Alþýðublaðið - 30.12.1966, Qupperneq 9
arettureykinga. Niðurstaða skýrsl-
unnar var í stuttu máli þessi: Síg
arrettureykingar skapa heilsu
manna í Bandaríkjunum svo mikla
hættu að það réttlætir fullkom-
lega viðeigandi varnaraðgerðír.
En nú urðu tóbaksframleiðend
ur fyrst alvarlega hræddir. Þeir
höM5u fram að þessu eytt hundr
uðum þúsunda eða milijónum doll
ara í að viðhalda áhrifum sínum í
Washington nú var allt í hærtu.
Nefnd settist á rökstóla til að
ákveða hvernig tóbaksframleiðend
ur ættu að bregðast við .
Niðurstaðan varð þessi: Gera,
sem minnst úr óhollustunni, en
minna á efnahagslegt gildi tóbaks
iðnaðarins fyrir þjóðina ,en sígar
ettur eru árlega framleiddar fyrir
7 billjónir dala.
í öðru lagi að hnippa hæversk
lega í blöð, tímarit og sjónvarps
stöðvar og minna á að sígarettu
framleiðendur eyða árlega 240
milljónum dala í auglýsingar.
í þriðja lagi að sætta sig við
aðvaranir á sígarettupökkum, ef
auglýsingarnar yrðu látnar vera
undanþegnar þessum aðvörunum.
Leið nú og beið. Þegar svo lög
voru sett þar sem í engu var geng
ið lengra en sígarettuframleiðend
ur töldu sig geta sætt sig við undu
þeir að sjálfsögðu glaðir við sinn
hlut ,en stórblö'ð eins og New York
Times töluðu um hneyksli í sam
bandi við þessa lagasetningu*
Á fyrri hluta þessa árs tilkynnti
FTC, sem er sjálfstæð stofnun og
fylgist með viðskiptaháttum fyrir
tækja að samkomulagið um að
hætta að nefna nikótín og tjöruinni
liald í sígarettum væri nú úr sög
unni. 8. júní í sumar tilkynnti
stofnunin svo tóbaksframleiðend-
um að liún ætlaði að koma á fót
sérstakri rannsóknarstofnun í Was
hington til að fylgjast með tjöru og
nikótín innilialdi í sígarettum.
í sumar lagði svo öldungadeild
arþingmaðurinn W. Magnússson
fram frumvarp til nýrra laga, sem
gerði ráð fyrir enn strangari régl
um, og sem sígarettuframleiðend
ur gátu alls ekki fellt sig við. Hann
skýrði einnig frá þeirri athyglis
verðu staðreynd að í reyk frá
sumum síusígarettum væri meira
nikótín og meiri tjara en í síu
lausum sígarettum.
Ekki er vitað hvernig sígarettu
framleiðendur bregðast nú við.
Sumir hafa tekið upp þann sið að
augiýsa í blöðum tjöru ög nikótín
magnið í einstaka tegundum, sem
þeir framleiða, en enginn hefur
enn haft hugrekki eða dug til að
láta prenta þesar upplýsingar á
hvern einasta sígarettupakka.
Tímaritið Readers Digest lét
fyrir nokkru fara fram skoðana
könnun á því hvað reykingamönn
um fyndist um, ét þessar upplýs
ingar væru prentaðar á sígarettu
pakkana. Um 63% töldu að þessar
upplýsingar ætti að birta í öll
um tóbaksauglýsingum, en 23%
töldu að e.kki skipti neinu máli
hvort þessar upplýsingar væru
prentaðar á pakkana eður ei. Hins
vegar voru 92% þeirrar skoðunar
að gera ætti sérstakar ráðstafanir
til þess að hindra það, að ungt
fólk byrjaði að reykja.
Hér á íslandi hefur verið tals
vert fjaðrafok vegna sígarettuaug
iýsinga í dagblöðum og sjónvarpi.
Engar reglur eru til sem banna
slíkar auglýsingar eða setja yfir
leitt nokkur talsrök um hvernig
þær eru gerðar eða hvað er sagt í
þeim. Finnst þó mörgum að full
komlega sé kominn tími til að
slíkt verði gert og sömuleiðis heyr
ast raddir um að eðlilegt sé að
kveðið verði á um það í löggjöf
að varúðarmerki skuli vera á öll
um sígarettupökkum.
(Endursagt og þýtt úr Econom
ist og R. Digest.)
BBómabúð Michelsen
Suðurlandsbraut 10. —
Sími 31099.
Fallegar og sérkennilegar skreytingar til ára
mótanna. Óskum öllum viðskiptavinum
Gleðilegs árs
Blómabúð Michelsen, Suðurlandsbraut 10.
Blómaskáli Michelsen, Hveragerði.
FLUGELDAR
Skiparakettur
Handblys
Jokerblys
Stormspýtur
Snákar
Fallhlífarakettur
Bengalblys
Skrautrakettur
Stjörnuljós
Stjörnugos
Eldflaugar — Tunglflaugar — Eldgos
VerÓandi hf.
FRÁ BÚRFELLSVIRKJUN
óskum eftir að ráða
TRESMÍÐI
Upplýsingar hjá Trésmíðafélaginu og starfs-
mannastj óranum.
Fosskraft
Suðurlandsbraut 32, sími 38830.
Ráðningarstofa
hljóðfæral eikara
Félag íslenzkra hljómlistarmanna hefur opn
að ráðningarstofu hljómlistarmanna að Óð-
insgötu 7 frá.kl. 14—19 alla virka daga.
Sími 20255.
Skrifstofan útvegar félögum, starfsmannahóp-
um, skólum og öðrum, sem þurfa á hljóm-
sveit að halda hvers konar hljómsveitir.
Þeir 'hljóðfæraleikarar og hljómsveitir sem
enn hafa ekki látið skrá sig hafi sem fyrst
samband við skrifstofuna.
FÍH.
Askriftasími Alþýöublaösins er 14900
30. desember 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ $