Alþýðublaðið - 08.11.1966, Qupperneq 14
Olíufélögin
Framhald af 7. síSul
af sölu ofangreindra þriggja
vörutegunda á tímabilinu frá 1.
janúar 1957 til miðs árs 1965.
Yfirlit þetta bar með sér að á
tímabilinu hafði piíuverzlun ís-
lands h.f. orðið að greiða með-
þessum viðskiptum 2 milljónir
króna, þ.e. að þessarar fjárhæð-
ar liafði orðið að afla af öðrum
viðskiptum fyrirtækisins tii þess
að standa undir sölu á þessum
þrem vörutegundum, sem verð-
lagðar voru af verölagsyíirvöld-
um.
Slík framkvæmd verðlagseftir-
lits er að sjálfsögðu mjög nei-
kvæð. Þótt hlutverRr verðlagseft-
irlits hljóti í sjálfu sér að vera
það að gæta hagsmuna neytend-
anna, þá ber þeim einnig að hafa
4 huga að hagsmunum neytend-
anna verður því aðeins fullnægt,
að þeim fyrirtækjum, sem falið
er að sjá neytendunum fyrir vöru
þörfum sinum, sé ekki íþyngt
á þann hátt að þau verði óhæf
til að gegna hlutverki sínu. Verð
iagsýfirvöidum ber því, með þessi
sjónarmið í huga, að ákveða verð
lag sitt þannig að eðlileg fjár-
magnsmyndun eigi sér stað hjá
fyrirtækjunum til að mæta auk-
inni vörusölu og eðlilegum fram-
kv'æmdum. Á þetta hefur mikið
brostið að því er varðar starf-
semi olíufélaganna á undanförn-
um árum.
Framkvæmd
verðlagseftirlits:
Gott dæmi um erfiðleika á
framkvæmd verðlagseftirlits er
eftirfarandi dæmi:
Strax eftir að verðlagseftirlit
á olíu var komið á 1938 hófst
hið venjulega stríð milli verð-
lags.vfirva)da og olíufélaganna
þar sem verðlagseftirlitið tók upp
þanij hátt fyrstu árin að lækka
tillögur olíufélaganna um verð
utn 3—4 aura pr. lítra. í byrj-
un ársins 1942 var skipt um verð
íags|tjóra og hinn nýi verðlags-
stjóri samþykkti tillögur olíufé-
laganna um verð, með þeim af-
leiðingum að á því ári varð út-
söluverð ákveðið þeim mun
hærra lieldur en áður hafð'i tíðk-
azt. Þessi verðákvörðun leiddi til
þess að á því ári komu olíufé-
lögin út með allmiklum hagnaði,
að rhig minnir kom Olíuverzlun
íslands h.f. út með um eina og
hálfa milljón í nettóhagnað, og
eftir að félögin liöfðu talið fram
til skatts risu upp umræður á
Alþingj um hinn gegndariausa
hagnað, sem o.liufélögin hefðu.
Leiddu þessar umræður til þess
að Alþingi fyrirskipaði rannsókn
á starfsemi olíufélaganna, sem þó
höfðu selt á þeim verðum, sem
ákveðin höfðu verið af verðlags-
yfirvöldum. Öll sanngirni sýnist
hins vegar hafa mælt með því,
að rannsókn þessi beindist fyrst
og fremst að ákvörðun verðlags-
yfirvaldanna sjálfra. Mál þetta
var fellt niður að rannsókn lok-
inni.
Álagningarreglur
á olíur nú:
Þótt starfsaðferðir verðlagseft-
iditsins væru á fyrstu árum
nokkuð handahófskenndar, svo
<em fakið er hér að ofan, hafa
fullkomnari vinnubrögð verið
tekin upp á síðari árum.
Fyrir frumkvæði olíufélaganna
var löggiltri endurskoðunarskrif-
stofu á árinu 1958 fengið það
hlutverk að taka upp dreifing-
arkostnað allra olíufélaganna á
árinu 1957 og finna raunveruleg-
an dreifingarkostnað pr. tonn af
benzíni, gasolíu og brennsluolíu.
Miðað við þennan grunnkostnað
var síðan byggð upp vísitala fyr-
ir dreifingarkostnað olíufélag-
anna. Hefur þessi vísitala fyrir
dreifingarkostnað olíufélaganna
síðan verið til viðmiðunar við á-
kvörðun útsöluverðs þótt nokkr-
ar breytingar og minniháttar lag-
færingar hafi átt sér stað síðan.
