Alþýðublaðið - 29.11.1966, Síða 11
I
Margir landsleikir í
knattspyrnu í sumar
Björgvin Schram endur-
kjörinn formaður KSÍ
Tuttugasta og fyrsta ársþing
Knattspymusambands íslands var
haldið um helgina í Slysavarna-
félagshúsinu við Grandagárð í
Reykjavík. Fjórtán aðilar sendu
fulltrúa til þingsins og fóru þeir
með annað hundrað atkvæði. Her
mann Guðmundsson var kjörinn
forseti þingsins, og Sveinn Zoega
varaforseti, þá var Einar Björns-
son kjörinn ritari þingsins Björg
vin Schram, formaður Knatt-
spyrnusambandsins flutti setning
arræðu, og minntist í upphafi
fjögurra íþróttafrömuða, sem lát-
izt hafa nýlega, og vottuðu þing
fulltrúar hinum látnu virðingu
sina, með því að rísa úr sætum.
Björgvin Schram kom víða við í
setningarræðu sinni. Gísli Hall-
dórsson, forseti íþróttasambands-
ins flutti ávarp og færði kveðjur
og árnaðaróskir frá framkvæmda
stjórn íþróttasambandsins, og
þakkaði stjóm Knattspyrnusam-
bandsins gott samstarf á liðnu
ari.
í skýrslu sambandsstjórnarinnar
kennir ýmissa grasa, þar' kemur
m. a. fram að áhorfendur að lands
mótum og öðmm knattspyrnu-
mótum í sumar hafa verið ná-
lægt 100.000 og heildaveltan í
sambandi við mótin nam um þrem
milljónum króna. Halli varð á
rekstri sambandsins síðasta starfs
ár, alls rúmlega 180.000 krónur.
en í sumar vora leiknir þrír lands
leikir hér á landi, og skilaði að-
eins einn þeirra hagnaði. Rúm-
lega 150 þúsund króna hagnað
ur varð af unglingalandsleiknum
við Dani. 45 þúsund króna halli
var á landsleiknum við Velsmenn
og 119 búsund króna halli á lands
leiknum við Frakka.
Þátttaka í landsmótunum var
óvenju góð. Tuttugu og þrír aðilar
sendu samtals 99 flokka til þátt
töku, og má því gera ráð fyrir
að nálægt 1500 knattspyrnumenn
hafi tekið þátt í landsmótum í
sumar, og er þet.ta ekki svo lítið,
þegar á bað er litið, að ekki nema
liluti þeirra, sem æfingar sækja,
komast í kapplið.
Næsta sumar munu knattspyrnu
menn hafa í miklu að snúast. Þeg
ar liafa verið ákveðnir nokkrir
landsleikir og ber þá fvrst að
nefna bnð, að Austur-Þjóðverjar
hafa boðizt til að leika hér lands-
leik 20. maí, en lið beirra mun
leika við Svía í Stokkhólmi þrem
dögum áður. Þjóðverjarnir bjóð
ast til að greiða ferðakostnaðinn
sjálfir, sem er mjög óvenjulegt,
og má því líklegt telja að þessu
boði verði tekið, þó tíminn sé
ekki hentugur. Þá verða leiknir
hér þrír landsleikir í sambandi
við 20 ára afmæli knattspyrnu-
sambandsins, og hefur Norðmönn
um og Svíum verið boðið hingað
til afmælismótsins, og er ætlunin
að liðsmenn verði yngri en tutt-
ugu og fjögurra ára. Gert er ráð
fyrir að þessir leikir verði háðir
3. 4. og 5. júlí. Þá hefur Færey-
ingum verið boðið að senda lands
lið til keppni við B-landsiið ís-
lendinga, og verður sá leikur síð
ari hluta júlímánaðar. Danska
knattspyrnusambandið hefur boð-
ið íslendingum til landsleiks í
Kaupmannahöfn 23. ágúst, ag hef
ur því boði verið tekið. Svo er
bað loks þátttakan í undankeppni
knattspy rnukeppni Olympíul eik j -
anna. en íslendingar eiga að leika
tvo leiki við Sþánverja í fyrstu
umferð og þarf þessum leikjum
að vera lokið fyrir 1. júlí. Þar
sem íslendingar eiga mjög erfitt
um vik að ljúka þessum leikjum
fvrir tilsettan tíma, er bugsan-
legt að þeir hætti við þátttöku, en
ekki er útilokað að leikirnir geti
farið fram síðar. það er undir
^tölum komið, sem eiga að leika
við Spánverja í annarri umferð.
St.ióm Knattspyrnusambandsins
var endurkjörin: Formaður Björgv
in Sehram, var endurkosinn með
lófataki, svo og þeir stiórnarmenn,
«em ganga áttu úr stjórn og auk
formanns skipa þessir menn stjórn
Knattspyrnusambandsins næst.a ár.
Guðmundur Sveinbiörnsson, Ragn
ar Lárusson, Ingvar N. Pálsson.
Sveinn Znega. Jón Magnússon og
AvpI Finnrsson. í varastiórn voru
kjörnir Haraldur Snorrason, Hall-
dór Sigurðsson og Sveinn Jóns-
son.
