Alþýðublaðið - 24.01.1967, Side 2

Alþýðublaðið - 24.01.1967, Side 2
Hernum beitt gegn óvinum Maos? PEKING, 23. jan. (NTB-Reuter) — Rauðu varðliðarnir héldu því íram á veggspjöldum í dag, að Mao Tse-tung heffði fyrirskipaðl -Lin Piao landvarnaráðlieiTa að beita hersveitunum til stuðnings vinstrisinnuðum byltingarmönn- Bruni á Húsavík Húsavík — EJ — AKB. í fyrrinótt kviknaði í einu af iiúsum Kaupfélags Þingeyinga. Um tvöleytið varð eldsins vart og lagði ejdtungurnar út um glugga á efri hæð hússins ,sem er eitt af elztu húsum Kaupfélagsins og er húsið nú notað sem geymsluhús, en í því var áður fyrsta almenna verzlun Kaupfélagsins, og hefur húsið allt af gengið undir nafninu Söludeild. Slökkviliðið kom fljótt á vettvang og gekk fljótt að slökkva eldinn. Á húsinu sjálfu urðu litlar skemmd ir, en í því var geymt töluvert af varningi, m.a. hjólbarðar fyrir bíla og dráttarvélar og mun megnið af þeim eitthvað skemmt. Tjónið hefur ekki verið metið ,en virðist töluvert. Eldsupptök eru talin vera út frá rafmagni. um ef nauðsynlegt reyndist. Ef Mao hefur gefið þessa tilskipun, en það hefur ekki verið staðfest opinberlega, getur hún haft ör- lagarík álirif á ástandið í Kína, segir Peking-fréttaritari Reuters, Vergil Berger. Hann segir, að til þessa hafi af- skipti hersins af valdabaráttunni verið pólitísks eðlis og beinzt að áróðursstarfsemi, en engin stað- festing hafi fengizt á fréttunum um, að hermönnum hafi verið beitt í átökum á ýmsum stöðum í Kina eða að þeir hafi tekið þátt í bar- dögum. í Peking telja margir, að hér sé um áróðursbrellu að ræða, er eigi að sýna andstæðingum Ma- os að herinn standi á bak við Mao og Lin Piao og þeir séu reiðubún- ir að beita hervaldi, ef nauðsyn krefji. * BLÖÐSÚTHELLINGAR Margar fréttir hafa borizt að undanförnu um ólgu og bardaga í Anwheihéraði í Austur-Kína, og eru þær byggðar á veggspjöldum rauðra varðliða. Fyrr í þessum mánuði var form. flokksdeildarinn ar í fylkinu og yfirmanni vatns- veitu- og raforkumálaráðuneytis- ins ekið um götur Peking með spjöld um hálsinn þar sem hann var gagnrýndur fyrir andstöðu við Mao. Fréttir hafa einnig borizt um ólgu og baidaga í héruðunum Cliekiang og Kiangsi í Suður- Kína, en opinberir talsmenn neita að staðfesta þær. Samkvæmt útvarpinu í Kiangsi, sem er á valdi Maosinna, hafa enn átt sér stað blóðsúthellingar og bardagar. Játað var, að Maosinn- ar hefðu farið halloka í tveggja daga bardögum í Kiangsi, en það- an hafa borizt fréttir um verkföll, matvælaskort og efnahagsöng- þveiti. Útvarpið birti engar tölur, en sagði að svokallaðar huggunar- sveitir hefðu heimsótt tvö sjúkra- hús og huggað menn sem særðust í bardögum 11. og 12. janúar. + MAOFJENDUR STERKIR Japanska blaðið „Nihon Keiza“ liermdi í dag, að rúmlega 40 manns hefðu særzt í bardögum í Changchun í Mansjúríu. Á laug- ardag áttu rauðir varðliðar og 1000 verkamenn við kvikmynda- ver í sjö klukkustunda bardögum. Rauðir varðliðar höfðu reynt að Framliald á 13. síðu 60 ára afmælis Verka- kvennafélagsins Hlífar í Hafnarfiröi var minnzt í blööum, útvarpi og sjónvarpi fyrir helgina og á laugar- dagskvöldið hélt félagið af- mælishóf í Alþýðuhúsinu I Hafnarfirði. Mikið f jölmenni var þar saman komið og margar ræður haldnar. — Myndin sýnir hluta veizlu- gestanna. Rússar veiða 4 millj. hektó- lítra af síld RÚSSAR veiða nú um 4 millj- ónir hektólítra af síld á ári í norð anverðu Atlantshafi, að því er norski fiskifræðingurinn Fin Dev old áætlar í blaðaviðtali. Þetta afla magn fá þeir í reknet við strendur Noregs, við Bjamarey, Jan May en, Færeyjar og ísland. Devold sagði, að Rússar stund uðu reknetaveiðar 10 mánuði árs ins, og væri afiinn allur seldur til manneldis í Sovétríkjunum, þar sem þessi síld er eftirsótt vara, þótt hún sé ekki ódýr. Það er skoðun Devolds, að Rúss ar hafi alls 4—500 skip við þessar miklu reknetaveiðar, þar á meðal um 30 leitarskip. 