Reynsla af visitölu þessari hef-
ur reynzt góð og hefur sýnt raun
verulega rétta mynd af hækkun
dreifingarkostnaðar eftir því sem
verðlagsþróunin hefur verið í
landinu. Vísitala þessi hefur ver-
ið látin verka á álagningu olíu-
félaganna fyrir dreifingarkostn-
aði, en þessi álagning er ákveð-
inn krónufjöldi pr. tonn eftir teg
undum af olíu, þ.e. magnálagning.
Vísitalan verkar þannig til hækk
unar dreifingarkostnaðarins eftir
því sem kostnaðaraukning fellur
til, en jaínframt er aukning vöru
sölunnar í tonnum látin verka til
lækkunar . á dreifingarkostnaðinn
þannig áð, eftir því sem tonna-
fjöldi eykst, lækkar dreifingar-
kostnaðurinn pr. tonn. Svo sem
fyrr segir hefur þessi framkvæmd
gefið góða raun og gefur rétta
mynd af raunverulegum dreifing
arkostnaði olíufélaganna á þeim
þrem olíutegundum, sem þessi
vísitala er látin verka á.
Hins vegar nemur nettóálagn-
ing olíufélaganna í útsöluverði að
eins 3% á kostnaðarverð félag-
anna, að við bættum dreifingar-
kostnaði, en frá þessari álagn-
ingu ber hins vegar að draga
landsútsvar, sem nemur 1.33% af
útsöluverði vörunnar eða sem sam
svarar því að um það bil helm-
ingur álagningarinnar fyrir nettó-
hagnaði gengur til greiðslu lands
útsvars.
Raunveruleg nettóálagning olíu
félaganna nemur því 1.5% sem
er augijóslega alltof lítið til að
standa undir þörfum félaganna
liér. Almennt er erlendis miðað
við að nauðsynlegt sé að hafa í
nettóhagnað við hliðstæðan rekst-
ur 6% af vörusölu, en 4% er
talið algjört lágmark slíkrar starf
semi. Er því fyrirfram vitað að
olíufélögin hér búa við miklu
þiyngri kost en nokkurstaðar
annarsstaðar þekkist í þessum
efnum.
Stendur bak við
Framhald af 6. síðu.
mönnum, nokkrir þeirra hafa
einnig lært í Bandaríkjunum,
flestir hafa þó lært í Rússlandi
fyrir 1960, en þá hættu Rússar að
kenna Kínverjum atómvísindi.
Hulinn heimur
Framhald af 6. síðu.
varps og sjónvarpscfni í Bandaríkj
unum í dag.
Bókin er prentuð í Prentverki
Akraness hf. Þýðandi er Jóna Sig
urjónsdóttir.
Tillaga
Framhald af bls. 1.
innar þekkingar á hafinu, sem
þekur 71% af yfirborði jarðar,
þar eð meiri nýting á auðæfum
hafsins gæti bætt lífskjör bjóða,
sérstaklega vanþróaðra þjóða.
Þá er getið þeirrar rannsókn-
arstarfsemi, sem þegar fari fram
á vegum ýmissa stofnana Sþ, ein
stakra ríkja og einkaaðila. Er bent
á þörf samstarfs til að forðast
tvítekningu eða árekstra á þessu
sviði.
Efnahags- og félagsmálaráð Sþ
hefur áður gert ályktun um auð
æfi hafsins, önnur en fisk. Nýja
tillagan nær liins vegar einnig
dil fiskjar. Verður nú, ef tillagan
nær samþykki, gert ítarlegt yfir
lit um alla starfsemi á þessu
sviði og skal framkvæmdastjóri
Sþ að því loknu gera tillögur
um næstu skref og kalla til nefnd
sérfræðinga við það starf.
Tillögurnar skulu fjalla um auk
ið alþjóða samstarf í rannsókn-
um hafsins og hagnýtingu á
auðæfum þess — með fullu til-
liti til varðveizlu fiskistofna, og
í eflingu menntunar og þjálf-
unar á þessu sviði.
Gert er ráð fyrir, að tillögur
í þessum málum verði lagðar fyrir
23. allsherjarþing Sþ, sem verður
haldið eftir tvö ár.
Hin nýja tillaga var í dag lögð
fram í 2. nefnd allsherjarþingsins.
