Alþýðublaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 14
Ræða forsetans Framhald af 7. síðu. fvrirmyndar og iviðvörunar. Ein Sturlungaöld ætti að nægja þjóð- inni. Hverri tilraun til einræðis myndi Ijúka á sama veg og þá, aneð erlendum yfirráðum. Það er ný öld, sem vér lifum á, og í nýjum heimi. Tvær heims- etyrjaldir 'hafa umturnað heimin- um. Tæknin í vígbúnaði og sam- göngum veldur nýjum vanda í al- fþjóðamálum. Það vill svo til, að á 4ma tíma sem lýðveldi var endur reist á íslandi, þá fór nauðsynin á alþjóðasamstarfi sívaxandi. Sam tijk hinna Sameinuðu þjóða voru róynduð, en sú hefur orðið raunin á, líkt og um Alþingi hið forna, að þar vantar framkvæmdavaldið. Af Því leiða svo hin minni þjóða- íbandalög. Það er engin 'þjóð lengur ein- angnrð á þessum litla hnetti, sem nú er flogið í kring um með hraða hljóðsins. Hinn nýi vandi í innan- iands- og utanríkismálum hvílir á herðum vor sjálfra. íslenzk þjóð eí' nú bæði myndug og fullvalda. En það merki|- ekki, að vér þurf- um aldrei að taka nein tillit. Guð gfefi oss þroska og skilning til að liysa hvern vanda, sem ber að höndum, að þjóðin verði farsæl og langlíf í landinu. Ég kveð yður svo, góðir sam- landar, að þessu sinni, óg óska Guðs blessunar’. Bruni Framhald af bls. 1. an og er nú að heita gjörónýtt Þetta var járnklætt timburhús, tvær hæðir og kjallari. Þrjár fjöl skyldur bjuggu í húsinu. Um elds upptök er það að segja, að kvikn að mun hafa í út frá olíukyndingu Alþýðublaðið náði tali af öðrum eiganda hússins. Sigurði Einars syni og spurði hann um tildrög elds ins og nánari atvik . — Ég vaknaði við það, að lítið barn hafi vaknað og grét í rúmi sínu. Þá var ég var við brunalykt og er ég opnaði hurðina kom tölu verður reykur á móti mér. Þegar ég kom á ganginn mætti ég þar öðrum íbúum hússins, sem einnig höfðu orðið eldsins varir. Þá fór ég aftur inn til fjölskyldu minnar og tókst okkur að komast út í tæka tíð. Þá hljóp ég á lögreglustöðina, sem þar er rétt hjá og tilkynnti um eldsvoðann. Er ég kom aftur stóð húsið í björtu báli. Ekki tókst okkur að bjarga neinu af eignum okkar, en húsið gjöreyðilagðist. — Þetta var mjög gamalt timbur hús, um 60 ára, og var einángrað með spónum og hálmi. í þessu húsi bjuggu þrjár fjölskyldur, tvær með tvö börn og ein með þrjú börn. Bjó ég með fjöiskyldu minni í vesturenda hússins en þar mun eldurinn hafa komið upp. —Ég vil að lokum taka það fram að slökkviliðið brást fljótt og mjög vel við og vann sitt starf af mikilli prýði. Móðir mín Guðbjörg Árnadóttir verður jarðsungin frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 4. jan. úar kl. 10.30 f. h. Atliöfninni verður útvarpað. Fyrir hönd systkina tengdabarna og barnabarna. Tómas Vigfússon. Surtsey Framhald af 1. síðu. laga gígur og gengu þar upp gló andi hraunslettur. Komið var að eynni í björtu og dokað við fram yfir ljósaskiptin. Meðan verið var að hringsóla við eyna í björtu kom í ljós í snjón um í hlíð fjallsins norðaustan meg in svört rák, sem stækkaði smám saman. Sást greinilega rjúka úr lienni öðru hverju en umliverfis hana var snjóföl. Þarna gat ver ið að byrja nýtt gos, þótt ekki rynni hraun meðan SIF var að sveima við eyna. Meðan SIF hringsólaði þarna með fréttamennina sást greinilega að lónið, sem Surtseyjarhúsið stendur við var smámsaman að fyllast af lirauni úr nýja gosstaðn um en það rennur svo gott sem beint í lónið. Gizkuðu menn á að milli hraunjaðarsins nýja og Surts eyjarhússins væru nú í mesta lagi 150 metrar, en séð úr lofti virtist húsið þá standa talsvert hærra en hraunstraumurinn. Gæti því farið svo að "hraun rynni á húsið. Vestan til á eynni hefur sjórinn