Alþýðublaðið - 24.01.1967, Qupperneq 7
Fréttii4 í
stutu máli
★ Atvinnuleysi í
Hollandi.
[□ HAAG, 21. janúar (NTB-- ú
iReuter) — Hollenzka stjórnin
) skýrði frá því í dag, aS hún
< 'hefði ákveðið að leggja fram ,i
[l.2 milljarð (íslenzkra) króna (*
itil að draga úr atvinnuleysi,
1 sem sífellt færist í aukana í J >
1 Hollandi. Um 85.000 verka-11
[menn eru atvinnulausir, eða (*
15% virinufærra manna. Sums \
istaðar eru 10% verkamanna
1 atvinnulausir.
•
$★ Fundur í Höfn um
fiskimál.
)□ ÓSLÓ, 21. janúar (NTB)
1 — Fiskimálanefnd Norðurlanda
'ráðs kemur saman til fundar
(í Kaupmannahöfn á mánudag- (
1 inn. Helztu mál á dagskrá verða 1
1 Kenndy-umferð viðræðnanna
* um alþjóðlegar tollalækkanir, 1
1 Fríverzlunarbandalagið og mál1
I sem varða Efnaliagsbandalagið.
★ Laxveiðar við
Grænland.
□ KAUPMANNAHÖFN, 21
janúar (NTB-RB) — Færeyski
| kútterinn „Bakur“ liefur veitt
70 lestir af laxi á undanförn-
1 um fjórum mánuðum við Vest-
|ur-Grænland. „Bakur“ er fyrsti
I báturinn sem veitt hefur lax
1 í net.
: Tiío til
Rússlands.
:n BELGRAD, '21. janúar
i(NTB-AFP) — Tito forseti fer
,1 í stutta óopinbera heimsókn til
)'Sovétríkjanna í lok mánaðar-
1' ins, að því er tilkynnt var í
1 dag.
SKis ■ ..
»«««««*t
*«»»»* tt ,,
t. > " \ ■ ... ’ „„
i
Nítt kerfi til dreif-
ingar upplýsinga
um kjarnorku
Stigið ihefur verið fyrsta skref
ið til að koma á kerfi fyrir alþjóð
leg skipti á upplýsingum um frið
samlega notkun kjarnorkunnar.
Hópur sérfræðinga, sem nýlega
hafði málið til athugunar í aðal
stöðvum Alþjóðakjarnorkustofnun
arinnar (IAEA) í Vínarborg, er í
aneginatriðum sammála um á-
ætlunina, sem á að heita INIS (Int
ernational Nuclear Informaftion
System).
Fram kom allliörð gagnrýni á íi
þcim hætti sem nú er á dreifingu^
nýrra niðurstaðna og annarra upp
lýsinga um kjarnorkurannsóknir
Ætlunin er að nota rafeindaheila
til að samræma uþplýsingar hvað
anæva að úr, heiminum, og er bú
izt við að INIS kerfið verði tals
vert ódýrara en það sem nú er not
að.
15 daga skemmtisiglin g með Fritz Heckert
20. apríl - 4. maí:
FARKOSTUR:
Reykjavík - Bergen - Osló - Kaupmannahöfn - Amsterdam - London
- Reykjavík 1-3 daga viðdvöl í hverri viðkomuhöfn. Verð frá kr. 11.800.
Þýzka skemmtiferðaskipið Fritz Heckert nýlegt 8.115 smál. byggt til
skernmtisiglinga. Úti og innisundlaugar með upphituðum sjó. Flestar í-
búðir 2ja manna með þægindum. Magir samkomusalir fyrir skemmt-
arit og dansleiki. 180 manna áhföfn veitir 350 farþegum fullkomnít
þjónustu.
Vegna þess hve marg'ir eru á biðlista vegna áður ákveðinnar sams konar ferðar þessa skips síöla sumars, hefir útgerðarfé-
lagið Iátið okkur skipið í té í þessa ferð til að koma til móts v ið ósltir okkar Við biðjum alla þá sem eru á biðlista hjá okkur
að láta vita sem allra fyrst því upppantað varð á tveimur dögum í seinni ferðina. Þeir sem eiga staðfest pláss íseinni ferð-
ina geta einnig fengið skipt og komizt í þcssa, þar sem þessi vorferð er á sérlega heppilegum tíma til að lengja sumarið.
Ferðaáætlun:
20. apríl: Farþegar komi um borð í skipið í Reykjavíkurhöfn
milli kl. 5 og 7 síðdegis. Klukkan 8 leggur skipið úr höfn.
Veitingar um borð til miðnættis.
21. aprl: Á siglingu undan suðurströnd íslands. Kvikmynda
sýning í samkomusal að afloknum hádegisverði. Allir veit-
ingasalir og barir opnir. Dansleikur um kvöldið.
22. apríl: Á siglingu milli Noregs og íslands. Efnt til síð-
degisskemmtunar í samkomusölum og dansleikur um kvöldið.
23. apríl: Komið til Bergen snemma morguns og lagt að
bryggju. Þeir sem óska taka þátt í skemmtiferð um nágrenn
ið. Ekið er um hinar fögru byggðir Vesturlandsfjarðanna. Há
degismatur snæddur á hinu skemmtilega Sandven hóteli við
Harðangursfjörð. Komið aftur til Bergen um klukkan 4 síð
degis. Frjáls tími í Bergen til kl. 20.30, en kl. 9 lætur skip-
ið úr höfn og siglir innaskerja til Osló.