Verður hún fyrst rædd þar, og
nái hún samþykki; sem er líklegt,
fer hún til endanlegrar afgreiðslu
á þinginu sjálfu.
Tillaga þessi er mjög í anda
þeirrar ræðu, sem Emil Jónsson,
utanríkisráðherra, flutti á alls-
herjarþinginu í b^zrjun október,
þótt hún sé aðeins ein af mörgum
leiðum, sem fara þarf fil að
bjarga fiskistofnunum við ísland.
Færeyjar
Frambald af 1. síðu.
Hefur því stjórnin 15 atkvæði
á þingi bak við sig en þing-
menn stjórnarandstöðunnar
eru 14.
í stjórnarandstöðu eru Jafn-
aðarmenn og Sambandsflokkur
inn. Hér vilja menn helzt engu
spá um kosningaúrslitin og hef
ur kosningabaráttan farið vel
fram. Fundir hafa verið haldn
ir víða um landið og stjórn-
málamenn leitt saman Jiesta
sína í útvarpi
S1 föstudag héldu flokkarn
ir sameiginlegan kosningafund
i Sjónleikahúsinu í Þórshöfn.
Viðtækjaverzlun ein í Þórshöfn
tók upp þá nýbreytni að sjón
varpa frá fundinum. Var sett
upp sjónvarpstæki í húsakynn
um verzlunarinnar, sem er í
nálega hálfs kílómeters fjar-
lægð frá fundarstaðnum og
safnaðist þar saman fjöldi
manns og horfði á ræðumenn
í sjónvarpi. Sjónleikahúsið var
yfirfullt af áheyrendum og var
því vel þegið að geta einnig
fylgzt með fundinum á öðrum
stað í bænum.
Til viðbótar kosningunum til
Lögþingsins eiga Færeyingar
eftir að kjósa tvisvar í viðbót
á þessu ári. 22 nóv verða
kosnir tveir fulltrúar til danska
þingsins. Færeysku fulltrúam
ir sem nú sitja þar eru annar
frá Jafnaðarmannaflokknum og
hinn frá Fólkaflokknum. Um
miðjan desember verða sveitar
stjórnarkosningar í minni bæj
um og sveitarfélögum.
Skákmót
Framhald af bls. 1.
Eftir þriðju umferð er staðan
í A^ riðli þannig að Sovétríkin
eru efst með 10 vinninga, Júgó-
slavía 9 vinninga, Búlgaría 8, Arg
entína 7, Bandaríkin 6,5, Rúmen
ía 6, Tékkóslóvakía 5, Danmörk
4,5, Austur-I>ýzkaland 3,5, Noreg
ur 3, ísland 2,5, Spánn 2,5 o'g
Kúba 1. vinning. Þessi tala og röð
vinninga var gefin upp áður en
biðskákirnar voru tefldar og hafa
því vinningatölurnar eitthvað
breytzt í gær.
Kúaslátrun
Framhald af 2. síðu.
kvaddar til borgarinnar. Hermenn
standa vörð við lögreglustöðvar
meðan lögreglan heldur uppi lög
um og reglu á götunum.
Hindúar tilbiðja kúna sem tákn
móðurinnar og frjóseminnar. Kúm
'hefur verið slátrað í 11 af fylkj
um Indlands og hefur það vakið
mikla gremju, sem sífellt færist
í aukana. Þinginu hafa verið send
ar eindregnar kröfur um að það
banni slátrun kúa um allt Indland.
Innbrot
Frh. 2. síðu.
og urðu „afreksmennirnir“ þá hin
ir spökustu.
Þá kærði maður yfir því að á
sig hafi verið ráðizt við Þórskaffi
og hann rændur öllu fé sínu. Lög
reglan hafði brátt uppi á ofbeldis
mönnunum sem viðurkenndu árás
ina en kváðust engum aurum hafa
stolið. Sá rændi var í því ási'gkomu
lagi að bókhaldi hans hefði hæg
lega getað skeikað um nokkrar
krónur.
Þing SUJ
Framliald af bls. 1.
kjörinn Hörður Zóphaníasson,
fyrsti varaforseti Guðmundur Vé
:steinsson, en annar varaforseti
Kristján Þorgeirsson. Ritarar
þingsins voru kjörnir Björn Þor
steinsson og Helgi E. Helgason.
Emil Jónsson, formaður Al-
þýðuflokksins. ávarpaði þingið og
flutti því hugheilar árnaðaróskir
og kveðjur eldri kynslóðanna í
samtökum jafnaðarmanna, Alþýðu
flokknum.
