Alþýðublaðið - 10.11.1966, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 10.11.1966, Blaðsíða 3
Heildarkostnaður við Vest- fjarðasjónvarp 52milljónir Reykjavík, — Heildarkostna'ður við að koma sjónvarpi til Vestfjaröa mundi nema mjög lauslepa áætl að um 52 milljónum króna, sagrði Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð herra í svari við fyrirspurn um það hvenær Vestfirðingar mættu vænta þess að fá notiö sjónvarps. Um sjónvarp til Vestfjarða sagði ráðehrra meðal anurs í svari sínu. Forsenda þess, að unnt sé að sjá Vestfjörðum fyrir sjónvarps- þjónustu, er fyrst og fremst sú, að lokið hafi verið byggingu end urvarpsstöðvar á Skálafelli, en sú endurvarpsstöð er liornsteinn dreifingakerfis sjónvarpsefríis um landið frá sjónvarpsstöðinni í Reykjavík Skálafellsstöðin mundi þó 'ekki geta endurvarpað sjón- varpsefni til Vestfjarða. Endur- varp yrði að grundvallast á stórri endurvarpsstöð í Stykkishólmi, sem mundi ná til mestalis Breið afjarðarsvæðisins, svo og til end urvarpsstöðva á Vestfjörðum og Blönduósi. Stöð á Blnnduósi mundi síðan endurvarpa til Skaga strandar. en þaðan yrði endur- varpað til Strandasýslu. Heildar- stofnkostnaður endurvarpsst. er ná til allra Vestfjarða, mundi samkvæmt mjög lauslegri áætlun nema sem hér segir: Nýr kanzlari valinn í Bonn BONN, 9. nóvember (NTB-DPA) Þingflokkur Kristilega demókrata flokksins verð'ur að talca erfiða á- kvöröun á morgun og velja eftir- mann Ludwig Erhards kanzlara. Fjórir menn koma til greina, en allt er á huldu um það', hver verð'- ur fyrir valinu. Það, sem gerir kosninguna erfiðari en ella, er a'ð jafnaðarmenn og frjálsir demó- kratar verða að geta sætt sig við liinn nýja kanzlara, þar sem sennilega verð'ur öðrum hvorum flokknum boðið til stjórnarsam vinnu. Kanzlaraefnin eru Rainer Bar- zel, leiðtogi þingflokks kristilegra demókrata, Eugeh Gerstenmaier, þingforseti, Georg Kiesinger, for sætisráðherra fylkisstjórnarinnar í Baden-Wiirttemborg og Gerhard Schröder utanríkisráðherra. í kvöld var frá því skírt, að Ger- stenmaier hefði dregið sig í hlé. Ólíklegt er talið, að nokkur þessara manna fái hreinan meiri- hluta við fyrstuxatkvæðagreiðslu. Því kann svo að fara að sá sem fæst atkvæði hlýtur skerst úr leik og koll af kolli þar til að lokum verði kosið um þá tvo, sem njóta mestra vinsælda. Einn ig kann svo að fara, að kosið verði aftur og aftur þar til einn sigrar að lokum líkt og við kjör páfa. Þingfréttaritari DPA hermir, að aðallega verði kosið um Barzel Framihald á 14. síðu. Stykkisólmur fyrir Breiðafjörð 11,3 millj kr. Patreksfjörður fyrir Patreks- fjörð 3,3 millj. kr. Hrafnseyri fyrir Bíldudal 3.3 millj. kr. Þingeyri fyrir Þingeyri 3.3 millj. kr. Melgraseyri fyrir innanvert Djúp og til endurvarpsstöðvar á Arnamesi 3,3 millj kr. Arnarnes fyrir ísafjörð, Bol- ungarvík og fleiri staði, 3.3 millj. Súðavík fyrir Álftafjörð 3,3 millj. kr. Önundarfjörður (jarðstrengur) fyr- ir Önundarfjörð 4.7 millj. Suðureyri (jarðstrengur) fyrir Suðureyri 6,0 millj. kr. Blönduós fyrir Húnaflóa og end urvarpsstöðvar á Skagaströnd 6,7 millj. kr. Skagaströnd fyrir Skagaströnd og Strandasýslu 3,3 millj. kr. Heildarkostnaður til þess að koma sjónvarpi til