunni. Hún andaðist 17. þ.m. eftir lang varandi og erfið veikindi. Hún var lögð inn á sjúkrahús í maímánuði sl., afn ekki reyndfst unnt að stöðva sjúkdóm þann, er hún gekk með, og fluttist hún síðan 'heim. Síðustu tvo mánuðina var vak að yfir henni dag og nótt, og gerðu það börn hennar og tengdabörn. Slíkur kærleiksvottur og þjónusta er því miður ekki alltaf virtur sem skyldi og er þetta dæmi til fyrir myndar, og áreiðanlega heilla drjúgt framlag til örlagadísanna frá þeim er hlut eiga að máli. Línbjörg fæddist að Mosfelli í Svínadal, Austur—Húnavatnssýslu hinn 16. júní 1896. Foreldrar henn ar voru þau Halla Guðlaugsdóttir Óg Árni Hallgrímsson, er þar bjuggu og ólst hún upp hjá þeim. Línbjörg fluttist til Reykjavíkur 1922, og hér skilaði hún sínu ævi starfi. Hún stundaði jafnan ýmsa daglaunavinnu verkakvenna, eink um fiskvinnu og þvotta, en síð ustu árin vann hún í veitingastofu. Hún var virkur félagi í V.K.F. Framsókn og igegndi þar ti'únaðar störfum. Var 'hún fulltrúi féla'gs ins á þingum Alþýðusambands ís lands um langt árabil og átti sæti í trúnaðarmannaráði þess. Skoðanir hennar á félagsmálum voru fastmótaðar, og var hún eng inn veifiskati eða flysjungur. Auk þátttöku sinnar í félagi verka kvenna, tók hún með lifandi á huga þátt í starfi Alþýðuflokksins frá því er hún fluttist til Reykja víkur. Var hún í gamla Jafnaðar mannafélaginu og æ síðan flokks bundin og starfandi með brenn andi áhuga, að málefnum flokks ins. í trúmálum var Línbjörg frjáls lynd en ákveðin sem í öðru, og fylgdist vel með því, er igerðist í andlegum málum. En þrátt fyrir þennan mikla áhuga í félagslegum \ Línbjörg- Árnadóttir. efnum, og það mikla og óeigin- gjarna starf, er hún innti þar af hendi, þá var heimilið og börnin hennar jafnan í fyrsta sæti. Fyrir þau vildi hún öllu fórna, og fyrir því vann hún öllum kröftum að koma þeim til manns. Þau áttu alltaf athvarf hjá henni, gátu jafn an til hennar leitað, og gerðu þegar þeim fannst rétt eða nauð- synlegt. Ein heitasta ósk hennar var að þau eignuðust þak yfir höfuðið, og varð að þeirri ósk sinni. Kynslóð Línbjargar þekkti og skildi hvílíkt böl húsnæðis- vandræðin og atvinnuleysið var fyrir vinnandi fólk. Allt lífsvið- horf mótaðist af nauðsyn þess að vinna gegn slíkum vágestum í þjóðfélaginu. Línbjörg eignaðist 7 börn, en missti tvö þeirra komung. Hin 5 lifa enn og eru þessi: Lárus hús- gagnasmm. kvæntur Lilju Bryn- jólfsdóttur, Guðrún gift Stefáni Bogasyni lækni. Steinunn gift Ein ari Helgas. bókbindara. Hallgerð- ur gift Gunnlau'gi Kristjánssyni aðalbókara og Áslaug gift Helga Jasonarsyni pípulagningameistara. Öllum þeim og öðrum aðstend endum votta ég dýpstu samúð mína, um leið og ég leyfi mér a3 minna á þá huggun harmi gegn, að lífið er eilíft og dauðinn aðeins þáttaskil, og gott da'gsverk geymir þá erfð, sem hverjum manni er bezt,- og sem er í valdi hinna eftir- lifandi að ávaxta. Ef merkið er hafið á loft eftir fall merkisbai'ns, þá er greidd þakklætisskuld við hinn burtflutta, og skilað árangri áfram til næstu kynslóðar. Ekkert myndi gleðja meira vinkonu mína Línbjörgu ekkert vera nær skap lyndi 'hennar og gerð Miklar þakkir á Línbjörg fyr ir öil störf hennar í félagsmálum og tek ég mér hér leyfi til að tjá þær hér að lokum þessara fá tæklegu kveðjuorða. Hafðu heila þökk mína fyrir all ar samverustundir og allt samstarf ið í verkakvennafélaginu og Al- þýðuflokknum. Hvíl í friði. Yinkona og félagssystir. Frímerki Framhald af 7. síðu. brigða dómgreind hans og trausta þekking gerðu hann að mikil- menni. SERVÍETTU- PRENTUN Sími 32-101. Hollusta hans við þann málstað, er hann trú'ði á, var réttlát og ó- bifanleg. „Ósigur krefst enn meiri átaka,” ritaði hann eitt sinn. „Vér munum duga betur næst.” Þess- ir eiginleikar hans, ásamt framúr- skarandi herstjórnarhæfileikum voru það afl, sem tryggði sigur komandi ára. Það var hinn 30. apríl 1789, sem Washington vann embættiseið sinn — gaf skuldbindingu um að fram- ikvæma störf forseta Bandarí'kj anna og trúmennsku og ,varðveita“ vernda og verja stjórnarskrá Bandaríkjanna” af fremsta megni. George Washington lagði niður forsetastarfið árið 1797 og færðist eindregið undan því að gegna embætti þjó’ðhöfðingjans lengur en í átta ár. En Ameríkumenn munu minnast hans um ókomin ár og í albúmum frímerkjasafn- ara er ekki ólíklegt, að merki hans skorti í heiðurssæti „serí- unnar” „Mei'kir Ameríkumenn.” ALÞÝÐUBLAÐIÐ vantar blaðaburðar- fólk i eftirtalin hverfi: Miðbæ, I. og II. Hverfisgötu, efri og neðri, Laugarneshverfi Laufásveg Lönguhlíð Laugarás Laugarteig Voga Kleppsholt Sörlaskjól Laugaveg neðri Skjólin Gnoðavog Sólhcimar Álíheima Hringbraut Tjarnargötu Miklubraut Laugavegur efri Seltjarnarnes I. Eskihlíð. Alþýðuhlaðið sími 14900.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.