Fyrir hádegi á laugardag störf
uðu hinar ýmsu nefndir, en kl.
14 báða dagana hófust þingfundir
að nýju á sama stað og áður.
Nefndir skiluðu þá nefndanálit-
um og umræður fóru fram.
Um hádegi á laugardag báðu
þingfulltrúar hádegisverðarboð
'verikalýðsmálanef.ndar Alþýðufl.
og flutti Jón Sigurðsson. form.
Sjómannafélags Reykjavíkur er
indi um verkalýðsmál.
Martii Pöysálaa flutti fróðlegt
erindi um utanríkismál Finna á
þingfundi á sunnudag, Merkasta
mál þingsins að þessu sinni
var stefnúskrá unera jafnaðar-
manna. sem án nokkurs vafa mun
vekja mikla og verðskuldaða at-
14 8. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
hygl, er hún birtist almennings
.ftj'ónum s(ðar á þessum vetri.
Fjallaði þingið um stefnuskrána
bæði í nefndum og á þingfund
um. Kaus þingið stefnuskrárnefnd
sem skal vinna stefnuskrána til
hlítar. Síðan verður hún send öll
um FUJ félögum um allt land
til frekari yfirvegunar. í febrúar
mun síðan sambandsstjóm SUJ,
stefnuskrámefnd og sambandsráð
fjalla um stefnuskrána áður en
hún verður hirt.
Á sunnudag fóru kosningar
fram fyrir næsta kjörtímabil.
Verða hér taldir upp þeir, sem
kjörnir voru í stjóm SUJ, mið-
stjórn Alþýðuflokksins, í flokks
stjór.n Alþýðuflokksins, á flokks
þing Alþýðuflokksins og í sam-
bandsráð SUJ.
Stjórn SUJ:
Siigurður Guðmundsson, form.
Ingvar Viktorsson, varaform.
Karl Steinar Guðnason, ritari.
Meðstjórnendur:
Guðmundur Vésteinsson,
Kristján Þorgeirsson,
Örlygur Geirsson,
Óttar Yngvason.
Sigurður Hermannsson,
■ Gissur Kristjánsson.
Varastjórn:
Vilmar Pedersen,
Hallgrímur Jóhannsson,
Helgi E. Helgason,
Ólafur Eggertsson,
Endurskoðendur:
Aðalmenn:
Björgvin Guðmundsson,
Hrafnkell Ásgeirsson,
Til vara:
Björgvin Vilmundarson.
f miðstjórn Alþýðuflokksins
voru kijömir:
Sigurður Guðmundsson,
Hörður Zóphaníasson,
Eyjólfur Sigurðsson,
Kristján Þorgeirsson,
Ingvar Viktorsson,
Varamenn:
Gissur Kristjánsson,
Óttar Yngvason,
Rimólfur Runólfsson,
Sigurður Hermundarson,
Sighvatur Björgvinsson,
Til flokksþing's Alþýðuflokks-
ins voru kjörnir:
Árni Árnason, Keflavík,
Ásgeir Þormóðsson, Reykjavík,
Cecil Haraldsson, Stykkishólmi.
Eyjólfur Sigurðsson Reykjavík,
Guðleifur Sigurjónsson Vestm.
Guðmundur Oddsson Kópavogi
Guðmundur Vésteinsson Akran.
Haukur Helgason, Hafnarfirði.
Hjörleifur Hallgrímsson, Vestm.
Hrafn Bragason, Reykjavík.
Hrafnkell Ásgeirsson Hafnarf.
Hörður Zóphaníasson Hafnarfirði
Ingvar Viktorsson Hafnarfirði.
•Tón Vilhj'álmsson Hafnarfirði
Karl Steinar Guðnason Keflavík
Kristján Þorgeirsson Reykjavík,
Ólafur ÞorsteinEson, Reykjavík
Sigurður Guðmundsson Reykjavík
TTnnar Stefánsson Reykjavík,
Örlygur Geirsson Reykjavík.
Jafnmargir fulltrúar voru kjörn
ir til vara.
í flokksstjórn AlHýöuflokks-
ins voru kjörnir:
Karl Steinar Guðnason Keflavík,
Guðmundur Vésteinsson Ákran.
og til vara:
ijngólfur Ingólfsson, Kópavogi
Cecil Haraldsson Stykkishólmi.
Framhald á 15. «ðu.