Alþýðublaðið - 24.01.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 24.01.1967, Blaðsíða 11
IKF vann ÍS og KR KFR í 1. deild í Um lielgina voru háðir tveir leikir í I. deild íslandsmótsins í körfuknattleik. KR sigraði KFR með miklum yfirburðum, 93 stig- um gegn 60 og ÍKF vann stúdenta með 73 stigum gegn 56. Leikur ÍKF, nýliðanna í I. deild og ÍS var lélegur, en sigur ÍKF var verðskuldaður. Flest stig ÍKF manna skoraði Friðþjófur 25 og Hilmar 20. Hjá stúdentum voru Hjörtur og Grétar stigahæstir 12 stig hvor. Dómarar voru Guð- Frjálsiþróttadeild KR gekkst fyrir frjálsíþróttamóti innanhúss 21. þ.m. í félagsheimili KR. Mót- ið var haldið fyrir pilta í sveina- flokki (16 ára og yngri) og var þátttaka góð. Margir efnilegir pilt ar komu fram á móti þessu og náðu þeir allgóðum árangri. Eflaust eiga sumir þeirra eftir að láta meira að sér kveða í frjálsiþrótta- keppni. Piltar þessir hafa flestir íeft hjá frjálsíþróttadeild KR í vetur. Æfingar eru í félagsheim- ili KR á iaugardögum kl. 14. Allir áhugasamir piltar eru velkomnir á æfingar. Þjálfari er Einar Gísla körfubolta mundur Þorsteinsson og Agnar Friðriksson. KR-ingar voru ekki í neinum vandræðum með KER, sigruðu með 93 stigum gegn 60, í hléi var stað- an 48:30. Hjörtur Hansson var beztur í KR-liðinu með 27 stig, en stigahæstur var Einar Bollason með 34 stig. Hjá KFR var Marinó Sveinsson beztur með 23 stig, en Þórir Magn- ússon var stigahæstur með 24 stig. Dómarar voru Jón Eysteinsson og Einar Oddsson. son íþróttakennari. Helztu úrslit urðu þess: Langstökk án atrennu: m. 1. Þorvaldur Baldursson 2,62 2. Björn Kristjánsson 2,61 3. Helgi Helgason 2,55 4. Ragnar Gíslason 2,49 5. Birgir Sigurðsson 2,43 Þrístökk án atrennu: m. 1. Þorvaldur Baldursson 8,08 2. Eyjólfur Jónsson 7,49 3. Helgi Hlgason 7,37 4. Einar Þórhallsson 7,20 5. Björn Kristjánsson 7,24 Framhald á 14. síðu. Lubkíng skoraði flest mörk, 38 EFTIRTALDIR leikmenn skoruðu flest mörk í HM: 1.. H. Liibking, V-Þýzkalandi 38 2. Hans G. Schmidt, V-Þýzkal. 36 3. Josip Milkovic, Júgóslavíu 36 4. J. Klimov, Sovétríkin 35 5. F. Bruna, Tékkóslóvakia 34 6. G. Gruia, Rúmenía 34 7. A. Fenyoe, Ungverjalandi 30 8. V. Duda, Tékkóslóvakíu 28 9. I. Marosi, Ungverjalandi 28 10. J. Hodin, Svíþjóð 23 11. J. Horvat, Júgóslavíu 22 12. J. Jakob, Rúmeníu 21 13. G. Hárd, Svíþjóð 20 14. I. Uremovic, Júgóslavíu 20 ÁTTA BEZTU EFTIRTALDAR þjóðir voru bezt- ar á HM í handknattleik, sem lauk í Svíþjóð á laugardag: 1. Tékkóslóvakía, 2. Danmörk, 3. Rúmenía, 4. Sovétríkin, 5. Svíþjóð, 6. Vestur-Þýzkaland, 7. Júgóslavía, 8. Ungverjaland. Tékkóslóvakía sigraði Dan- mörku í úrslitaleiknum með 14:11. Rúmenía sigraði Sovétríkin í keppninni um 3. verðlaun 21:19 eftir framlengdan leik. Svíþjóð sigraði Vestur-Þýzka- land 24:22 í keppninni um 5. sæti. Júgóslavía sigraði Ungverjaland 24:20 í keppninni um 7 sæti. Sví- þjóð varð heimsmeistari 1954 og 1958 og Rúmenía 1961 og 1964. Ágætur árangur á innanfélagsmóti Hér sézt Erik Holst, markvörður Dana með silfurverðlaunin. Ilann hefur svo sannarlega unnið til þeirra. ÍKF skorar í leiknum við ÍS, Skíöamót Islands 1967 á siglufirði um páskana SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 1967 verð- ur háð á Siglufirði dagana 21,—29. marz og verður dagskráin þannig: Þriðjudaginn 21. marz kl. 15.00: Mótið sett. Ganga 20 ára og eldri. Gánga 17—19 ára. Miðvikudaginn 22. marz kl. 15.00: Stökk 20 ára og eldri. Stökk 17 — 19 ára. Keppni í norrænni tvíkeppni. Fimmtudaginn 23. marz kl. 14.00: . Stórsvig karla og kvenna. Kl. 15.00 Boðganga. Föstudaginn 24. marz kl. 10.00: Skíðaþing. Laugardaginn 25. marz kl. 14.00: Svig kvenna og karla. Sunnudaginn 26. marz kl. 44.00: 30 km ganga. Kl. 15.00 Flokkasvig. Framhald á 14. síðú. Vörubílstjórafélagið Þróttur. AUGLÝSING EFTIR FRAMBOÐSLISTUM I lögum félagsins er ákveðið að kjör stjórn- ar, trúnaðarma’nnaráðs og varamanna skuli fara fram með 'allsherjaratkvæðagreiðslu og viðhöfð listakosning. Samkvæmt því auglýs- ist hér með eftir framboðslisum og skulu þeir hafa borizt kjörstjórninni í skrifstofu félags- ins eigi síðar en miðvikudaginn 25. jan. kl. 17.00, er þá framboðsfrestur runninn út. Hverjum framboðslista skulu fylgja með- mæli minnst 22 fullgildra félagsmanna. 3 KJÖRSTJÓRNIN. 24. janúar 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.