Alþýðublaðið - 03.01.1967, Page 8

Alþýðublaðið - 03.01.1967, Page 8
stöðum, eða jafnvel sjúkdóma eins og krabbamein. Umferðarslysin eiga sök á einu þriðja banaslysa, þegar allt kemur til alls. Þiirf á aukinni fræð'siu. Ástandið í þessum efnum er nú orðið mjög alvarlegt að ' allra dómi. Á síðastliðnu ári kom Evr- ópuráðið á fót sérstakri nefnd til þess að huga að læknisfræðilegum vandamálum í sambandi við um- ferðarslys ag starfar sú nefnd í tengslum við þá aðila, sem sjá um störf Evrópuráðs á sviði heilbrigð- ismála. Hefur þessi nefnd þegar tekið til starfa og er formaður hennar ítalski prófessorinn Raffa- ele Vannugli. Fjölmargir aðilar senda áheyrnarfulltrúa á fundi nefndarinnar og þeirra á meðal eru stofnanir eins og :Alþjóða Rauðikrossinn, Alþjóða heilbrigð- ismálastofnunin, Alþjóðasamtök gegn umferðarslysum og Alþjóða samband bifreiðaefeenda. Rætt hefur verið um að búa til staðlað slysaskýrsluform, sem auð veldað gæti þeim sem rannsaka umferðarslysin að komast fyrir og flokka orsakir þeirra á skynsam- legan hátt. Ökumaðurinn og' heilbrigði hans Allir serfræðingar eru sammála um, að það mundi hafa áhrif í þá átt að draga úr umferðarslysum, ef þeir sem sækja um að öðlast ökuskírteini væri látnir ganga und ir mun strangari læknisskoðun en nú tíðkast yfirleitt. Nú eru reglurnar yfirleitt mis- munandi í hinum ýmsu löndum. Sumstaðar er alls ekki nauðsynlegt að gangast undir læknisskoðun til þess að fá ökuskírteini er veitir heimild til að aka einkabifreið, en annarsstaðar er slíkt aftur skil- yrði. Sumsstaðar gildir sú regla, að aðeins atvinnubílstjórar þurfa að ganga undir læknisskoðun áður en þeir fá ökuskírteini. Allir þeir sem æskja þess að fá ökuskírteini ættu að hafa ein- hverja hugmynd um þá sjúkdóma, sem geta staðið í vegi þess, að menn geti ekið bifreið svo ör- uggt sé. Sérfræðingar Evrópuráðs ins hafa í hyggju að semja lista yfir þessa sjúkdóma og mundi þá sá sem sækti um ökuskírteini verða að segja til hvort hann þjá ist eða hefði þjáðst af eintiverjum þeirra og ef svo væri fengi hann að líkindum ckki ökuskírteini ef málið væri alvarlegt. Nær fullvíst er talið að flogavciki verði meðal þeirra sjúkdóma, sem þarna verða upp taldir. DUKKNTR ÖKUMENN. Hættulegasti ökumaðurinn er sá sem er drujckinn eða hefur neytt áfengis að einhverju marki. Þegar rætt var um umferðarslysin á ráð gjafarfundi Evrópuráðsins 1962 kom í ljós, að við krufningar á þeim sem lent höfðu í umferðar slysum í Bandaríkjunum og beð ið bana var mikið vínandamagn í blóðinu meira en helmings. Það svo mjög að áfengisneyzlan var tal in höfuðorsök banaslyssins. Það er sömuleiðis eftirtektarverð staðreynd að samkvæmt skýrslum alþjóðaheilbrigðismálastofnunar innnr (WHO) er meir en helming gangandi vegfarendur sem bíða bana í umferðarslysum undir á- hrifum áfengis. Það hefur komið að sjálfu sér að fyrrgreind nefnd Evrópuráðs ins hefur rætt áfengismálin all ít arlega. Þar komust mcnn að þeirri niðurstöðu, að þótt ökumenn með 0,4 prómille áfengismagn í blóð inu væru fjarlægðir af vegunum mundi það ekki hafa nein veru leg áhrif til að fækka slysunum. Einnig voru menn þar sammála um að stór hópur ökumanna væri alls ekki líklegri til að valda slys um heldur en venjulega jafnvel þótt í bióði þeirra væri allt að 0.5—0,8 promille vínandi. En allir ökumenn sem væru með mcira en 0,8 promille áfengismagn væru beinlínis hættulegir sjálíum sér og umhverfinu. Til þess að hamla gegn ölvun við akstur mælti þessi nefnd með því að gerðar yrðu ýmsar Iagalegar og stjórnar farslegar ráðstafnanir til að auð- velda vfirvöldunum að fá blóðpruf ur og þvagprufur mann, sem grun aðir væru um a’ð liafa ekið mjög ölvaðir . TÓBAK OG DEYFILYF. Deyfilyf ýmiskonar geta haft „Elleftu hverja mínútu ferst Bandaríkjamaður í bílslysi. Rúm- lega fjórði hver bíll í Bandaríkj- uitum á einhverntíma aðild að á- jrekstri þar sem slys verða á fólki. ■ Frá því að fyrsti bíllinn var búinn til 'hefur ein og hálf milljón Banda ríkjamanna látið lífið í bílslysum, eða fleiri en fallið hafa í öllum ;þeim styrjöldum sem þjóðin hefur átt aðild að. . . . . Bílslys eru algengasta slysa- og dánarorsök barna, unglinga og ifólks undir 35 ára aldri í Banda- ríkjunum. Ef ekki tekst með ein- ihverjum hætti að draga úr slysa- faraldrinum, verður það innan skamms svo að einn Bandaríkja- maður af hverjum tveim mun eiga eftir að lenda í bílslyi um ævina og einn af hverjum 72 mun bíða bana í bílslysi." Þessar óhugnanlegu tölur eru teknar úr grein, sem fyrir skömmu birtist í bandaríska vikuritinu að því er segir í síðasta tölublaði blaðsins Forward Europe, sem er málgagn Evrópuráðsins. Umr-ædd* grein bar fyrirsögnina: Hvers vegna gera verður bílana örugg- ari. Ef Evrópumenn skyldu nú halda að ástandið væri eitthvað betra handan hafsins, þá geta þeir minnzt þess að á árinu 1964 biðu 68.510 manns bana í bílslysum í Evrópu og 1.840.910 slösuðust. í Bandaríkjunum voru samsvarandi tölu 47.700 sem létu lífið og 1.700.000 slösuðust. Professor Buchanan hefur bent (á að það sé rangt sem stundum er sagt, að ekki sé hægt að bera um- ferðarsiysin saman við aðrar slysa- eða dánarorsakir eins og eldsvoða, eða slys á heimilum eða vinnu- Sérstök rannsóknarstofa í Brctlandi fæst við marg háttaðar rann sóknir á umferð og umferðarslysum. Hér er verið að rannsaka hvað skeður, ef bifreið er ekið á mikilli ferð á nýja gerð af ljósastaurum. 8 3. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.