2—3 nýtízku rann sóknarskip. og loks nokkur stór móðurskip, sem taka við aflanum % vinna hann. Leitarskipin standa í stöðugu sambandi við síldarbát ana og er talsambandið notað svo mikið, að annarra þjóða skip á sama svæði komast varla að til eðli legra samtala fyrir sig. Hafa Norð menn kvartað undan því. Vaxandi andstaða gecn Sukarno Norrænir jafnaðarmenn styðja tilraun Wilsons OSLO, 23. jan. (NTB) — Trygve Bratteli, formaöur norska Yerka- mannaflokksins, sagði er tveggja daga ráðstefnu samstarfsnefndar verkalýöshreyfinganna á Norður- löndum lauk í dag, aö á fundun- um heföi komið frain stuðningur jufnaóármaiinaflokka og verka- lýðshreyfinga Noröurlanda við til- raunir Breta til aö finna lausn á inarkaðsmálum Evrópu á breiöum grundvelli. Jens Otto Krag forsætisráð- berra sagði, að áskorun sú, sem yerkamannaflokkurinn og verka- lýðshreyfingin í Noregi hafa beint í bréfi til ríkisstjórnarinnar þess efnis, að hún taki nú þegar af- 1 stöðu með fullri aðilda að Efna- | hagsbandalaginu, væri í fullu sam ræmi við sjónarmið danskra jafn- aðarmanna. Frumkvæði norska I Verkamannaflokksins er mér mik- l ið gleðiefni, sagði Krag. Tage Erlander forsætisráðherra sagði, að sænsk stjórnarvöld teldu að halda ætti öllum lciðum opn- um varðandi aðildina að EBE. Meðan hin pólitíska hlið EBE er óljós verður að bíða og sjá hvað setur, sagði liann. Varaformaður finnska jafnaðar- mannaflokksins, Olavi Lindblom, sagði að afstaða Finna í markaðs- málum Evrópu væri nú að bíða og sjá hverju fram yndi. DJAKARTA, 23. jan. (NTB-Reut- er) — Gaddavírstálmunum var í dag komið fyrdr vi» höll Sukarn- os forseta í Djakarta o'g skriðdrek ar tóku sér þar stöðu meöan ung- lingar óku um göturnar í hverjum vörubXlnum á faJtur öörum og hrópuöu: „Hengiö Sukarno“. Unglingarnir óku um mestu umferðargöturnar og ítrekuðu æ ofan í æ kröfuna um, að Sukamo yrði vikið úr embætti og stefnt fyrir herrétt. Stúdentaleiðtogar hafa sagt, að þetta sé aðeins upp- haf fjöldahreyfingar gegn Indó- nesíuforseta, sem sætt liefur 'harðri gagnrýni úr öllum áttum síðan hann neitaði fyrir skemmstu að gefa skýringu á hlutdeild sinni í hinni misheppnuðu byltingartil- 'raun haustið 1965. Adam Malik utanríkisráðherra tók í gær undir kröfuna um, að Sukarno segði af sér. Hann sagði blaðamönnum, að það væri eina leiðin til að binda enda á stjórn- máladeiluna í landinu. Achmed Saichu þingfórseti sagði í dag, að ástandið hefði versnað vegna þess að forsetinn hefði neitað að gera grein fyrir fyrri stefnu sinni. Malik neitaði að segja nokkuð um það, hverjum yrði falið að taka við forsetaembættinu. Nokkr- ir stúdentahópar vilja, að Subarto hershöfðingi, yfirmaður herafl- ans, verði næsti forseti landsins. Þingið bélt í dag fyrsta fund sinn um eins árs skeið, og meðal Framhald af 13. siðu. Árshátíð KVENFÉLAG Alþýðuflokksins í Reykjavík heldur árshátíð næstkoraandi þriðjudagskvöld kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Skemmtiatriði: 1) Sýndar íslenzkar skugga- myndir. 2) Leikþáttur, Árni Tryggvason og Klemenz Jónsson. — Sameiginleg kaffidrykkja. — Félagskonur fjölmennig og takið með ykk ur gesti. 2 24. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.