Alþýðublaðið - 09.12.1966, Side 9
föll, seinust allra í bekknum, að
fþví er hún segir, og vill nú ekki
verða síðust bekkjarsystkina sinna
til kynmaka. í því skyni leitar
hún samfara við Helmer, sem vill
ekki þekkjast hana. Edit gerir þá
tilraun til sjálfsmorðs, sem hún
verður aldrei fær um að fram-
kvæma. Þær mæðgur reka Helm-
er á dyr og ákveða að njóta ham-
ingjunnar, einar sér.
Kvikmynd þessi er vönduð að
gei'ð, en eittihvaið virðjtst hafa
dofnað yfir áhrifum Sjömans. Það
vandamál, sem hann tekur fyrir í
þessari mynd, örðugleikar ungr-
ar óframfærinnar stúlku á gelgju
skeiði, verður manni ekki eins
hugstætt sem fyrri myndir hans
skópu. Sjöman sannar þó enn ,að
hann er góður leikstjóri og er á-
stæða til að vænta markverðra
verka frá hans hendi í framtíð-
inni. Kijóllinn er betur gerð fram-
an af, en í síðari hluta ver Sjö-
man helzti miklum tíma í að lýsa
sambúð þeirra mæðgna, hvernig
Helen ávinnur sér aftur traust
dóttur sinnar og hvernig hún tek-
ur gleði sína aftur. í þessum sam-
skiptum þeirra er líkast því, sem
kvikmyndin rambi á mörkum of
mikillar tilfinningasemi og væmni.
Lok myndarinnar virðast nokkuð
endaslepp, þar sem Edit hefur
skyndilega eignazt ,,kunningja“,
sem móðirin er aftur á móti ekki
alls kostar ánægð með. Einstök
atriði ,,hrífa“ mann ekki beint,
nema þá ef vera skyldi, er Edit
horfir löngunarfullum augum á
hamingjusama elskendurna njóta
kvöldlífsins. Þrátt fyrir, að það
vandamál, er kvikmyndin tekur til
meðíerðar sé ekki beinlínis svo
mjög eftirsóknarvert til áhorfun-
ar, er samt ærin ástæða fyrir því,
að mynd þessi sé skoðuð. Kemur
þar einkum til vönduð leikstjórn
Sjömans, sem áður segir, svo og
góð kvikmyndun Sven Nykvists,
sem mikið og gott starf hefur
unnið með Bergmanni. Leikur er
einng góður hjá þeim Tinu Hed-
ström í hlutverki Edit og Gunn
Wállgren sem Helen. Sá frábæri
leikandi Gunnar Björnstrand í
hlutverki Helmers, stendur sig vel
að vanda, þó oft hafi hann gert
betur áður. Þeir sem ætla sér að
sjá þessa mynd, með það eitt í
huga að sjá „djörf atriði“ og ann-
ars konar „klúrheit“, skulu held-
ur leggja lykkju á leið sína c/g
.staldra við í KópavojJsbíói, en
þeim sem vilja sjá vandaða mynd
og kynnast mannlegum vandam'ál-
um samtímans, ráðlegg ég eindreg
ið að sjá umrædda kvikmynd, þó
með þeim fyrirvara, sem áður er
getið.
Já, það var víst sannarlega kom-
inn tími til, að Bæjarbíó rétti úr
kútnum.
Sigurður Jón Ólafsson
Barn
Michel del Castello:
LJÓS í MYRKRINU
Sigríður Einars frá Munaðarnesi
þýddi
Prentsmiðjan Leiftur, Reykjavík
1966. 223 bls.
„Það er mjög erfitt að drepa
barn“, segir á einum stað í þess
ari sögu; sjálf segir sagan af því
livresu erfitt það raunyerulega er.
