Alþýðublaðið - 30.12.1966, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 30.12.1966, Blaðsíða 8
[ SÍCARETTUFRAMLEIBENDUR í VÖBN Fyrir svo sem 15 — 20 árum var það næsta algengt, að í sígarettu- auglýsingum væri því kurteislega beint til eiginkvenna að ein pakka lengja af sígarettum væri tilvalin jólagjöf handa bóndanum. Þessar auglýsingar sáust ekki núna fyrir jólin og sjást líklega aldrei fram i ar, enda þættu þær að líkindum há ' mark smekkleysis í dag því menn ; eru talsvert fróðari um tóbaks reykingar nú, en fyrir fimmtán ár um. Þeir eru æ fleiri sem leggja síg aretturnar eða alla tóbaksnotkun á hilluna. Árið 1965 minnkaði tóbak? magnið, sem flutt var inn til Eng lands og tollur var greiddur af um 9,6%. Tolltekjurnar af tóbaki hækkuðu ekki nema um 3% og hafði þó tollur á tóbaki hækk- að um 13% á árinu, að því er vikublaðið Economist segir. Tóbaksframleiðendurnir eru nú komnir í vörn, eftir að hafa verið lengi í sókn. Þeir reyna öðru hverju að sýna fram á glpppur í röksemdafærslum þeirra sem harð ast berjast gegn tóbaksnotkun, en oftast með litlum árangri. Þeirra terkasta vopn er enn sem komið er, að ekki hefur tekizt að sýna vísindalega að reykingar valdi krabbameini í lungum eða hjarta sjúkdómum. Aðeins hefur tekizt að st.vðja það tölfræðilegum rökum, ;að reykingam. eru í margfalt mciri hættu að deyja úr krabbameini eða hjartasjúkdómum heldur en þeir 'isem ekki reykja. Árið 1965 dóu 30.000 Englend ingar úr lungnakrabba. Það voru fjórum sinnum fleiri en létust í I ;t umferðarslysum og fimm prósent allra þeirra sem dóu á árinu. Þess ar töiur eru það háar að segja má að heilbrigðisyfirvöld bregðist skyldu sinni gagnvart almenningi með því að aðhafast ekki neitt. Eitt hvað mundi sagt, ef í Bretlandi dæj 4i 30 þúsund manns úr farsótt á einu ári, þá mundi talin ástæða til aðgerða. Og það er einmitt þetta sem hefur skeð. En hvað á að gera? Stórauka á- róður og fræðslu um skaðsemi tób aks, segja sumir. Gallinn í sam bandi við það er sá, að mjög er erfitt að fá fullorðið fólk til að láta af reykingum og táningum finnst hættan á lungnakrabba eða hjartasjúkdómum of fjarlæg til þess að hafa af henni minnstu á- hyggjur meðan verið er að kom ast upp á bragðið með að reykja. Rannsóknir sýna þó, að þeir sem reykja sígarettur eru í fimm sinn um meiri hættu 'en þeir sem ekki reykja. Bandarískt tímarit lét fram fara könnun á tjöru ogr nikótín-' innihaldi 30 vinsælla tegundar af síu-sígar- ettum. Rannsóknin var gerff. samkvæmt affferffum, sem yfir- völd vestra viffur- kenna og þaff var þekkt fyrirtæki, sem framkvæmdi hana. Sígarettu- og stubh- Iengd er mæld í milli- metrum en tjaran og nikótíniff í milligr. Samt hefur áróðurinn gegn tób aksnotkun talsverð áhrif. Heil- brigðismálaráðherra Breta skýrði þannig nýlega frá því í neðri mál stofunni að á árunum 1961 — 65 hefði þeim sem komnir eru yfir 15 ára aldur í landinu og ekki reykja fjölgað úr 43% í 46% íbú- anna. Fjölgunin varð mest meðal karlmanna, sem yfirleitt reykja meira en kvenfólk. Einnig fjölgaði þeim all verulega í aldurshópnum frá 15—19 ára, sem ekki reykja. Mikilsvert atriði að margra dómi er að stemma stigu við auglýsing um sem bregða einhverjum dýrð ar- eða hetjuljóma yfir reykingar og sumir vilja jafnvel láta banna allar tóbaksauglýsingar. í Eng- landi er nú bannað að auglýsa síg arettur í sjónvarpi, og tóbaksfram leiðendur höfðu til skamms tíma með sér samkomulag um að aug lýsa ekki í kvikmyndahúsum og útvarpsstö'ðvunum ólöglegu sem starfræktar eru undan strönd Eng lands og unglingarnir hlusta á dag inn út og daginn inn. En þó dregið sé úr auglýsing um eins og \dða hefur verið gert þá finna tóbaksframleiðendurnir bara upp á nýjum ráðum til að gylla vöru sína í augum notenda. í Englandi fara nú æ fleiri sígar ettuframleiðendur inn á þá braut að láta gjaíamiða fylgja með í pökkunum og þegar ákveðnum íjölda miða hefur verið safnað getur handhafi þeirra annaðhvort fengið