Alþýðublaðið - 30.12.1966, Page 11

Alþýðublaðið - 30.12.1966, Page 11
 •x ••- ' Merkasti viðburðurinn í frjálsíþróttum á sl. sumri var Bikarkeppnin. Myndin er frá keppninni og sýn- ir keppni í boðhlaupi. örg verkefni SKRR á keppnistímabilinu HVENÆR RIS FULLKOMIÐ SKÍÐA HÓTEL TIL FJALLA EINS OG SKÝRT var frá hér á íþróttasíðunni fyrir jól hefur frú Ellen Sighvatsson hætt for- mennsku í Skíðaráði Reykjavíkur eftir nokkurra ára ágætt starf. Núverandi formaður er Þórir Lár- usso. Slagsmál í Rio! Úrslitaleikurinn í meistara- móli Rio de Janeiro í knatt spyrnu var allsögulegur. Þegar líöa tók á leikinn gleymdu leik menn algérlega knáttspyrnunni en slógust. upp á líf og dauða. Alls var níu leikmönnum vísað af leikvelli. Mikil slagsmál voru meðal áhorfenda, em voru 143 þúsund. Alls hlutu 51 meiðsl. Dómarinn flautaði leikinn af fyrir venjulegan leiktíma en þá var staðan 3-2 fyrir Bangua gegn Flamengo og þeir fyrr nefndu hlutu sigurinn. Einn af áhangendum Flamengo, sem hlustaði á útvarpslýsingu varð svo æstur, að hann skaut sig og var fluttur særður á sjiikra hús. Það var ekki aðeins hinir venjulegu áhorfendur, sem slóg ust, heldur forystumenn, blaða menn og Ijósmyndarar og lög réði ekki við neitt. Nýja stjórnin hélt nýlega fund með fréttamönnum og skýrði frá því helzta, sem er á döfinni hjá Skíðaráðinu í vetur. Skíðaráðið ér eins og hin sérráðin einskonar samnefndari fyrir skíðafélögin i höfuðborginni. Stjórn SKRR hef- ur mörg jám í eldinum, en þau helztu eru mótin, ferðir í skíða- löndin, áróður o.s.frv. Afgreiðsla skíðaferðanna er nú í UmferðarmUðiStöðinni, en um hana sjá Guðmundur Jónasson h. f. og Kjartan og Ingimar. í Um- ferðarmiðstöðinni er einnig hægt ða fá upplýsingar um ferðirnar, stærð skíðaskálanna, kostnað við dvöl þar, hvort um veitingar sé að ræða, hverjir séu forráiðamalnn o.s.frv. Þjálfunarvandamálið er eilífur höfuðverkur en erfitt er að f'á hæfa þjálfara í einn og hálfan til tvo mánuði í vetur, en það hefur ekki tekizt enn. Undanfarna vet- ur hafa efnilegir skíðamenn verið styrktir til utanferða, en vegna kostnaður hefur sá styrkur verið smávægilegur og gagnið af ferð- unum lítið. Mörg skíðamót verða haldin í vetur hér í nágrenni Reykjavíkur. Fyrsta mótið verður hið svokall- aða L.H. Mullersmót, sem er sveitakeppni í svigi og fer fram 6. og 7. janúar. Skíðamót Reykja- víkur verður háð dagana 18. og 19. febrúar og 4.-5. marz. Ung- lingamót Islands verður háð hér dagana 11. og 12. marz Þá mun fara hér fram svokallað opið mót í svigi og stórsvigi, þ.e.a.s. fyrir alla keppendur á landinu í A-fl. karla og kvenna, en þetta mót gef- ur síðan keppendum stig eftir ár- angri, en stigin eru síðan notuð til að raða eftir í ráshópa á ís- landsmóti. Eitt slikt mót fer fram á Akureyri, ísafirði og Siglufirði. Þá má ekki gleyma firmakeppni ráðsins, sem segja má, að sé eina j tekjulind þess, en hún gerir því j kleift að ráða áðurnefndan þjálf- ara. Haldið verður hið árlega