Alþýðublaðið - 29.11.1966, Qupperneq 3
HINN NÝI ambassador Tékkóslóvakíu lierra Frantis :k Malik, afhenti í dag forseta íslands trúnaðarbréf
sitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, að' viðstödd um utaiiríkisráðherra.
RÚSSAR KAUPA AF OKKUR
40 ÞÚS. 1UNNUR AF SlLD
Samningar voru undirritaðir í
gær um sölu á fjörutíu þúsund
tunnum af síld til Sovétríkjanna,
en samningaviðræður um síldar-
sölu þangað hafa sem kunnugt er
lengi verið á döfinni.
Blaðinu barst í gær svohljóð-
andi fréttatilkynning frá Síldarút
vegsnefnd: „í dag voru undirrit-
aðir samningar um sölu á 40.000
tunnum af síld til Sovétríkjanna,
þar af er helmingur saltsíld og
helmingur kryddsíld.
Síld sú sem seld hefur verið,
er aðallega haust- og vetrarsíld,
en búizt er við að aðalmagnið
verði verkað í desembermánuði."
Af þessu tilefni sneri Alþýðu
blaðið sér í gær til Erlends Þor-
steinssonar formanns Síldarút-
vegsnefndar og innti hann nánari
frétta af þessum samningum.
Erlendur sagðist fagna því, að
samningar hefðu nú tekizt við
Sovétríkin um kaup á síld, eftir
um það bil eins og hálfs árs hlé.
í þessum samningum, sagði liann,
að ráð yrði gert fyrir ven.iulegum
skilmálum um stærð og gæði síld
arinnar og verðið er iviðunanlegt.
Erlendur gat þess aá lokum, að
þegar dr. Oddur Guðjónsson var
í Moskvu nýlega vegna olíusamn
inga, þá hefði honufn tekizt að
koma af stað verðsamningum í
Framhald á 15. síðu.
Stórkostlegt svikamál?
Rvík. — OTJ.
HIMINHÁÁR upphæðir eru nefnd
ar í sambandi við rannsókn svika
máls þess sem danska rannsóknar
lögreglan er að kanna hér í sam
vinnu við hina íslenzku kollega
sína. Hins vegar verjast þessir
aðilar allra frétta og segja málið
vera á byrjunarstigi. Samkvæmt
þeim upplýsingum sem tekizt hef
ur að afla mun forstjóri Hoved-
stadens Möbelfabrik, grunaður um
að hafa kveikt í húsi fyrirtækisins
til þess að eyðileggja bókhald og
skýrslur þess, sem hefur sannað
á hann ýmiskonar misferli.
Því er einnig haldið fram að
íslenzkir aðilar séu viðriðnir þetta
mál. En meðan lögreglan neitar
að gefa upplýsingar er ekkert
hægt að fullyrða — og sögusagn
irnar verða að nægja.
MMMWWMMMWMWMWMWHMMWWVmwwmmmwmMWWMWMWWMMWVMW
Vegir ófærir og
símalínur slitnar
Rvik, — OÓ.
Stórhríð geisaði á Norður-
og Austurlandi um helgina og
olli víða skaða. Vegir teDptust
og símalínur slitnuðu. Unnið
var í allan gærdag við að ryðja
vegi og koma á símasambandi
við svæði sem sambandslaus
urðu. Veðrinu slotaði í gær-
morgun en umferð llá að mestu
niðri á fyrrgreindu svæði
vegna fannfergis.
Verst var veðrið í Grímsey.
Þar komst vindhraði upp í 11
stig og frostið var 9 gráður.
Á Akureyri fór fólk varla út
úr húsum þegar verst lét. Skip
lögðu þar frá bryggju og lágu
á Pollinum. Erfitt hefur verið
að fá fregnir af sköðum vegna
veðursins vegna símasambands
leysis. Á Húsavik rak tvær trill
ur á land. Á Seyðisfirði urðu
nokkrar skemmdir vegna veð-
urs og eins víða í Eyjafirði.
Togarinn Ilrímbakur, sem lá á
Framhald á 15. síffu.
MHmUMtWVmMWAtMWHHIMMVMMMMMmHVtWUMMMHMMMIVWMHMMHmWVMM
Margar fágætar
bækur á uppboði
1
Sigurður Benediktsson heldur
bókauppboð í Þjóðleikhúskjallar-
anum i dag. Sjaldan hafa verið
jafnmargar fágætar bækur á einu
uppboði og að þessu sinni, en bæk
urnar eru allar úr safni þjóðkunns
bókasafnara, en hann vill ekki
■liáta nafns síns getið í sambándi
við uppboðið. Næsta bókauppboð
Sigurðai- verður um miðjan næsta
mánuð og verða þá einnig seldar
bækur úr sama safni.
