Dagur - 04.10.1997, Page 4
4 - LAUGARDAGUR i.OKTÓBER 1997
FRÉTTIR
Framboðsmál
Qákveðin
Oákveðið er hvernig staðið verður að framboðsmálum Sjálfstæðis-
flokksins á Selfossi í naestu bæjarstjórnarkosningum. Að sögn Olafs
Björnssonar, formanns Sjálfstæðisfélagsins Oðins, verður aðalfundur
félagsins haldinn í næstu viku og býst hann við að þar skýrist línur,
en fyrir tvennar síðustu kosningar hefur verið efnt til prófkjörs. Sjálf-
stæðisflokkur á þrjá fulltrúa í bæjarstjórn Selfoss. Sigurður Jónsson,
sem síðast sat í efsta sæti listans, sagðist ekkert vilja segja til um hvort
hann ætlaði að halda áfram. Björn Ingi Gíslason, sem síðast var í
öðru sæti, sagði ekki tímabært að gefa út yfirlýsingar um áframhald-
andi þátttöku og Ingunn Guðmundsdóttir, sem síðast vermdi þriðja
sætið, sagðist í samtali við Dag hafa áhuga á áframhaldandi afskipt-
um af bæjarmálum.
Hass á
klósetti
Hass fannst á klósettinu á Hótel
Selfossi sl. laugardagskvöld, að
loknum dansleik sem þar var
haldinn. Lögreglan tók efnið í
sínar hendur, en um eigandann
er eldd vitað. Að sögn Þorgríms
Ola Sigurðssonar, hjá rannsókna-
deild Lögreglunnar í Arnessýslu,
hefur embættið haft afskipti af
þrettán fíkniefnamálum á þessu
ári, og er það nokkur fækkun frá
fýrra ári. Tvö af þessum málum
tengjast Litla-Hrauni og þar er
einnig um fækkun að ræða, sem
helgast af því að gerð hefur verið “Skoðað i fullriskynsemi,"segir Grétar
gangskör þar í öryggismálum. Zóphaníasson, sveitarstjóri á Stokkseyri.
Marglr utan áhættu-
hópa fá alnæmi
Haraldur Briem læknir:„Það skrýtna er að margt af þessu fólki er ekki i neinum
áhættuhópiÁ fjórða tug íslendinga hafa iátist úr ainæmi á íslandi. Útbreiðslan á
heimsvísu skelfileg.
Á annað hundrað manns hafa
fengið alnæmissmit á íslandi.
Um síðustu áramót hafði 41
greinst með sjúkdóminn, þar af
hafði 31 látist. 66 voru hommar
og í hópnum voru 12 fíklar.
Hommum hefur hins vegar hlut-
fallslega fækkað en gagnkyn-
hneigðum fjölgað, að sögn Har-
aldar Briem, sérfræðings á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
„Það skrýtna er að margt af
þessu fólki er ekki í neinum sér-
stökum áhættuhópi. Það bindst
trúnaðarsambandi við einhvern
sem e.t.v. hefur fyrir langa löngu
misnotað eitthvað. Þetta getur
komið fyrir hvern sem er og það
er nauðsynlegt að halda umræð-
unni gangandi í þjóðfélaginu,"
segir Haraldur.
Þó nokkur tilfelli hafa komið
upp í ár og hefur aukningin ver-
ið stöðug, eitt tilfelli á mánaðar
til tveggja mánaða fresti. AI-
mennt hefur verið talið að með-
göngutími frá smiti að sjúk-
dómnum sé um 10 ár, en að sögn
Haraldar getur tímabilið varað
frá einu ári upp í 20. „Sumir geta
gengið feiknalengi með smitið án
þess að veikjast."
Lífslíkur alnæmissjúklinga
voru 2-4 ár en tíminn hefur
lengst með nýjum lyfjaflokki.
Lyfin henta þó ekki öllum.
Fræðilegar bollaleggingar eru
meðal Iækna um að hægt verði
að lækna nýsmitaða en það verð-
ur að líkindum ekki á allra næstu
árum. Ástandið er alvarlegt. „Út-
breiðsla sjúkdómsins á heims-
vísu er skelfileg og sérstaklega í
Asíu núna. Afríka virðist aftur
mettuð. A Vesturlöndum hefur
þróunin sem betur fer ekki orðið
jafnslæm, en það má alls ekki
sofa á verðinum," segir Haraldur
Briem. BÞ
Sameinmgarmál í
skoðun
Nefnd fjögurra fulltrúa Eyrarbakka-, Stokkseyrar- og Sandvíkur-
hreppa, auk Selfossbæjar, sem ræðir um sameiningu þessara sveitar-
félaga, stefnir að því að halda fund í næstu viku þar sem hún gerir
fjölmennari nefnd fulltrúa nefndra sveitarfélaga grein fyrir starfi
sínu. „Málin hafa verið skoðuð í fullri skynsemi og af opnum huga,“
segir Grétar Zóphaníasson, sveitarstjóri á Stokkseyri. - Hann segir að
verði ákveðið af sveitarstjórnum að efna til almennrar atkvæða-
greiðslu um sameiningu vilji hann sjá það gerast strax í haust, þannig
að næsta vor verði kosin sveitarstjórn í nýju sameinuðu sveitarfélagi.
