Alþýðublaðið - 06.12.1966, Side 6
.1
Samkeppni skólabarna
um auglýsingaspjöld
i Barnavcrndarnefnd Reykjavik-
í ur efnir til samkeppni meðal
: skólabarna í Ileykjavík um 60 aug
■ lýsingaspjöld til birtingar í stræt-
• isvögnum í Reykjavík. Þessi sam-
; keppni er þáttur í áróðri fyrir því,
! að teglunum um útivist barna í
: Reykjavík sé framfylgt.
Reglur samkeppninnar eru eft-
irfarandi:
Þátttaka er Iheimil öllum börn-
um á skólaskyldualdri (7—12 ára).
Stærð myndanna skal vera: Hæð
60 sm, brcidd 50 sm og leggur
hver skóli þátttakendum til efnið.
Myndirnar skulu vera í litum
•og koma til greina m.a. eftirtald-
ar iaðfer<5ir við verkefnið: Vax-
krít: og olíukrít, vatnslitir og lita-
papþír, eða þessar aðferðir bland
aðar.
CXrðin ,,Börn iheima kl. átta“
skulu standa :á hverju spjaldi og
myúdirnar gerðar í samræmi við
þau:
Hlyer mynd skal merkt í hægra
liorni að neðan með nafni þátt-
takandans, bekk og skóla.
Skilafrestur er til 15. des. nJk.
og veita teiknikennarar skólannna
myndunum viðtöku.
60 beztu myndirnar úr þessari
samkeppni verða sýndar í stræt-
isvögnunum í ReykjaTÍlc dagana
19. —31 desember, eömuleiðis
verða veitt verðlaun fyrir beztu
mynd úr hverjum skóla og einn-
ig fyrir 3 — 5 beztu myndir keppn-
innar. — Nánari upplýsingar um
verðlaunaveitingu verða birtar
síðar.
Sérstaklega ber að geta þess,
að hin eftirsóttu auglýsingastæði
í strætisvögnunum eru lánuð
Framhald á bls. 10.
Jónas St. Lúðvíksson.
Ný bók eftir Jónas
St. Lúðvíksson
út er komin hjá Ægisútgáfunni
ný bók er ber heitið „Sjóslys og
svaðilfarir“. Er þar bæði að finna
íslenzkar og erlendar frásagnir,
sem Jónas St. Lúðvíksson hefur
skráð og þýtt. íslenzku frásagnirn
ar bera heitin Þegar vélbáturinn
Farsæll fórst, Sjóslys í Vestmanna
eyjum, Þegar „ÍSLAND" týndist
'iieð manni og mús, Sjóslys við
Langanes 26. september 1927, og
Skipsstrand á Skeiðarársandi.
Þýddu greinarnar eru Þegar segl
báturinn Leif Eiríksson sigldi til
Ameríku. Síðbúið neyðarkall.
Dauðadæmda skipalestin í íshafinu
Einn um borð í brennandi olíu-
skipi og Ég sökk með „Albatross."
Jónas St. Lúðvíksson er fæddur
í Vestmannaeyjum og alinn þar
upp við brimrót og veðragný, þar
Framhald á 10. síðu.
Operan Martha verður jóla-
sýningin hjá Þjóðleikhúsinu
Jólasýning Þjóðleikhússins
að þessu sinni verður óperan
Martha eftir Flotow. Hljóm-
sveitarstjóri verður Bohdan
Wodicjsio, en þjtðandi óper-
unnar er Guðmundur Jónsson
óperusöngvari. Aðalhlutverk-
ið verðix fyrst sungið af hinni
heimskLnnu óperusöngkonu,
Maítiwi d Dobbs, en síðar mun
Svala Nilsen taka við hlutverk-
inu. Þe r sem fara með önnur
hlutverk í óperunni eru Guð-
mundur Jónsson, Guð-
mundur Guðjónsson, Kristinn
Hallsson, Sigurveig Hjalte-
sted og Hjáimar Kjartansson.
