Alþýðublaðið - 10.11.1966, Síða 2
Kosningarnar t Bandaríkjimum
■ demókratar
héidu meirihluta
NEW YORK, 9. nóvember (NTB-
Reuter) — Repúblikanaflokkurinn
vann töluverðan sigur í kosning-
unum í Bandaríkjunum í dag. Sig
ur repúblikana kann að stofna
ýmsuni umbótamálum Johnsons
forseta og sigurlíkum ihans sjálfs
í forsetakosningunum 1968 í
liættu.
Si'gurvegarar repúblikana í rík-
ísstjórakosninganna í ýmsum hlut-
um landsins koma margir hverj-
ir til greina sem forsetaefni flokks
ins 1968. Afleiðing kosninganna
er sú, að repúblikanar ihafa að
miklu leyti unnið aftur það fylgi,
isem þeir töpuðu í hinum gífurlega
(kosningasigri demókrata fyrir 2
órijm, þegar Bawy Goldwater öld-
ungadeiidarþingmaður var forseta
•eíni þeirra.
Talningu atkvæða var ekki end
anlega lokið í kvöld, en þó er
ajóst, að repúblikanar ihafa hvar-
vetna aukið fylgi sitt.
UNNU 44 ÞINGSÆTI
í öldun'gadeildinni hafa repú-
fblikanar bætt við sig þremur
.þingsætum og hafa nú 36, en
demókratar 64. Demókratar hafa
bví misst % meirihluta sinn, sem
;þeir höfðu í deildinni, en það er
ekki italið skipta máli. Kosið var
um 35 sæti í öldungadeildinni að
þessu sinni.
í fulltrúadeildinni hafa repii-
hlikanar bætt við sig a.m.k. 44
íþingsætum, en úrslit eru ekki
kunn í sex kjördæmum. Demó-
(kratar hafa tryggt sér 245 full-
IlUUlVLl' ILLIjIiIv
trúa og repúblikanar 184, en kosið
var um öll þingsætin, sem eru 435.
Á síðasta þingi höfðu demókratar
295 fulltrúa en repúblikanar 140.
Talið er, að repúblikanar sigri í
þremur þeirra sex kjördæma, iþar
sem talningu er ekki lokið.
í ríkisstjórakosningunum unnu
repúblikanar einnig eftirtektar-
verða si'gra. Kosið var um ríkis-
stjóra í 35 hinna 50 ríkja, og voru
úrslit kunn í 33 ríkjum í kvöld.
niíauan jbbuuivw
Repúblikanar höfðu þá sigrað í 22
ríkjum, en demókratar í aðeins
19. Fyrir kosningarnar áttu demó-
kratar ríkisstjóra í 20 hinna 35
ríkja, þar sem ríkisstjórakjör fór
fram. Repúblikanar hafa þannig
sigi’að í sjö ríkisstjórakosningnm,
og líkur eru á, að þeir vinni alls
átta nýja ríkisstjóra.
REAGAN í KALIFORNÍU
Þrír sigurvegarar úr Repúblik-
PERCY
WALLACF.
ROMNEY
anaflokknum í ríkisstjórakosning-
um koma sennilega til greina sem
forsetaefni flokksins eftir tvö ár:
George Romney ríkisstjóri í Mi-
chigan, fyrrverandi „bílakóngur“,
Ronald Reaigan ríkisstjóri í Kali-
forníu, fyrrverandi kvikmynda-
leikari, og Nelson Roekefeller rík-
isstjóri í New York, sem var end-
urkjörinn í annað sinn og auk
þess Charles Perey, sem náði
kosningu til öldungadeildarinnar
fyrir Ulinois. Hann er tiltö'lulega
ungur maður, sem náð befur skjót
um frama í viðskiptalífinu.
Richard Nixon fyrrum varafor-
seti, sem margir telja að hafi enn
ekki gefið upp alla von um að
verða forseti, veitti frambjóðend-
um repúblikana á ýmsum stöðum
dyggilegt lið, þótt hann væri sjálf
i ur hver'gi í kjöri og einnig hafði
j hann safnað miklu fé til kosninga-
I Fratnhald á 15. sígu
I I
f. *
0 8
Varö undir
dráttarvagni
ÞRIÐJUDAGINN 8. nóvember
gerðist sá hörmulegi atburöur á
Laugárvöllum í Reykholti, að 15
ára gamall piltur ,að nafni Bene
ditít Guðmundsson, varS fyrir
dráttarvagni og beið við það bana.