Áhugiá
Suðurstrandarleið
Samgöngur og heilbrigðisþjónusta eru þau mái sem oftast hafa kom-
ið upp á fundum sem þingmenn Sunnlendinga hafa átt með sveitar-
stjórnarmönnum að undanförnu. Að sögn Guðna Ágústssonar, al-
þingismanns, hefur Qárhagsvandi einstakra elli- og dvalarheimila
komið til umræðu, það er að þau fá ekki nægar fjárveitingar miðað við
þörf. Hvað samgöngumál varðar segir Guðni að vaxandi áhugi sé á
Suðurstrandarleið, það er vegi frá Þorlákshöfn og vestur í Grindavfk
en með því myndu Sunnlendingar komast í betra samband við stækk-
andi atvinnusvæði á Suðurnesjum. Þá segir hann menn vera áfram
um að fá lýsingu á Hellisheiði, brú yfir Hvítá sem tengja myndi sam-
an Biskupstungur og Hrunamannahrepp. Einnig geri menn sér grein
fyrir að Þjórsárbrú þjóni ekki núverandi umferðarþunga. -sbs.
DAGUR
Frábærar viðtökur
Viðtökur við ókeypis vikuáskrift að Degi hafa verið gríðarlegar. Mart-
einn Jónasson, framkvæmdastjóri blaðsins, segir að síminn hringi lát-
laust og hundruð manna hafi beðið um áskrift. Tilboðið stendur einn-
ig á mánudag svo enn hefur fólk tækifæri til að kynna sér blaðið. Nýir
lesendur eru boðnir hjartanlega velkomnir og vona starfsmenn blaðs-
ins að samfylgdin verði sem lengst.
Uppsögn bílstjóra
kærðtíl
umboósniainis
Andmælaréttur
stjómsýslulaga brot-
inn. BSKB skoðar
málefni annarra
brottrekiima vagn-
stjóra. Bældir og
beygðir.
Stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja telur að andmæla-
réttur stjórnsýslulaga hafi verið
brotinn á Unni Eggertsdóttur,
íyrrverandi vagnstjóra SVR, sem
var rekin úr starfi sl. sumar. Af
þeim sökum hefur BSRB og
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar vísað málinu til umboðs-
manns Alþingis.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, segir að í þeim að-
finnslum sem sendar hafa verið
til umboðsmannsins séu m.a.
kvartanir sem lúta almennt að
samskiptareglum borgarinnar við
sína starfsmenn. Hann segir að
andmælaréttur sé tryggður í
stjórnsýslulögum sem taka til
ákvarðana stjórnvalda. Sam-
kvæmt skilningi BSRB er Reykja-
víkurborg skilgreind sem stjórn-
vald og SVR er fyrirtæki í eigu
borgarinnar. Af þeim sökum ber
borginni að fara að gildandi
stjórnsýslulögum. Auk þess er
BSRB að kanna málavexti hjá
þeim vagnstjórum sem einnig
voru reknir í sumar.
Einhliða valdboð
Formaður BSRB telur almennt
séð að það þurfi að taka til end-
urskoðunar samskipti stofnana
hjá hinu opinbera við sína starfs-
menn. Sérstaklega í ljósi ráðandi
og vaxandi stjórnendahyggju sem
byggir á einhliða valdboði í kerf-
inu og einnig hjá einkafyrirtækj-
um. Áfleiðingin af þessari stjórn-
visku er m.a. að það er gengið
mjög á hlut og réttindi starfs-
fólks. Þess í stað ætti að ríkja
meira jafnræði með starfsmönn-
um og verkstjórnendum þegar
mannréttindi eiga í hlut. Þá býð-
ur þessi þróun uppá það að
starfsmenn verða bæði bældir og
beygðir og þora ekki að tala út
um hlutina við sína yfirboðara án
þess að eiga á hættu að fá það í
bakið á einn eða annan hátt.
Þessi þróun sé mjög skaðleg fyrir
þjóðfélag sem telur sig vera í
hópi þeirra sem kenna sig við
lýðræði. Af þeim sökum hyggst
stjórn BSRB taka á þessum mál-
um af festu í von um að það skili
sér í betri og eðlilegri samskipt-
um manna á milli úti á vinnu-
stöðum. -GRH
Leidrétting
I blaðinu í gær var birt mynd af stað Sigurðar Helgasonar, for-
Sigurði Helgasyni, fyrrverandi stjóra fyrirtækisins. Dagur biðst
stjórnarformanni Flugleiða, i velvirðingar á mistökunum.