Vestfjarða mundi nema mjög lauslega áætl- að 52 millj. kr. Þess ber þó að geta, að þessar framkvæmdir mundu einnig þjóna fleiri byggð um en Vestfjörðum, þ. e. Snæ- fellsnesi, Dalasýslu, Húnavatns- sýslu, og Skagafirði (með endur varpsstöð er tæki við frá Blöndu ósi), Stofnkostnaður á Vestfjörð um sjálfum mundi nema rnmum 30 millj. kr., mjög lauslega á- ætlað. Ég hef áður gert grein fyrir því, að ég tel, að fyrst ætti að byggja höfuðstöðvar dreifi- kerfisins um landið, þ. e. stöðv ar á Skálafelli, í Stykkishóhni, á Vaðlaheiði, á Fjarðarheiði og á Hjörleifshöfða. Breiðafjörður myndi hafa full not af Stykkis- Framhald á 14 síffu. Kosningarnar í Færeyjum: □ □ □ D □ □ Þaff var greinilegt aff Al- þýffublafflff kom viff kaun hjá Austra ritstjóra Þjóffvlljans s.l. simnudagr, þegar blaðiff spurði hann í forystugrein, hver þau lögregluríki væru, sem hann alls ekki vfldi aff ísland kæm- ist í hóp meff. Austri hafffi nokkru áffur látiff svo ummælt, aff til væru þau ríki, þar sem menn þyrftu leyfi lögreglunnar til funda- halda og sumstaffar væri því lögregluvaldi beitt af miklu gerræffi. Ritstjóri Þjóffviljans treysti sér ekjki til aff svara þeirri spurningu, hver þau ríki væru, sem hann þarna ætti við, held- ur sló úr og í, og sagSi aff lík- lega ætti þetta viff um meiri- hluta ríkja heimsins. Sú staffreynd er alkunn, aff í mörgum Austur-Evrópurikj- unum, þar sem kommúnisminn er ríkjandi stjómarfar, hefur affeins veriff aff fram- kvæma kommúnismann meff því aff koma á fót öflugum lög- reg-luríkjum, þar sem pólitísk lögregla hefur haft öll ráff þegnanna í hendi sér og menn hafa ekki einu sinni getaff ó- hultir hvislaff á milli sín gagn- rýni um stjórnarvöld. Þetta eru þau ríki, sem Þjóffvilja- ritstjóramir vilja aff viff íslend ingar teng’jnmst traustum bönd um og tökum upp þeirra stjórnarfar. Alþýffublaffinu þykir nú rétt aff ítreka spurningu sína og hafa liana þá um leiff nokkru þrengri: Telur Austri. aff Sov- étríkin, Austur-Þýzkaland effa Kína (þar sem hann er mæta vel kunnugur) séu lögreglu- ríki? Frófflegt væri aff fá svör viff þessu. Vildi byggja smá stöðvarnar fyrst Reykjavik, EG. Sigurvin Einarsson (F), sem bar fram fyrirspurnina á Alþingi í Igær um sjónvarp til Vestfjarða spurði menntamálaráðherra að því í umræðunum um málið hvers vegna þyrfti að byggja allar stóru sjónvarpsstöðvarnar fyrst, eins og í Stykkishólmi, á Skálafelli og á Vaðlaheiði. Hversvegna væri bara ekki hægt að byrja á litlu stöðv- unum, sem ráðgerðar væru á ýmsum fjörðum fyrir vestan? Menntamálaráðherra svaraði Sigurvin, að þetta væri einfalt mál eins og oft hefði komið fram, því forsenda þess, að litlu stöðv- arnar gætu starfað væri sú, að aflmeiri stöðvar væru reistar, sem litlu stöðvamar fengju mynd sína frá. Stóru stöðvarnar væru, eins og komið hefði fram, áður horn- steinar dreifingarkerfisins. Ráðstefna ríkisstofnana Fjármálaráðuneytið hefur boð'- i'ð forstöffumönnum ýmissa stærri stofnana og fyrirtækja, sem ríkiff rekur effa á hlut aff, íil ráffstefnu 17. — 19. nóv, n.k. Verkefni ráðstefnunnar er að íhuga þær aðferðir, sem revndar Framhald 14. siðu. Stjórnarflokkarnir misstu meirihlutann Ekki fullt afnotagjald Reykjavík, EG Gera má ráff