peningupphæð eða einhvern eigulegan grip ,allt eftir því hve margir miðarnir eru. í Bandaríkj unum mun ekki enn hafa verið far ið inn á þessa brapt varðandi tób ak, en gjafamiðar hafa lengi verið þar við lýði í mörgum mat- vöruverzlunum. Auðvitað er í raun inni fjarstæða að tala um gjafa miða í þessu sambandi, þótt þeir eigi að heita látnir í té ókeypis, því auðvitað er það viðskiptavin urinn sem á endanum er látinn borga brúsann. Þá hafa ýmsir bent^á það, að sjálf sagt sé fyrir brezku ríkisstjórnina að fylgja því fordæmi, sem gefið hefur verið vestur í Ameríku, nefnilega að á hvern einasta sígar ettupakka, (nema þá sem flytja á út) skuli prentuð eftirfarandi: AÐ VÖRUN, sígarettureykingar geta verið hættulegar heilsunni. Þegar allt kemur til'alls þá er þetta varla ofsagt. Tóbaksframleiðendur voru að sjálfsögðu ekkert hrifnir af því að þurfa að láta prenta þessa að vörun á hvern einasta sígarettu pakka. En þeir voru þó það séðir að fallast strax á þetta og komu þann ig i veg fyrir frekari kröfur í bili, um enn sterkorðari aðvaranir eða Suglýsingabönn. Það sem þeir hafa þessa dagana lang mestar áhvggjur af er að það kunni að verða lög- leitt, að þeim verði gert að skyldu á skrá á hvern einasta sígarettu pakka hve mikið nikótín og hve mikla tjöru hver sígaretta inni heldur . Þegar Kent sígaretturnar komu á markaðinn 1957 seldust þær meira en nokkur önnur ný sígar ettutegund hafði áður gert. Þetta sannfærði sígarettuframleiðendur um að í Bandaríkjunum vildi mik ill hluti almennings eiga kost á sígarettum með lágu tjöru- og nik ótin magni. Þá hófst tjörukapphlaupið svo nefnda. Sígarettuframleiðendur kepptust um að lýsa því yfir ,að þeirra framleiðsla hefði minni tjöru 0!g styðjast við vísindal rann sóknir, og hafa vafalaust gert, en aðferðirnar, sem beitt var við rann sóknirnar voru afar mismunandi og því ekki nema eðlilegt að eng um tveim bæri saman. Árið 1960 varð samkomulag um að hætta þessu er tókst að ná samkomu- lagi um eina aðferð til að mæla þetta. Sumir létu svo ummælt, að þetta væri gott dæmi um það hvernig embættismenn leystu oft vandamál með því að sópa þeim undir teppið. Um leið var hætt að leggja eins mikla áherzlu og áður hafði verið gert á rannsóknir til aö finna nýjar leiðir til að draga úr tjöru- og nikótínmagni sígarettu reyksins, og hætt var að gæta hófs í orðalagi í auglýsingum. Stofnun sú í Bandaríkjunum, sem fylgist með viðskiptaháttum fyrirtækja kvaðst ekkert geta gert meðan ekki lægi fyrir opinber yfirlýsing um skaðemi tóbaks. Eftir henni þurfti þó ekki að bíða svo ýkja lengi. í janúar 1964 var birt skýrsla banda rískra sérfræðinga um skaðsemi síg LEUGD.'S TÖBBUR RWK T TJARAmtf tíN ITEGUND ______ i CarLTON' j Mahvels Duke of DÞrham True I Montclair ■j Spring 'j Kent ! Tareyton j Tempo ; Alpine ■ Parliament j Winston Salem i VlCEROY I Philip Morris Filter j Marlboro I Old Gold Filter ' Newport L&M i Lark Lucky Strike Filter Paxton I Raleigh i Kool Belair J Camel Filter Chesterfield Filter Masterpiece Half & Half Pall Mall Filter 83 mm. 33 mm; 50 mm. 85 mm. 33 mm. 52 mm. 85 mm. 33 mm. 52 mm. 85 mm. 33 mm. 52 mm. 83 mm. 33 mm. 50 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm, 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm; 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 85 mm. 30 mm. 55 mm. 100 mm. 30 mm. 70 mm. 6.02 mg. 0.39 mg. 7.6 mg. 0.40 mg. 9 1 mg. 0.60 mg. 13.7 mg. 0.66 mg. 16.4 mg. 0.89 mg. 18.0 mg. 0.90 mg. 19.4 mg. 1.05 mg. 19.5 mg. 1.08 mg. 20.0 mg. 1.45 mg. 20.3 mg. 1.14 mg. 20.4 mg. 1.15 mg. 21.4 mg. 1.27 mg. 21.4 mg. 1.35 mg. 21.6 mg. 1.53 mg. 22.1 mg. 1.40 mg. 23.4 mg. 1.30 mg. 23.8 mg. 1.17 mg. 24.0 mg. 1.22 mg. 24.1 mg. 1.25 mg. 24.3 mg. 1.22 mg. 24.3 mg. 1.27 mg. 24.8 mg. 1.39 mg. 25.4 mg. 1.65 mg. 26.5 mg. 1.71 mg. 27.7 mg, 1.84 mg. 28.4 mg. 1.53 mg. 28.4 mg. 1.64 mg. 28.7 mg. 1.74 mg. 30.1 mg. 2.11 mg. 31.6 mg. 1.72 mg. 8 30. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.