talsvert brotið úr ströndinni, sem víðast hvar er nokkuð há og þver hnípt. Enn gýs stöðugt á gosstaðn um þar sem hraungos hófst siðast liðið haust. Hraunið þaðan rennur langan veg til suðausturs undir yfirborði hrauns, en fellur síðan rauðglóandi í sjóinn. Eru þar víða fallegir hraunfossar, sem sáust vel eftir að skyggja tók í gær. Var til komumikið að fljúga yfir eyna, þeg ar var farið að glytta í glóandi hraunið, og mjallhvíta gufustróka lagði upp þar sem mættust bráðið hraun og sjór. Þetta Surtseyjarflug stóð yfir í hálfa þriðju klukkustund, en einnig var flogið yfir Vestmannaeyjar í skínandi veðí'i. Skipherra á SIF í þessari ferð var Þröstur Sigtryggs son, en flugstjóri var Guðjón Jóns- son. Málverk Framhald af síðu 2. elskur maður sem ekki vílar fyrir sér að ræna listaverkum til að vita þau í sinni eigu, eða að lausnar- gjalds verði krafizt til að safnið fái málvérkin aftur. Lögreglan fékk í gær tvær' til- kynningar um að myndirnar verði afhentar gegn gjaldi en þær voru ekki tekna alvarlega og ekkert benti til að þeir sem kröfðust fés- ins væru hinir eiginlegu ræningj- ar. Orðuveitingar Framhald af síðu 2. mann, riddarakrossi, fyrir störf í þágu íslenzkrar verzlunarstéttar. 7. Ólaf Sigurðsso'n, yfirlækni, Akureyi-i, riddarakrossi fyrir lækn istörf. 8. Sigurgrím Jónsson, bónda Holti, Stokkseyri, riddarakrossi fyr ir landbúnaðarstörf og félagsmála- störf. 9. Frk. Svöfu Þorleifsdóttir, fyrr verandi skólastjóra, riddarakrossi fyrir félagsmálastörf. 10. Þorleif Jónsson, sveitarstjóra Eskifirði, riddarakrossi, fyrir störf í þágu útgerðarmála og sveitar- stjórnarstörf. Reykjavík '1. janúar 1967. Orðuritari Flugferðir tefjast Mikil þoka var í gærkvöldi, sem magnaðist mjög er líða tók á kvöld ið. Af þeim sökum lögðust allar flugsamgöngur niður við flugvöll inn í Reykjavík. Verða nokkrar flugvélar sem staddar eru úti á landsbyggðinni að bíða betra flug veðurs. Nokkrar ‘ flugvélar, sem voru á leið hingað erlendis frá, urðu að snúa við vegna þokunnar. TILKYNNIG FRÁ STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS Umsóknir um lán úr Stofnlánadeild landbúnaðarins vegna framkvæmda á árinu 1967 skulu hafa borizt bankanum fyrir 10. febrúar næstkomandi. Umsókn skal fylgja umsögn héraðsráðunautar, skýrsla um búrekstur og framkvæmdaþörf svo og veðbókarvottorð. Lánsloforð, sem veitt voru á þessu ári, falla úr gildi 10. febrúar, hafi bankanum eigi borizt skrifleg beiðni um að fá lánið á næsta ári. 'Engin ný skýrslugerð þarf að fylgja slíkum endurnýjunarbeiðnum. Skjöl, sem borizt hafa vegna framkvæmda á árinu 1966 og ekki voru veitt lánsloforð um á því ári, verður litið á sem lánsumsóknir á árinu 1967. 30. desember 1966. Stofnlánadeild landbúnaðarins Búnaðarbanki íslands. DfcRCO BELTIog ELTAHLUTIR á allar BELTAVÉLAR Höfum fyrirliggjandi ó lager hér í Reykjavík og/eða á leiðinni með næsta skipi. BERCO Belti og Beltahluti, svo sem Keðjur, Spyrnur, Spyrnubolta, Rúllur, Framhjól, og Drifhjól, fyrir beltavélar; og getum við dvallt afgreitt BERCO Beltahluti strax eða mjög fljótf Allar BERCO beltakeðjur eru framleiddar úr sérstöku K-stóli og er því bæði vörumerkið „BERCO“ og stólmerkið „K“ steypt í hvern einasta BERCO keðjuhlekk og vörumerkið BERCO jafnframt steypt í endann ó hverri einstakri BERCO fóðringu og hverjum einstökum BERCO pinna; auk þess eru allir aðrir BERCO Beltahlutir með innsteyptu vörumerkinu BERCO BERCO umboðiS ALMENNA VERZLUNARFÉLAGIÐ Allar BERCO BelfakeSiur eru úr specialstáli K SIMI 10199 SKIPHOLT 15 BERCO hefur sannaS ágæii sitt viS islenzkar aðstæður undanfarin ár 14 3. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.