Alþýðublaðið - 24.01.1967, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.01.1967, Blaðsíða 1
Þrfójudagur 24. janúar 1967 - 48. árg. 18. tbl. - VER8 7 KR. JOHNSON BODIÐ IIL N-VIEINAM LONDON.2 3. janúar (NTB-Reuter). Forseti Norð'ur-Vietnam, Ho Chi Minh, hefur boð'ið Johnson for- seta til friðarviðræðna í Hanoi, að því er bandarískur rabbí, Abra- ham Feinberg, sag-ði á blaðamannafundi í London dag að aflokinni heimsókn til Hanoi. En Feinberg og biskup, sem með honum var förinni, eru ekki á einu máli um það, hvað felist í tilboði Ho Chi Minhs. Diplómat ar í Lundúnum vara við of mik- illi bjartsýni vegna ummæla Ho Chi Minhs. í Washington er sagt, að Bandaríkjastjórn hafi ávallt verið fús að kynna sér allar til- lögur um friðarviðræður er kynnu að berast frá Hanoi. Feinberg sagði, að Ho Chi Minh hefði minnt þá á, að Johnson hefði sagt að hann væri fús til að ræða frið við hvem sem væri, hvar sem væri og hvenær sem væri. iiiiitiiiiiKiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiidiiin Þannig var bíllinn útlits eftir 1 að slysið' varð. Vélarhúsið er f dældað' á tveimur stöð'um. — = (Mynd: Bjaml.) = anaslys í Lönguhlíð Reykjavík, SJO. Sá hörmulegi atburður gerð- ist um kl. 18.50 sl. sunnudag, að Jón Haukfeli Jónsson, til heimilis að Háteigsvegi 17 varð fyrir bifreið og bci5 bana við það. Atburðurinn gerðist með þeim hætti, að Jón Haukfell var á leið að heiman frá sér og gekk yfir eystri braut Löngu- hlíðar, er ibifreið kom akandi suður Lönguhlíð á talsverðri ferð og skipti það engum tog- um, að vinstri framhluti bif- ireiðarinnar lelnti á Jónl og kastaðist hann við það upp á vélarhúsþakið og rann bifreið- in áfram ca. 50—60 m og stað- næmdist rétt norðan við gatna- Framhald á bls. 14. IIIIIIIIIKIIIIIIIIIIIIIIKIIIIIIIKIKIIIIKKII iiiiiiii — Ég býð Johnson að vera gestur okkar og sitja nákvæmlega þar sem þið sitjið hér nú, í höll fyrrverandi landstjóra Frakka í Indó-Kína. Látið Johnson koma með konu sína og dætur, ritara sinn, lækni sinn, matreiðslumann sinn En látið hann ekki koma með skammbyssu í belti, látið hann ekki koma með aðmírála og hershöfðingja. Sem gamall bylt- ingamaður lofa ég upp á æru og trú, áð Johnson geti verið alger- lega óhultur um sig, sagði Ho Chi Minh. □ Nokkur héruð eru nú að leggjast í eyði vegna loftárása Bandaríkjamanna á Norður-Viet- nam, að sögn Abraham Muste, sem var í fylgd með klerkunum. En Muste sagði að Norður-VLet- nammenn ætluðu ekki að gefast upp vegna loftárásanna og væru farnir að sætta sig við tilhugsun ina um langvinnar loftárásir. Margir lifðu bókstaflega undir jörðunni og margir mundu láta sér í léttu rúmi liggja þótt Hanoi yrði gerð að einni rúst. □ í Saigon var frá því skýrt í dag, að bandarískar orrustuþot ur hefðu unnið mikið tjón á veg um og járnbrautarlínum í Norð ur-Vietnam undanfarna sjö daga. Stórskemmdir urðu á 12 stórum járnbrautarstöðvum á svæði sem Chiang Kai-shek hótar innrás í Kína Chang Kai-shek ',■ "'J ,,',,LíÍ | TAIPEH, 23. jan. (NTB-Reuter) - Leiðtogar kínverskra þjóðernis- 'i , , sinna á Formósu lýstu því yfir í dag, að