Svo margar fágætar bækur eru
á þessu uppboði að ógjörningur
er að telja þær allar upp, en hér
skulu gefin nokkur sýnishorn.
Geta má þess að alls eru 167 núm-
er á uppboðsskrá,- Safn til sögu
íslands 1.—6. bindi. Fundation for
det Arna-Magnæanske Legat, K-
höfn 1813. Islands Opkomst eftir
Pál Vídalín, Soröe 1786. Norður-
fari. Livserindringer eftir Barden
fleth, Khöfn 1890. Ökonomisk
Reise igjenem Island eftir Olavius
Khöfn 1780. Sunnanfari. Fimm af
iritum Magnúsar StepbensenS.
Feðgaævir Boga Benediktssonar.
Eftir Þoirvald orarenjsen eru
eftirtaldar bækur: Ferðabók 1 — 4,
Lýsing íslands 1 —4 og Landfræði-
saga íslands 1—4. Þá eru á upp-
boðinu Útilegumennirnir eftir
Matthías Jotíhumsson, gefnir út í
Reykjavík 1864. Búnáðarrit Suð-
uramtsins, Viðey 1839 — 1843. Om
Nordens gamle Diktekonst eftir
Jón Ólafsson, Khöfn 1786, en höf-
undurinn var bróðir Eggerts Ól-
afssonar. Series regum Daniae eft
ir Þormóð Torfason, Khöfn 1702.
Geta má þess að á næsta upp-
boði verða seldar bækur úr sama
safni, eins og fyrr er sagt eru
Fór heila veltu
Rvik. — ÓTJ.
LÖGREGLUÞJÓNN brákaðist
á hrygg sl. laugardag þegar Volks
wagenbifreið sem hann ók fór út
af Ilafnarfjarðarveginum og heila
veltu. Kastaðist ökumaðurinn út
úr bifreiðinni sem hann var í.
Hann mun hafa misst stjórn á
farartækinu vegna hálku.
einnig margar mjög fágætar bæk-
ur. Meðal þeirra nokkrar bækur
prentaðar í Skálholti.
t, . ,
Peningaskápur-
inn ófundinn •
Rvík, — ÓTJ.
PENINGASKÁPURINN sém
stoliö var úr Kaupfélagi Áriies
inga í Hveragerði fyrir nokkr
um dögum, er enn ófundihn.
Svo sem Alþýðublaðið skýrði frá
á sínum tíma höfðu þjófarnir
brotizt inn í kaupfélagið og haft
hann á brott með sér. Skápurinn
vegur um 200 kíló. í honum var
allmikið af peningum, ávísunum
og öðrum verðmætum hlutum.
Óvenjulegt
bílslys
Rvík. — ÓTJ.
UNGUR maður slasaðist í Kópa-
vogi í fyrradag, þar sem hann var
að gera við Daf bifreið ásamt
bróður sínum. Þetta skeði Við
Auðbrekku 53, þar sem Bflaþjón
ustan er til húsa.
Benzíngjöf bifreiðarinnar var
frosin í botni og stóð annar brpð
irinn fyrir framan, með vélar-
hlífina opna og var að reyna pð
liðka liana til, þegar hinn ræsti
vélina. Bifreiðin tók þegar yið
sér, skaust áfram og klemnjdi
þann sem fyrir framan var upp
við steinvegg Spólaði svo l»f-
reiðin þar til sá sem í henni
var drap á henni. Hinn slasaði
var þegar fluttur í sjúkrahús og
þar kom í ljós að hann hafði a.
m. k. fótbrotnað á vinstra fæti.
Bruni í Elliheimilinu Grund
Kl. 10,55 var Slökkviliðinu til-
kynnt um, að reyk lægi út, um
fyrstu álmu á Elliheimilinu Grund
og var beðið um aðstoð. Sendi
slökkviliðið þegar allt sitt lið út,
bæði slökkviliðs- og sjúkrabifreið
ar. Einnig var kallað á lögregl-
una, cf aðstoðar hennar þyrfti
við. Er koinið' var á vettvang,
var starfsfólk Elliheimilisins þeg-
ar búið að ráða niðurlögum elds
ins að miklu leyti með þeim
slökkvitækjum, er þar voru til
staðar. Talsverðan reyk Iagði samt
út um glugga álmunnar. F.ngiþn
slys urðu á mönnum og var fólk
hiff rólegasta. Má þakka góéri
stjórn starfsfólks Elliheimilisins
hve vel tókst til. Kom eldurihn
upp í leguhekk í einu herbergi
álmunnar. Ein kona var í her-
bergi þessu; var hún ferðafær og
tókst því að komast út úr her-
berginu, hjálparlaust. Talið er,
að kviknað hafi í legubekknum
vegna óvarkárni með eld.
29. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3