Þingið afgreiddi ýmis mál, og
samþykkti m. a. að skipa milli
þinganefnd, sem geri athugun á
því, á hvern hátt heppilegast sé
að tryggja K. S. í fastar tekjur
og á nefndin að skila áliti til
stjórnar knattspyrnusambandsins
eigi síðar en 1. september 1967.
Þá var ákveðið að stjórn sam-
bandsins ákveði fjölda landsliðs-
nefndarmanna hverju sinni og
kosin var þriggja manna nefnd til
að endurskoða lög Knattspvi’nu-
sambandsins. Nefndin skal skila
áliti til stjórnarinnar 1. septem-
ber 1967, og verða tillögurnar síð
an lagðar fyrir næsta ársþing
K.S.Í.. í nefndina voru kjörnir
þeir Axel Ein. Ell. Schram og
Hannes Þ. Sigurðsson. Ennfrem
ur var samþykkt að ársþing Knatt
spyrnusambandsins verði haldið íi
febrúarmánuði ár hvert, en hing
að til hafa knattspyrnuþing verið
haldin í nóvembermánuði. Þá var
ákveðið að reikningsár sambands
ins skyldi vera aimanaksárið.
Endursamþykkt var tillaga frá
fyrra ársþingi, um árlegan leik
milli úrvalsliða úr fyrstu og ann
arri deild, en leikur þessi fórst
fyrir á síðasta keppnistímabili.
Loks var ákveðið að fela ekki
öðrum framkvæmd leikja í lands-
mótunum, einkum annarri og
þriðju deild, en þeim, sem hafa
aðstöðu til að taka aðgangseyri.
Við þingslit lýsti Björgvin
Schram því yfir, að hann myndi
ekki oftar gefa kost á sér til for
mennsku sambandsins, að loknu
þessu kjörtímabili, en hann hef
ur setið í stjórn sambandsins frá
stofnun, lengst af sem formaður.
y
Landsleikurinn
háður í kvðld
Landsleikur íslands og Vest-
ur-Þýzkalands jer frarn í kvöld
og annað kvöld og hefjast kl.
20.15 bæði kvöldin. Þýzka lands
liðið var væntanlegt til Reykja
víkur í nótt.
Vestur-Þjóðverjar eru meðal
fremstu handknattleiksþjóða
heims og eru í úrslitum heims
meistarakeppninnar í Svíþjóp,f
vetur.
Á myndinni sést einn af þýzjcu
landsliðsmönnunum, Schmitt,
slcora í landsleik. i-
Bogi Þorsteinsson formaður KKÍ:
Ágætt starf KKÍ
á s.l. starfsári
ÁRSÞING KKÍ var haldið laug
ardaginn 19. nóv. sl. í félagsheim
ili Vals.
Formaður KKÍ, Bogi Þorsteins
son, setti þingið. í uppliafi minnt-
ist hann tveggja látinna íþrótta
frömuða, Erlings Pálssonar, for-
manns Sundssambands íslands og
Benedikts G. Waage, heiðursfor
seta ÍSÍ, en hann var ævifélagi
KKÍ og aðalhvatamaður að stofn
un sambandsins. Vottuðu þingfull
trúar hinum látna virðingu sína
með því að rísa úr sætum.
Forseti þingsins var kjörinn
Gunnar Torfason, formaður KK
RR.
Forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson
sat þingið og flutti körfuknattleiks
mönnum kveðju ÍSÍ og árnaðarósk
ir. Þakkaði hann stjórn KKÍ fyrir
mikil og gifturík störf.
Bogi Þorsteinsson flutti ítar-
lega skýrslu um störf Körfuknatt
leikssambandsins, sem hann kvað
aldrei hafa verið meiri en á liðnu
starfsári. Hefðu m.a. verið leiknir
8 landsleikir, og auk þess hefðu 3
bandarísk skólalið keppt hér
heima við úrvalslið KKÍ.
Mörg mál komu fram á þinginu
og meðal tillagna sem samþykktar
voru, voru eftirfarandi:
„Ársþing KKÍ telur að rétt sé
að leikir í íslandsmóti 1967 fari
fram í íþróttahöllinni í Laugardal,
þ.e. leikir I. deildar og II. deildar,
leikir II. fl. karla, svo og úrslita-
leikir annarra flokka.”
„Ársþing KKÍ telur æskilegt að
úrslitaleikir Bikarkeppni KKÍ 1967
fari fram á Akureyri, ef aðstæður
leyfa.“
Þá var samþykkt tillaga þess
efnis að liðum skuli fjölgað í 1.
deild úr 5 í 6. Einnig var sam
þykkt að það lið, sem félli niður ur
I. deild á íslandsmóti 1966 og lið
ið, sem varð annað í röðinni í II.
deild á sama móti skuli leika sam
an til úrslita um sæti i I. deild á
íslandsmóti 1967.
Stjórnarkjör fór sem hér segir:
Bogi Þorsteinsson var einróma
endurkjörinn formaður sambands
ins en hann hefir verið formaður
KKÍ frá stofnun þess.
Með honum í stjórn voru kosnir:
Magnús Björnsson
Gunnar Pedersen
Helgi Sigurðsson
Þráinn Scheving
Agnar Friðriksson
Ilallgrímur Gunnarsson
í varastjórn:
Sigurður E. Gíslason
Þorsteinn Ólafsson
Ásgeir Guðmundsson
29. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