, Leikstjóri er Erik Schack og
hefur hann nýverið sett þessa
sömu óperu upp í Berlín. Æf-
ingar s.anda nú yfir í Þjóð-
leikhúsinu á þessari óperu og
hefur Carl Biliioh æft meS
kór og einsöngvurum í undan-
farnar sex vikur.
1 TónsJráldið Friedrich Flo-
tow er fætt árið 1812 og dáið
1883 og er þýzkt að uppruna.
Flotow fór ungur til Parísar
ög dvaldist meirihluta ævinn-
ar þar og hlaut þar tónlistar-
menntui sína. Hann samdi
rhargar óperur og er Martha
og Ales sandro Stradella þekkt-
astar a! óperum hans. Martha
er gamanópera og gerist í
Myndin er af Mattiwilda
Dobbs, ópcrusöngkonu.
Englandi á stjórnarárum Önnu
drottningar 1702—1714. Mar-
tha var fyrst sýnd í Vínarborg
árið 1847. Margar af „arium"
í þessari óperu eru mjög vel
þekktar og munu margir kann-
ast við þær.
Óperusöngkonan Mattiwilda
Dobbs er blökkukona, og er
fædd í Atlanta í Bandaríkj-
unum. Að loknu fháskólanámi
við Columbía háskólann (en
þar tók hún Master of Arts
próf) hóf hún söngnám hjá
söngkonunni frægu Lotte Leo-
nard og hlaut einnig á þess-
um órum námsstyrk sem
kenndur er við Marían Ander-
son.
Stundaði einnig söngnám í
París í tvö ár. Hún var fyrsti
negrasöngvariinn, sem sungið
'hefur á hinu fræga óperuhúsi
,,La Scala“ í Mílano. Margoft
hefur hún sungið við Clynde-
bourne óperuna í Englandi, á
Covent Garden óperunni og
við Metropolitan óperuna í
New York.
Mattiwilda Dobbs hefur
sungið á konsertum í flest-
um löndum Evrópu og var fyrir
skömmu í söngleikaferð í
Rússlandi. Auk þess hefur hún
sungið á konsertum bæði í
Astralíu og flestum stórborg-
um JSjoiÖuftAmeríku. Nú er
hún búsett í Svíþjóð og er
maður hennar sænskur blaða-
maður. Á síðari árum hefur
hún oft sungið við óperuna í
Stokkhólmi.
Óperan Martha verður frum
sýnd í Þjóðleikhúsinu annan í
jólum. Leikmyndir og bún-
ingateikningar eru gerðar af
Lárusi Ingólfssyni. Um 35 fé-
lagair úr Þjdðleikhúskórnum'
taka þátt í sýningunni.
0 6. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Niðurstöður gæðamats-
rannsókna birtar
Neýtendasamtökin munu nú taka
upp þá nýbreytni að birta niður
stöður gæðamatsrannsókna, er syst
ursamtök þeirra erlendis hafa fram
kvæmt.
Hér er um mikið hagsmunamál
að ræða fyrir neytendur, sem þann
ig geta kynnt sér eiginleika var-
andi þær vörur sem teknar eru til
rannsóknar, sem eru það flóknar
að gei-ð, að þær verði eigi dæmd
ar án sérfræðilegrar athugunar.
Ástæðan til þess, að þetta hefur
ekki verið kleift hingað til, er sú,
regla sem gildir innan Alþjóða
sambands Neytendasamtaka að slík
ar greinar séu birtar í heild. Sam
kvæmt sérstakri heimild verða nið
urstöðurnar einar birtar í Neyt
enda blaðinu, en forsendurnar og
lýsingar á rannsóknunum sjálfum
6 þotum grandað
yfir N-Víetnam
Saigon 3. 12. (NTB-Reuter-AFP)
Sex bandarískar flugvélar voru
skotnar niöur yfir Norður-Vietnam
í gær, þegar 'meðal annars var ráð
izt á skotmörk í aðeins átta kíló
metra ffarlægð frá miðborg Hanoi
að sögn bandaríslcs talsmanns í Sai
gon. Bandaríkjamenn hafa sjald
an misst jafnmargar flugvélar yf
ir norður-Vietnam á einum degi.