Það má ráða af æviatriðum höf
undarins að hann segi sína eigin
sögu í þessari bók, frásögn hans,
sem þ'ætti ótrúlegur skáldskapur,
hafi að minnsta kosti kjölfestu
sannleika. Tanguy litli, sem sögu
hetjan nefnist, er fæddur á Spáni,
móðirin spænsk en faðirinn fransk
ur; móðirin berst gegn Franco og
vérður að flýja land í stríðslok
in; þau mæðgin lenda í fangabúð
um á yfirráðasvæði Vichy-stjórn
arlnnar eftir að faðir drengsins
hefur brugðizt þeim; þaðan tekst
þeim að flýja en verða viðskila á
flóttanum; móðirin kemst undan
en drengurinn er framseldur Þjóð
' verjum og situr í þýzkum fanga
búðum til stríðsloka, pólitískur
fangi, tíu til tólf ára gamall. Tang
' uy litli er sannarlega barn okkar
tíma. Eftir stríðið ,sem hann hef
ur lifað af með einhverjum ó-
skiljanlegum hætti, er hann send
ur heirn aftur til Spánar. Og það
heyrir til öfugmælunum í sögu
okkar
hans að þar hefst hans versta
þrautastríð á uppeldisstofnun
handa munaðarleysingjum; munk
arnir, sem þar ráða húsum, yfir
stíga jafnvel böðla fangabúðanna í
grimmd og siðleysi. Þjóðverjarn
ir liöfðu allténd sér til afsökunar
að þeir áttu í stríði; mannvonzka
munkanna á sér hinsvegar enga
minnstu afbötun. En það er erf
itt að drepa barn: hvar sem Tang
uy fer og flækist kynnist hann
einnig mannlegri hlýju og vináttu
Einkennilegust er lýsing Giinthers,
ungs Þjóðverja í fangabúðum naz
isla sem er kærleikurinn og mild
in persóngerð, einskonar krist
mynd í guðlausum heimi. Hann
verður drengnum bæði faðir og
móðir þar til eina nótt að hann er
leiddur út og skotinn. Á munaðar
leysingjahælinu öðlast hann vin
áttu ungs sakamanns, föðurbana;
saman tekst þeim að lokum að
flvja hæiið. Og þá fer að lokum að
birta yfir hag Tanguys. Hann
kemst á skóla hjá Jesúítum, eign
ast þar föðurlegan vin og kennara
sem hjálpar lionum til manns; vinn
ur síðan um skeið í verksmiðju,
óbreyttur verkamaður við aumleg
kjör; kemst að lokum til Frakk
lands sem alla tíð hefur verið hon
um mynd frelsisins; þar hitti liann
íöður sinn að nýju þótt þeir tveir
eigi ekki margt sameiginlegt frem
tíma
ur en áður. Það er annað af öfug
mælum sögunnar að þessi lokaþátt
ur hennar er þrátt fyrir allt ótrú
legastur. í þeim heimi sem hún
lýsir er mannvonzka og hatur eðli
legt; skóli pater Pardos, hefur
hins vegar smekk af einhverjum
ókennilegum sælustað, göfgi jesú
ítans, mildi Gunthers, kærleiki
Sebastíönu, verkakonurnar á Spáni
sem Tanguy býr hjá um skeið, er
eins og andsvar við ómannlegum,
óbærilegum veruleikanum sem sag
an lýsir.
Úr þeim heimi sleppur Tanguy
litli lieill á húfi — en óhjákvæmi
lega mótaður af honum til ævi
loka. Heimspeki hans er lýst í
niðurlagi sögunnar þar sem segir
af fundum þeirra móður hans að
lokum:
„Þau skildu ekki hvort annað.
Hún var ennþá halursfull. Hún
trúði alltaf á réttmæti síns mál
staðar. Fyrir hennar sjónum skipt
ist allt í tvö hólf: hinir venjulegu
annars vegar og hennar banda
menn hins vegar. — Tanguy trúði
því hinsvegar ekki að hægt v.æri
að skipta heiminum þannig í tvö
hólf. Hann var alveg andstæður
öllu hatri, kannski var hann skýja
glópur og ef til vill var hann
skyggn maður. En hann þreyttist
aldrei á að bera næstum örvænting
Framhald á bls. 10.
úrog rymingar-
KLUKKUR
15
4Q%
y ' vÍl
ÚR OG
KLUKKUR
afsláttur af öllum
vörum verzlunarinnar
vegna breytinga.
Verzlun
Sigurðar
Jónassonar
úrsmiðs
LAUGAVEGI 10,
SÍMI 10897.
P ó s t s e n d u
m
Vandláíir velja
Michelsen
Jólaskreytingar og skraut. Blóm og gjafavörur í miklu úr-
vali. Innlend og erlend kerti.
NÆG BÍLASTÆÐI.
Blómaverzlun
MICHELSEN
Suðurlandsbraut 10 — Sími 31099.
Peysur - Prjónakjólar
Fjölbreytt úrval af:
Dömu
Herra
Barna
P
E
Y
S
U
M
Prjónakjólar — Ullarfatnaður —
Ullarsokkar. — PÓSTSENDUM.
Ullarvöruverzlunin Framtðin
Laugavegi 45. — Sími 13061.
Jól ahreingerningar
Kústar, burstar, þveglar,
fötur balar, þvottaföt,
þvottakörfur, hreinlætisvörur,
strauborð, tröppur.
SENDUM HEIM.
isnœesa
Hafnarstræti 21.
Sími 1-33-36.
9. desember 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ £