Alþýðublaðið - 24.01.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 24.01.1967, Blaðsíða 3
Flugfélaginu ókunnugt um samvinnuáform SAS Jörgen Petersen forstjóri dansk færeyska flugfélagsins Faroe Air ways fór nú fyrir helgina til Þórs hafnar til aS byrja samninga um Færeyjaflug við færeysk stjórnar völd. Eins og Alþýðublaðið skýrði frá fyrir helgina liafa dönsk blöð undanfarið um það rætt, að í upp siglingu vaéri samvinna milli SAS og Flugfélags íslands um flug frá Kaupmannahöfn 4il Færeyja og áfram til Reykjavíkur. Blöðin hahla enn áfram að skrifa um þetta og benda á að hér geti ver- ið um að ræða byrjun á nánara Stefán Karlsson flytur fyrirlestra Félag íslenzkra fræða hefur feng i'ð' Stefán Karlsson mag. art., starfs mann Árnasafns í Kaupmannahöfn til að halcia tvo fyrirlestra á veg um félagsins. Fyi’ri fyrirlesturinn sem nefnist: íslenzk bókagerð fyrir '■forðmenn á 13. og 14 öld,' verður haldinn í fyrstu kennslustofu Há slcóla íslands miðvikudaginn 25. janúar og hefst kl. 20. Seinni fyrirlesturinn ,sem nefn ist: Brot úr tveimur íslenzkum þýð ingum eftir „Jarteinapostillu“ Kristjáns Péturssonar 1518, verð ur á sama stað fimmtudaginn 26. janúar og hefst kl. 20,30. Öllum er heimilt að koma og hlýða á fyrirlestrana. samstarfi milli SAS og FFÍ, og Finnair. Flugfélagi íslands er ekki kunnugt um þetta samstarf, sem dönsk biöð gera sér nú svo tíð rætt um. Danska blaðið Aktuelt segir þannig síðastliðinn föstudag, að horfa verði lengra fram 1 tímann varðandi þessa fyi’irhuguðu sam vinnu og ekki megi þar hugsa um Færeyjaflugið eitt. Þar segir, að fyrr eða síðar hljóti að því að koma ,að SAS beiti sér fyrir auk inni samvinnu við Finnair, sem nú er búið að kaupa þotur af gerð inni DC-8 til flugs h langleiðum Hljóti í þessu sambandi að vakna á ný gamlar hugmyndir um stórt norrænt flugfélag með þátttöku allra Norðurlanda. Segir í frétt inni, að stórrekstur sé lausnin á vandamálum hinna einstöku flug- félaga, sem ekki geti öðru vísi ráð ið við kröfur um sífellt stærri og hraðfleygari vélar, sem kosta gíf urlegar upphæðir. Ekki er minnzt á Loftleiðir í þessari frétt. Faroe Airways hefur fram til þessa notað gamlar DC-3 vélar á fflugleiðinni Kaupmannahöfln — Þórshöfn og hefur félagið haft ein hverja samninga við SAS um inn anlandsflug í Danmörku. Þannig fljúga vélar félagsins nú fyrir SAS einu sinni á dag til Billud og annast næturferðirnar til Álaborg ar og Aarhusa. Fram til þessa hefur SAS ekki sýnt Færeyjaflug inu minnsta áhuga og það hafa bæði Fiugfélag íslands og Faroe Airways getað notfært sér segir Aktuelt. Fyrir sumarið hefur Faroe Air ways tekið nýja Fokker Friend- ship flugvél á leigu, og hefur keypt samskonar vél, sem það fær afhenta í byrjun nóvember. Verði niðurstaðan sú, að Faroe Airways fái ekki leyfi til Færeyja flugs, gæti það í haust setið uppi með tvær flugvélar og enga fasta fiugleið, gæti það orðið því dýrt spaug, bendir hið danska blað að lokum ó að framtíð Faroe Airways sé beinlínis háð því að félagið fái leyfi til Færeyjaflugs. SPARA SÉR A AÐRA MILLJON þegar áfengisútsalan opnar i Lyjum Reykjavík, GÓ. Áfengisútsölurnar í Vestmanna- eyjum o>g í Keflavík verða opnað- ar um miðjan næsta mánuð. Bú- ið er að ráða útsölustjóra á báðum stöðunum. í Keflavík verður Jón Bárðarson útsölustjóri, en fhann gegndi áður sama embætti á ísa- firði. í hans stað verður Jens Ki-ist marsson útsölustjóri á ísafirði, en hann er fyrrverandi útgerðarmað- ur og skipstjóri. Auk útsölustjóranna er búið að ráða einn afgreiðslumann á hvor- um stað. Vestmannaeyingar fá nií í fyrsta sinn áfengisútsölu og jafn framt útsvör af slíkri starfsemi, sem nemur mörg hundruð þúsund um króna. Auk þess spara Vest- mannaeyingar sér hátt á aðra milljón króna iá. ári í flutnings- gjöldum á áfengi í póstflutnin^- um. Dæmi eru til um að Vest- Framhald á 15. síðu. ii I iiiiiiinmiii 1111111111111111111111111111 NY GOGN UM SOGU VERKA- LÝDSHREYFINGARINNAR! Vildu 21 árs kosningaaldur þegar 1907 Reykjavík, EG Nýlega eru komin fram í dagsljósið merk gögn er varöa iilllllllllllllil Afkvæðagreiðsla hjá BSRB um uppsögn kjarasamninga Samkvæmt löjgum um kjara- samninga opinberra starfsmanna ber stjórn BSRB að taka ákvörðun úm uppsögn kjarasamninnga fyr- ir ríkisstarfsmenn. Síðan segir í lögunum: ,,um ákvörðun hennar skal fara fram allsherjaratkvæða- greiðsla starfandi ríkisstarfs- manna er í hlut eiga til samþykkt- ar eða synjunar." Samningur sá, sem nú er í gildi er dómur Kjaradóms, frá 30. nóv. 1965. Er hann uppsegjanlegur á þessu ári og fellur úr gildi við næstu áramót, ef honum er sagt upp. Stjórn BSRB hefur nú samþykkt einróma að segja samningnum upp. En samkvæmt því, sem vitn- að er til hér að framan, verður að fara fram allsherjaratkvæða- greiðsla um þessa samþykkt stjórn arinnar, þannig að ótvírætt liggi fyrir liver er vilji meirihluta starfandi ríkisstarfsmanna í þessu efni. Atkvéeðisrétt eiga anir ríkis- starfsmenn innan BSRB og einn- ig þeir fastráðnir ríkisstarfsmenn, sem ekki eru félagsbundnir í BS RB. Yfirkjörstjórn BSRB hefur á- kveðið eftirfarandi fyrirkomulag á allsherjaratkvæðagreiðslunni: í Reykjavík, • Kópavogi, Akra- nesi, ísafirði, Siglufirði, Akureyri, Vestmannaeyjum, Selfossi, Kefla- vík, Keflavíkurflugvelli og Hafn- arfirði fer atkvæðagreiðslan yfir- leitt fram á hverjum vinnustað og verður fyrirkomulag svipað og í utankjörstaðaatkvæðagreiðslu í al- mennum kosningum. Verður henni stjórnað af undirkjörstjórnum, er annast dreifingu kjörgagna sam- kvæmt kjörskrá og skila atkvæð- um til yfirkjörstjórnar. Á þessum kjörsvæðum hefur yfirkjörstjórn ákveðið, að atkvæðagreiðslan tíkuli einkum framkvæmd dag- ana 13, —18. febrúar n.k. Þeir ríkisstarfsmenn á þessum kjörsvæðum, sem kunna að hafa fallið út af kjörskrá geta á sama tíma neytt atkvæðisréttar á skrif- stofu BSRB og þar liggur heildar- kjörskrá nú frammi. Nú þegar hafa verið póstlögð kjörgögn til allra ríkisstarfsmanna sem starfa utan þeirra kjörsvæða sem fyrr er gelið og nokkurra ein- staklinga á þessum stöðum. Þurfa þeir að kjósa strax og þeir fá kjör gögnin, svo að atkvæðin komist til yfirkjörstjórnar í Reykjfevík fyrir febrúarlok, en þá lýkur at- kvæðagreiðslunni. Ef kjörseðill hefur elcki borizt ríkisstarfs- manni úti á landi í febrúarbyrjun, þá er viðkomandi beðinn að til- kynna það til skrifstofu BSRB, Bræðraborgarstíg 9, símar 13009 og 22877, sem jafnframt gefur all- ar upplýsingar um atkvæðagreiðsl una. Þeir, sem eru á kjörskrá í R- vík, en verða fjarverandi 13,—18. febrúar, geta greitt atkvæði hjá undirkjörstjórn fyrir þann tíma, eða á skrifstofu BSRB. Þar geta einnig greitt atkvæði þeir ríkis- starfsmenn utan af landi, sem kunna að vera staddir í Reykjavík í febrúar. Alls munu yfir 5000 ríkisstarfs- menn hafa atkvæðisrétt varðandi uppsögn samninganna. Starfs- mannafélög bæjarstarfsmanna munu hvert um sig annast at- kvæðagreiðslu um uppsögn samn- inga þeirra við viðkomandi bæjar- félag. JZ2ZS sögu íslenzkrar verkalýðshreyf- ingar, en það er gjörðabók og fleiri gögn frá Verkamannaf- sambandi íslands, sem starfaði á árunum 1907 — 1910 og var einskonar fyrirrennari Alþýðu- sambands íslands. Kemur fram í lögum sambandsins, að með- al þeirra mála, sem það viidi vinna að, voru jafnrétti kvenna og karla, 21 árs kosningaaldur, aðskilnað ríkis og kirkju, skóla- skylda, ajúkrasjóðir og stofnun | pólitísks jafnaðarmannaflokks. É Alþýðublaðið fékk þær upp- 1 lýsingar í gær hjá Hannihal 1 Valdimarssyni forseta Alþýðu- J sambands íslands, að Skúli = Þórðarson sagnfræðingur hefði | fyrir nokkrum dögum afhent | þessi gögn til ASÍ, en honum f höfðu 'verið afhent þau fyrir | nokkru, er hann var að semjal | Framhald á 13. siðu. 5 1111 • ■ 1111 ■ i ■ i ■ ■ 11 ■ i ■ ■ ■ i ■ 11 ■ ■ 111 ■ i ■ 111111111 ■ i ■ 111 ■ ■ i ■ iiiiiiiiiiiiiilt 24. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.