í Hanoi hermdi hin opinbera
fréttastofa Norður-Vietnam að 11
bandarískar flugvélar hefðu verið
skotnar niður. Að minnsta kosti
200 flugvélar tóku þátt í árásunum
sem gerðar voru á Norður-Vietnam
í gær, að því er sagt er í Saigon.
Langt er síðan Bandaríkjamenn
hafa gert jafnvíðtækar loftárásir
á Norður Vietnam.
munu liggja frammi á skrifstofu
Neytendasamlakanna.
Sjálfvirkar þvottavélar fyrstar.
Fyrstar fyrir valinu verða sjálf
virkar þvottavélar, sem hér eru á
markaði, að þessu sinni 9 tegundir
þeirra, og hafa rannsóknirnar far
ið fram á þessu ári. Mikill fjöldi.
fyrirspurna berast samtökunum
vegna þeirra. Þessar upplýsingar
verða birtar í næsta tölublaði Neyt
endablaðsins, sem kemur út í þess
um mánuði. Vegna mikilla anna
hjá Neytendasamtökunum undan
farið hefur útgáfan tafizt um 2
vikur.
Eftirprentun á þessum upplýsing
um Neytendablaðsins er stranglega
bönnuð sem og öll notkun þeirra í
auglýsingaskyni. Er þetta algild
regla Neytendasamtakanna. Inn-
ritunarsími samtakanna er
19722, og verður svarað í símann
allan laugardaginn og sunnudaginn
3. og 4. desember. Til að tryggja
sér blaðið, um leið og það kemur út
ættu menn að innrita sig sem fyrst.
Ásgeir Jakobsson.
Bók ym
togveiða á Isl
„Kastað í Flóanum" nefnist bók
eftir Ásgeir Jakobsson um upphaf
togveiða við ísland. Er hér sögð
saga botnvörpunnar frá upphafi og
síðan rakin áfram og sagt frá því
þegar hún kom hingað fyrst til
landsins, hörmungunum sem
fylgdu komu Bretans 1 Flóann,
fyrstu tilraunum útlendinga hér-
lendis og loks er sögð sagan af
útgerð fyrsta íslenzka togarans og
fyrsta íslenzka togaraskipstjórans.
Höfundurinn Ásgeir Jakobsson
er Vestfirðingur að ætt, alinn upp
við sjó og stundaði sjómennsku
fram á fullorðinsár. Skrif hans
um sjómannalíf og sjómennsku
bera þess órækt vitni, að hann
gjörþekkir viðfangsefnið. Á sl. ári
kom út bók eftir hann, er nefndist
„Sigling fyrir Núpa“ og fékk mjög
góða dóma.
Ægisútgáfan gefur bók þessa út,
sem er í alla staði hin vandaðasta.
Hún er prentuð hjá Prentverki
Akraness hf. og er 240 bls. að
stærð.
Biskupinn mess-
ar í London
Biskup íslands og kona hans
fóru utan í gærmorgun og verða
næstu daga gestir ensku þjóðkirkj
unnar. Munu þau fyrst dveljast hjá
erkibiskupnum af Kantaraborg, dr.
Michael Ramsey og konu hans í
Lambert-höll í London, og síðan
heimsækja tvo háskóla, Háskólann
í Birmingham og Notthingham, en
þeir hafa boðið biskupi til fyrir
lestrahalds. Þá verða þau hjónin
gestir biskupanna í Birmingham
og Southwell. Biskup íslands mun
predika í London og fleiri borgum.