Dagur - 04.10.1997, Qupperneq 1
Laugardagur 4. október 1997
Verð ílausasölu 200 kr.
80. og 81. árgangur- 187. tölublað
Bankastj órafriðindi
unp á borðið!
Krafa iun að laim og
fríðindi bankastjóra
verði nákvæmlega
simdurliðuð. Við-
skiptaráðherra vísar á
ársreikninga tun
kostnað við yfir-
stjóm.
„Ég vil fá fram bókstaflega allt
um kaup og kjör bankastjóranna.
Ég vil fá fram ferðakostnaðinn
algerlega sundurliðaðan. Dag-
peningagreiðslur, greiðslur til
maka og tilgang ferðanna.
Risnukostnað fullkomlega sund-
urliðaðan, bílastyrk og bílakostn-
að. Líka hvort þeir hafi laxveiði-
leyfi á kostnað bankans, já bók-
staflega allt sem kjörum þeirra
viðkemur," sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir, alþingismaður, við
Dag í gærkvöld.
Finnur Ingólfsson, viðskipta-
ráðherra, vísar til ársreikninga
bankanna:
„Þegar ársreikningar bank-
anna verða lagðir fyrir eftir að
þeir byrja að starfa sem hlutafé-
lög, eru þeir opinber gögn og öll-
um opnir. Það er alveg eins með
reikninga Pósts og síma. Þegar
þeir verða gefnir út verða þeir
opinber gögn og öllum opnir,“
sagði Finnur við Dag.
- En munu laun bankastjóra
koma fram sérstaklega í árs-
reikningunum?
Jóhanna vill vita um allt, líka laxveiðar!
„Það verður sundurgreint hver
er kostnaðurinn við yfirstjórn
bankans. Ég sagði í umræðunum
á Alþingi á síðastliðnum vetri að
ég myndi birta laun bankastjór-
anna í gegnum ársreikninga
bankanna. Og ég fullyrði að laun
þeirra munu birtast í ársreikn-
ingunum því í uppgjörinu er
kostnaðurinn sundurgreindur,"
sagði hann.
Jóhanna Sigurðardóttir gagn-
rýnir þetta svar ráðherrans:
„Finnur Ingólfsson sagði í um-
ræðum á Alþingi í vetur er leið
að það myndi ekki skerða að-
gengi þingmanna að upplýsing-
um um kaup og kjör bankastjóra
ríkisbankanna þegar þeim verður
breytt í hlutafélög. Ég trúi því
ekki að hann gangi á bak orða
sinna. En ef þingmenn geta ekki
fengið þessar upplýsingar beint
verður því ekki unað. Ég get ekki
ímyndað mér annað en að Al-
þingi hljóti að taka það upp ef á
að þrengja svo að löggjafarvald-
inu að það geti ekki haft eðlilegt
aðhald með framkvæmdavald-
inu. Það er einmitt það sem
kemur fram í þeim upplýsingum
sem forsætisráðherra aflaði sér
um aðgengi þingmanna að upp-
lýsingum um launakjör æðstu yf-
irmanna Pósts og sfma. Þessu
verður ekki unað,“ sagði Jó-
hanna. — S.DÓR
Sjá viðbrögð almennings og
„Flakka fyrir 26 milljónir"
bls. 8-9
Sprengt
ígegn
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra sprengdi síðasta haftið í
Hvalfjarðargöngunum í gær.
Fyrstu bílarnir óku í gegn um
göngin. Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri og talsmaður Spalar, sagði
að göngin yrðu opnuð fyrir al-
mennri umferð um miðjan júlí á
næsta ári - eftir 255 daga frá og
með deginum í gær.
Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra þrýsti á hnappinn um
hálfu ári fyrr en áætlanir Spalar
gerðu ráð fyrir og eru menn að
vonum ánægðir með gang
verksins. Ráðherrann talaði um
að rétta veðrið væri til að standa
í svona framkvæmd því mikill
vindur var á firðinum. Nokkrir
dagar eru síðan bormenn voru
komnir að síðasta haftinu en
ákveðið var að sprengja síðasta
haftið með nokkurri viðhöfn.
Fyrstu bílarnir óku í gegn um
göngin eftir að búið var að
hreinsa grjótið í burtu eftir
sprenginguna. - OHR
Halldór Blöndal samgönguráðherra dreypti dýru koníaki á bergið að norskum sið áður en hann sprengdi síðasta haftið í Hvalfjarðargöngunum. Að því loknu ók hann göngin
ásamt fylgdarliði. Göngin eru íbúum Vesturlands kærkomin samgöngubót, en gert er ráð fyrir að þau verði opnuð fyrir almenna umferð á sumri komanda. - mynd: golli
í
HOnnDHBHSi
a
m Tælenskt
gómsæti í
Matargatinu
Blað 2
RíMsútvarpið
fær falieink-
unnfyrir
valdabrölt
Blað 2
Hringrósardælur
SINDRI *
-sterkur í verki
4*