Pekingstjórnin væri að t,, ■ liðast í sundur og að nú væri tæki færið til að ráðast á meginland Kína komið. í Ohiang Kai-chek forseti sagði á fjöldafundi í tilefni frelsisdags- ins, að með því að efla áhrif and- stæðinga Mao Tse-tungs og and- stæðinga kommúnisma í Asíu væri skapað ástand, sem yrði hagkvæmt bæði á meginlandi Kína og utan þess. Við skulum eyða gervi- stjórninni í Peking, sem nú er að liðast í sundur, og leysa af hendi hi0 heilaga hlutvtefk o(kkar að endurheimta meginlandið og frelsa landa okkar, sagði faann. K. Yen varaforseti sagði, að Mao ætti í alvarlegum erfiðelik- um. Flestir samstarfsmenn og stuðningsmenn hans hefðu snúið við honum baki. Nú er tilefnið til gagnárásar okkar á meginlandið komið, sagði hann. Hann skírskotaði til frjálsra Kínverja heima og erlendis og hvatti Kínverja á meginlandinu til að rísa upp gegn harðstjórn og ganga í lið með frelsissveitunum á Formósu. Ku Chung-kang, formaður and- kommúnistabandalags Asíuþjóða, skoraði á fainn frjálsa faeim að styðja árás kínverskra þjóðemis- sinna á meginlandið og lýsti því yfir að slík árás mundi hljóta mik- Framhald á 15. síðu. Fiskimálaráð- herra Rússa kemur hingað ISKOV, fiskimálaráðherra Sov- étríkjanna, mun væntanlega koma til íslands í opinbera heimsókn í aprílmánuði næstkomandi. Emil Jónsson fór á sínum tíma í heim sókn til Sovétríkjanna í boði hins rússneska ráðherra. Bauð hann þá Iskov að endurgjalda með heim sókn til íslands ,sem ekki hefur getað orðið af fyrr en nú. er 120 km. fyrir sunnan Hanoi til 90 km. fyrir norðan borgina. Fimm bandarískar þotur voru skotnar niður í þessum árásum, allar með loftvarnabyssum. Samtímis þessu hafa Rússar samkvæmt sumum fréttum sent 20 MIG-orrustuþotur til Norður- Vietnam, og mun helmingurinn vera af nýjustu gerð, MIG-21 í gær hafði 671 Vietcongmaður fallið í aðgerðum Bandaríkja- manna í járnþríhyrningnum fyrir norðan Saigon. 675 Vietcongmenn hafa verið teknir til fanga. □ í Varsjá koma rendiherrar Bandaríkjanna og Kína saman til fyrsta fundar síns síðan 7. sept- ember í fyrra, tveimur vikum eft Framhald á 13. sfðu Morðingjar ÖnnuFrank fyrir rétt MUNCHEN, 23. janúar :NTB-Reuter). Hópur manna safnaðist sam an fyrir. utan dómrhúsið í Miinchen í dag og veifaði stér um ljósmyndum af Önnu Frank, þegar þar hófi st réttar höld í máli þriggja fyrrver- andi embættismanna nazista, sem ákærðir eru fyrir að hafa myrt þúsundir lxollenrkra Gyð inga á stríðsárunum, þeirra á tneöal Önnu Frank, sira varö heimsfræg fyrir dagbói sína. Um 95.000 hollenzkir Gyðing ar voru fluttir í strlðsfanga- búðir í Þýzkalandi, þar sem flestir þeirra létu lífið. Aðal salcborningurinn í rétturhöldun um, Wilhelm Harster, sem var yfirmaður öryggisþjónastu naz ista í Hollandi 1940-43 er á- kærður fyrir að hafa skipulagt flutninga hollenzkra Gvflinga til Auschwitz og annarra stríðsfangabúða sarakvæmt fyr irmælum Adolf Eichmanns. Hinir sakborningarnir eru Wil helm -Zoepf, fv. SS-n'ajór og undirmaður Harsters 1942-44, Gertrud Slottke. ritar: Zeeþfs, pg tveir menn aðrir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.