Stef- ] ánsmót í Skálafelli, en það er svig mót í öllum flokkum, sem KR-ing- ar halda til minningar um látinn forystumann. í sambandi við mót þetta er rétt að geta þess, að e.t. v. verður það um leið hin árlega bæjarkeppni Reykvíkinga og Bergen. Reykvíkingar fara ekki utan til þeirrar keppni að þessu sinni og standa yfir samningar um að fá Glasgowmenn og Bergens- era hingað, en ekki er enn vitað, hvort það tekst. Að lokum sagði Þórir Lárusson, formaður Skíðaráðs Reykjavíkur: „í mörg ár hafa skíðamenn í Reykjavík átt við hinar örðugustu aðstæður að búa, þar sem snjó- leysi og önnur bágindi hafa að steðjað. Það hefir stundum verið Framhald á bls 14. VALUR VANN FRAM I6-.13 í ÆSISPENNANDILEIK *'rll",,gl' 1 ' i n.i.ii 1 VALSMENN komu sannarlega á óvart í I. deild íslandsmótsins í handknattleik í gærkvöldi. Þeir sigruðu Fram með 16 mörkum gegn 13 og höfðu yfirhöndina all- an leikinn, utan einu sinni, sem Fram tókst að jafna í síðari hálf- leik. Annar leikur kvöldsins var milli Hauka og Vikings og lauk með sigri þeirra síðarnefndu, sem skoruðu 17 mörk gegn 14. Leikur Vals og Fram var skemmtilegur frá fyrstu til síð- ustu mínútu. Valsmenn léku mjög rólega og skutu ekki á mark, nema í góðu færi. Á fyrstu mín- útum leiksins skoruðu Valsmenn fjórum sinnum, en loks á níundu mínútu komst Fram á blað. Gunn laugur bætti öðru marki við fyrir Fram úr vítakasti. Valsmenn auka síðan enn bilið og komast í 8:3, en Framarar eiga síðasta orðið í fyrri hálfleik, og staðan í hléi er því 8:4 fyrir Val. Hinir fjölmörgu áhorfendur virtust skemmta sér hið bezta og spurningin í hléi var, skyldi Fram takast að sigra? Fx-am hóf síðari hálfleik með iglæsibrag og eftir 15 mínútur er staðan jöfn, 8:8. En þá finnst Vals mönnum nóg komið af svo góðu og skora tvívegis. Töluvert fjpr færist nú í leikinn og þrem mín- útum fyrir leikslok er staðan 16: 11 fyrir Val og leikurinn því unp- inn. Fram leikur maður á manti í lokin og tekst að skora tvívegis, skemmtilegur leikur er á enda með vei'ðskulduðum sigri Vals, 16: 13. Það var augljóst, að Valsmenn j komu ákveðnir til leiks og hugð- ust fara að öllu með gát, þeir léiku rólega fyrir framan vöjin. Framara og í'eyndu að finna veilu Frsmhald á 14. síðu. Sk'iðaferðir , Allar helgar þegar skíðafæri er, frá hausti 1966 til 15. feb. 1967 mun verða farið í skíða skála félaganna sem hér seg ir.: Laugardaga kl. 2, e.h. og 6 s.d. Sunnudaga kl. 10. f.h. Aðrar aukaferðir verða aug lý^tar eftir því sem við á. Af greiðsla skíðabílanna er í Um fcrðurmfðstöðinni, ÍSiem ennt- fremur veitir allar nánari upp lýsingar. ■ ■ ■ Þórólfur Beck, hinxi kunni knattspyrnumaður er nú á förum til franska félagsins Rouen og rnun leika með því félagi til reynsiu í sex mánuði. Hann hefur leikið með Glasgow Rangers í rúmt ár, en kunni illa við sig hjá þvífélagi. Myndin er af Þórólfi í leik. 30. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ %%

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.