fyrir, að eitt- Vhvert afnotagjald verði ákveff- ið fyrir þann tíma, sem sjón- várpið starfar á þessu ári, ekki fullt afnotagjald, eins og það kemur til með aff verða, heldur aðeins hluti miffaður viff þá starfrækslu sem á sér nú staff. Þcssar upplýsingar gaf Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð'- herra í svari viff fyrirspurn á Alþingi í gær og sagði jafn- framt, aff um miffjan þennan mánuff yrði tekin ákvörðun um afnotagjald fyrir útvarp og sjónvarp. Þórshöfn. ) Frá fréttarilara Alþbl. í Fær- eyjum, Halldóri Jóhannessyni. Sjjórnarflokkarnir hér misstu meirihluta sinn í Lögþinginu í kosningunum sem fram fóru á IsUnnudag. Hafa nú fyrrverandi stjórnarflokkar og stjórnarand- stöðuflokkar jafnmarga menn á þingi eða 13 þingmenn hvorir. Vegna breytinga á kosningalög- unum eru lögþingsmenn nú 26 í stað 29 áður. Raskar þetta nokk- uð þingmannatölu flokkanna þannig að þótt flokkar hafi tapað þingsæti í kosningunum þýðir það ekki endilega að þeir hafi tapað atkvæðamagni. Samkvæmt inýju kosningalögunum eru ekki við- hafðar listakosningar heldur kosnir einstakir menn. Flokksstjórnirnar hafa enn ekk- ert látið uppi um stjórnarsam- vinnu næsta kjörtímabil og eru uppi miklar getgátur hér manna á meðal Ihvort takist að mynda meirihlutastjórn einhverra flokka, en samkvæmt lögum er ekki hægt að mynda minnihlutastjórn. Helzt er búist við að efnt verði til riýrra kosninga innan skamms. Úrslit kosninganna urðu þann- ig að Fólkaflokkurinn fékk 3802 atkvæði og fimm kjördæmakjörna þingmenn og eitt uppbótarsæti. Er það sami þingmannafjöldi sem flokkurinn hafði áður. Sam- bandsflokkurinn fékk 4156 at- kvæði og fimm kjördæmakjörna þingmenn og eitt uppbótarsæti. Jafnaðarmenn fengu 4757 at- kvæði og sjö kjördæmakjörna þingmenn en ekkert uppbótar- sæti. Töpuðu þeir einu þingsæti. Sjálfstýriflokkurinn fékk 865 at-1 kvæði og engan mann kjörinn en eitt uppbótarsæti. Þjóðveldis- flokkurinn fékk 3511 atkvæði og þrjá kjördæmakjörna þingmenn og tvö uppbótarsæti. Töpuðu þeir einu þingsæti. Framburðsflokkur- inn fékk 495 atkvæði og engan mann kjörinn en eitt uppbótar- þin'gsæti. Það sem vakti hvað mesta at- hygli í þessum kosningum er að Erlendur Patursson féll í sínu kjördæmi, Sandey. Fór hann með fjármál í fyrri landsstjórn, en út- séð er um að hann taki þátt í næstu stjórn. Kosningaþátttaka var góð eða 80,2%. í kosningunum 1962 var íkosningaþátttaka 74,5%. Stjórn- arflokkarnir misstu fylgi sem nam 2,8%. Áður höfðu þeir 52,1% kjósenda bak við sig en nú 49,3%. Eins og áður er sagt eru mest}- ar líkur á að efnt verði aftur til kosninga, en möguleiki er talinn á að jafnaðarmenn, Sjálfstýri,- flokkurinn og Sambandsfiokkur- inn myndi stjórn. Hafa þeir sam- anlagt 14 þingsæti á móti 12. Einnig er talið koma til 'greina að Fólkaflokkurinn, Sambands- flokkurinn og jafnaðarmenn myndi stjórn, en þeir hafa sami- anlagt 19 þingmenn í Löggjafar- þinginu. En þetta eru aðeins geti- gátur manna á meðal og verður ekkert hægt að segja um vænt- anlega stjórnarsamvinnu fyrr en stjórnmálafiokkarnir láta uppi á- lit sitt um málið, eða hvort þeir kjósa heldur að efna til nýrra kosninga. 10. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.