24. apríl: Komið til Osló snemma morguns. Þeir sem óska
taka þátt í skoðunarferð um borgina og nágrenni hennar.
a. skoðað byggðasafnið á Bygdö, þar sem m.a. má sjá elzta
víkingaskipið, sem fundizt hefur og nýrri tíma „víkingaskip“
heimskautafarans Nansens, „Fram“ og Kon-Tiki flekann og
margt fleira. Komið aftur að skipi um kl. 4 síðdegis og síð-
an frjáls tími til ráðstöfunar. í Osló til kl. 20.30, en skipið
leggur úr höfn kl. 21.00. Siglt út Oslófjörðinn um kvöldið á
leiðis til Kaupmánnahafnar.
25. apríl: Siglt upp að ströndum Sjálands með morgninum
og lagt upp að hinni veglegu skemmtiskipabryggju „Löngu-
línu“ í Kaupmannahöfn, þar sem skipið liggur sem fljótandi
hótel, meðan dvalið er í Kaupmannahöfn. Klukkan 10 fara
þeir sem óska í skemmtiferð um Sjáland. Ekið um hina
fögru leið „Strandvejen“ til Kronborgarkastala. Snæddur
herragarðsmiðdagur á 200 ára gömlum veitingastað og síðan
ekið til Friðriksborgarhallar í Hilleröd og skoðuð þar hin
veglega höll og safngripir. Ekið til Kaupmannahafnar og ek-
ið að skipi aftur um kl. 17.00 Farið í Tívolí um kvöldið,
eftir kvöldmat um borð í skipinu.
26. apríl: í Kaupmannahöfn. Dagurinn til frjálsrar ráðstöf-
unar. Þeir sem óska að fara í ökuferð til Svíþjóðar, ekið um
Skán til hins fornfræga háskólabæjar í Lundi. Stanzað í
Malmö. Þeir sem óska fara á skemmtistaði í Kaupmannahöfn
um kvöldið. Sameiginleg ferð með þeim er óska í „Lorry“.
27. apríl: Dagurinn til frjálsrar ráðstöfunar i Kaupmanna-
höfn. Skipið leggur úr höfn skömmu eftir miðnætti.
28. apríl: Á siglingu milli Kaupmannahafnar og Amsterdam.
29. apríl: Lagt að bryggju í Amsterdam mjög snemma morg
uns. Þeir sem óska fara í skemmtiferð um Amsterdam og ná
grenni hennar til höfuðborgarinnar Haag og Rotterdam.
Skoðaður blómamarkaður og gimsteinaslípun. Farið á
skemmtistaði í Amsterdam um kvöldið.
30. apríl: Dagurinn til frjálsrar ráðstöfunar í Amsterdam.
Klukkan 22.00 er látið úr höfn til London.
1. maí: Komið til London snemma morguns og lagt að
bryggju. Þeir sem óska fara klukkan 9 í tveggja tírna skoð
unarferð um borgina, sem endar í stærstu verzlunargötunni
í heimsborginni Oxford Street. Dagurinn annars til frjálsr
ar ráðstöfunar. Farþegar komi um borð kl. 22.00 og skipið
leggur frá landi um klukkan 23.00
2. maí: Á siglingu meðfram Englandsströndum. Skemmtun
um kvöldið.
3. maí: Á siglingu til íslands. Kvikmyndasýningar og leikir
síðdegis að loknum hádegisverði. Eftir kvöldmat hefst svo
skemmtun og skilnaðarhóf í samkomusölunum. Dansleikur
og skemmtiatriði. Dansað til kl. 3 um nóttina
4. maí: Komið upp að suðurströnd íslands undir morgun.
Siglt framhjá Vestmannaeyjum og Surtsey og fyrir Reykja-
nes í björtu. Komið lil Reykjavíkur um kl. 22.00 um kvöldið.
FerSaskrifstofan
SUNNA
Banlcastræti 7, Reykjavík. Síniar 1Ö400 og 12070.
Þakkir frá Hrafnistu
Hrafnista, DAS, óskar eftir að
koma á framfæri þakklæti . til
hinna mörgu aðila,. sem með gjöf-
um, heimsóknum eða öðrum hætti
glöddu vistfólk á Hrafnistu ujn
jólin og áramótin og oft endranær
[ á nýliðnu ári.
Blindravinafélagið, stúkan Re-
bekka, ýms 'átthagafélög og marg-
ar fleiri stofnanir og einstakling-
ar hafa í verki sýnt hlýhug sinn
til stofnunarinnar.
En ekki hvað sízt skal minnast
starfs séra Gríms Grímssonar sókn
arpr;ests og , spra Magnúsar Guð-
mundssonar, sjúkrahúsprests fyrir
hin miklu störf þeiri'a á kvöld,-
vökum og við fjölmörg önnur
tækifæri. >
Fyrir alla slíka auðsýnda yirj-
sernd eru hér með fluttar alúðaí
þakkir í nafni vistfólks og stpfq-
unarinnar. . ;
24. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