Voru tildrög slyssins með þeim
hætti, að Benedikt var að sækja
mjólkurbr.úsa út við vegarbrún
og 6k hann í dráttarvagni. í baka
leiöinni varð lionum á að aka út
af veginum og lenti dráttarvagninn
út í skurði með þeim afleiðing
umt að Benedikt varð undir hon-
urntog mun hafa látizt samstundis.
Eru orsakir slyssins enn óupplýst
ar, . þar eð umferð var engin á
veginum um þetta leyti.
- og margur gerði góð kaup
I gær hófst brunaútsala i
verzlunarhúsinu Kjörgarði og
mátti minna sjá. Strax og kom
og Vitastígs sáust konur-
og Vatnsstígs sáust .konur-
hlaðnar pinklum streyma niður
á Hverfisgötuna. En það var
þó ekkert hjá því, sem blasti
við, er komið var upp á Lauga
veginn. Fílefldir lögregluþjón
ar stóðu þar og vömuðu því
að umferðarteppa yrði og fyrir
framan Kjörgarð stóð fólk í
margfaldri röð út að Vitastigs
horni. Jafnvel hinum megin á
gangstéttinni hafði fólk hóp
ast saman. Þárna í biðröðinni
voru karlmenn, konur og börn
ungir og gamlir. Fólkið stóð
þétt og það var'ð víst enginn
undrandi þegar leið yfir eina
konuna.
Fólkinu var hleypt inn í
um. Margir komust inn í einu
enda margar verzlanir um að
ræða. Greina mátti enn keim
af brunalykt í loftinu. Á neðstu
hæðinni stönzuðu karlmenn
irnir og fóru ekki lengra Þar
er Últíma og þar voru karl
mannaföt og frakkar, peysur og
margt fleira. Uppi á efri hæð
ina hélt kvenþjóðin, en þar
voru alls kyns vörur, kápur,
hattar, kjólar, kjólaefni, prjóna
garn og margt margt fleira. En
það er óhætt að segja, að á báð
um hæðum hafi verið handa-
gangur í öskjunni, vinsælust
virtust kjólaefnin og gardínu
efnin og héldu margir föstu
taki í þau efni sem kaupa átti
Oft héldu 6—8 hendur í sama
klæðastrangann og ein ung
kona hafði keypt svo mikið af
gardínuefnum, að hún gat varla
borið pakkana, enda smávaxln.
En bréfið utan um virtist eklci
heldur geta borið efnin og
sprakk utan af. Allar vörur
voru á lækkuðu verði, ýmist á
hálfvirði eða með 30% af-
slætti og yfirleitt sér mjög lít
ið á vörunum eða alls ekki
neitt, svo að margir gera þarna
góð kaup. Útsalan hófst kl.
þrettán í gærdag og er blaða
maður Alþýðublaðsins var þar
um klukkan hálfþrjú, sást varla
að af vörunum hefði verið tek
ið, þó að mörg hundruð manns
hafi þá þegar verzlað á útsöl
unni. Yfirleitt hafði verið bætt
við afgreiðslufólki í flestar
deildirnar og kaupmennirnir
voru þar margir sjálfir. Að-
spurður um skemmdir á kápum,
drögtum og jökkum sagði Bem
hard Laxdal að vörurnar væru
óskemmdar að öðru en því, að
sót hefði farið um allt húsið
og lagst yfir vörurnar, þó að
það sæist ekki þyrfti yfirleitt
að hreinsa fötin áður en þau
væru tekin til notkunar.
Brunaútsalan í ICjörgarði
mun halda áfram þessa viku og
næstu. Lokað verður fyrir há
degi á morgun, þar eð þá fer
fram útför Ólafs Friðbjarnar
sonar, húsvarðar, er lézt í
brunanum.
£ t 10. nóvember 1966 --. ALÞÝÐUBLAÐIÐ